Barnaspítali Hringsins óttast að verið sé að misnota nafn sitt í kynningu á Sumargleðinni

Eigendur við­burð­ar­fyr­ir­tæk­is­ins Basic House Effect sögð­ust ætla að halda styrkt­ar­ball fyrir ung­linga, Sum­ar­gleð­ina, þar sem ágóð­inn rynni óskertur til Barna­spít­ala Hrings­ins eða Rauða kross­ins. Þar kann­ast hins vegar eng­inn við Sum­ar­gleð­ina. „Þetta er eitt­hvað skrítið,“ segir starfs­maður Barna­spít­al­ans.

Barnaspítali Hringsins óttast að verið sé að misnota nafn sitt í kynningu á Sumargleðinni
Basic House Effect Bjarni Hall­grimur Bjarna­son, einn eig­anda félags­ins, er fyrir miðju. Á mynd­ina vantar Grím. Aðrir aðilar á mynd­inni tengj­ast frétt­inni ekki að öðru leyti en að hafa spilað á skemmtun á vegum félags­ins.

Við­burð­ar­fyr­ir­tækið Basic House Effect hefur í ár og í fyrra staðið fyrir grunn­skóla­balli sem nefn­ist Sum­ar­gleðin. Ballið er ætlað nem­endum í 8., 9. og 10. bekk og er eitt stærsta grunn­skóla­ball lands­ins. Í ár fór ballið fram í Kaplakrika þann 11. júní.  

Í fréttum sem birtar voru um ballið og í miða­sölu var því haldið fram að allur ágóði af skemmt­un­inni rynni óskertur til ýmist Barna­spít­ala Hrings­ins eða Rauða kross­ins.

Hins vegar kann­ast eng­inn hjá hvorki Barna­spít­al­anum né Rauða kross­inum við við­burð­inn, fyr­ir­tækið eða ábyrgð­ar­menn þess, Grím Óla Geirsson eða Bjarna Hallgrím Bjarna­son.

Félagið lof­aði fyrst árið 2012 að gefa Barna­spít­ala Hrings­ins fé. Í sam­tali við Stundina segir Bjarni að tap hafi verið á skemmt­un­inni í fyrra og því hafi ekk­ert verið gefið til góð­gerða­mála.

„Ég kann­ast ekki við neitt sem heitir Sum­ar­gleðin.“

Rauði krossinn kannast ekki við neitt

Stundin ræddi við bæði starfs­mann og nefnd­ar­mann góð­gerða­fé­lags Hrings­ins og hvor­ugur kann­að­ist við Sum­ar­gleð­ina eða þá Grím eða Bjarna. 

Stundin ræddi auk þess við Jóhönnu Guð­bjarts­dóttur hjá Barna­spít­al­anum. „Ég kann­ast ekki við neitt sem heitir Sum­ar­gleðin. Þessir aðilar hafa aldrei gefið neitt. Þetta er eitt­hvað skrítið. Þetta er það sem við höfum alltaf verið hrædd um, að fólk sé að mis­nota logoið,“ segir Jóhanna.  

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár