Í lands­lið­inu Birgittu Jóns­dóttur var lýst sem aðila að „lands­liði mót­mæl­enda“ í skýrslu lög­regl­unnar um bús­á­halda­bylt­ing­una. Mynd: Pressphotos

Þingkona var höfð undir smásjá lögreglu

Lögreglan fylgdist sérstak­lega með Birgittu Jóns­dóttur, greindi hana á eftirlits­myndavél og skrásetti nöfn viðmælenda hennar eftir að hún tók sæti á Alþingi árið 2009. „Það er ótækt að lögregla fylgist sérstak­lega með kjörnum fulltrúum, ferðum þeirra og samskiptum við fólk,“ segir hún í samtali við Stundina.

Lögregla hleraði síma þingmanna vegna stór­viðburða í Íslands­sögunni á tíma­bilinu 1949 til 1968 á grund­velli heimildar frá Sakadómi Reykja­víkur. Fjallað er um málið í nýlegu svari Ólafar Nordal innan­ríkis­ráðherra við fyrir­spurn Össurar Skarp­héðinssonar, þingmanns Samfylkingarinnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Búsáhaldaskýrslan

Mest lesið undanfarið ár