Stundin opnar vefútgáfu

Daglegar fréttir. Áskrift­ar­fyr­ir­komu­lag byggt á New York Times.

Stundin opnar vefútgáfu
Stofn­endur Stund­ar­innar Jón Ingi Stef­áns­son hönn­uður, Ingi­björg Dögg Kjart­ans­dóttir rit­stjóri, Jón Trausti Reyn­is­son, rit­stjóri og fram­kvæmda­stjóri, og Heiða B. Heiðars aug­lýs­inga­stjóri. Mynd: Kristinn Magnússon

Í dag kemur Stundin fyrst út sem frétta­mið­ill á vefnum. Fram­vegis verður dag­legur frétta­flutn­ingur á Stund­inni.

Vefurinn kemur út í sinni fyrstu mynd í dag og verður bæði útlit hans, virkni og efni þróað jafnt og þétt lengra í fram­hald­inu.

Áskriftarfyrirkomulag byggt á New York Times

Þeir sem hafa áskrift að Stund­inni hafa ótak­mark­aðan aðgang að vef­síð­unni. Áskrift­ar­fyr­ir­komu­lagið er að hluta til byggt á fyr­ir­mynd banda­ríska blaðs­ins New York Times, þar sem vef­ur­inn er öllum opinn upp að ákveðnum fjölda flett­inga. Stundin.is er þannig að hluta opin öllum og þeir sem skrá sig inn fá sex heilar greinar á mán­uði. Þegar flett­inga­kvóta er náð er ein­ungis fremsti hluti greinar opinn og les­endur fá boð um að greiða hóf­legt áskrift­ar­gjald.. Vef­á­skrift ein og sér kostar 750 kr. á mán­uði, en prentá­skrift ásamt vef­á­skrift 950 kr. Þar sem þú ert með áskrift að Stund­inni hefur þú ótak­mark­aðan aðgang að efni vefs­ins.

Hér eru leið­bein­ingar um hvernig kaupa má áskrift:

1. Þú ferð inn á www.stundin.is/askrift

2. Þú fyllir inn í glugg­ana þær upp­lýs­ingar sem beðið er um

3. Þú velur áskrift­ar­leið­ina sem við á. Þeir sem hafa þegar keypt áskrift geta virkjað áskrift­ina með því að velja við­eig­andi áskrift­ar­leið í flipaflett­inum.

Ef upp koma vand­ræði er unnt að senda skila­boð á askrift@stundin.is eða kvartanir@stundin.is.

Aðdragandi Stundarinnar

Stundin var stofnuð í febr­úar 2015 með til­stuðlan hóp­fjár­mögn­unar. Verk­efnið sló met á hóp­fjár­mögn­un­ar­vefnum Karolina Fund og hafði aldrei áður feng­ist jafnhá upp­hæð, jafn­hratt og frá jafn­mörgum styrkj­endum.

Stofn­enda­hópur Stund­ar­innar sam­an­stóð af fjöl­miðla­fólki sem hafði hætt störfum á DV eftir fjand­sam­lega yfir­töku á miðl­inum vegna umfjall­ana. Til­gang­ur­inn með stofnun Stund­ar­innar var að skapa val­kost um nýjan og óháðan fjöl­miðil.

Ein leiðin til þess að binda saman hags­muni mið­ils­ins og almenn­ings var að sækja stofnfé til dreifðs hóps. Önnur leið var að leggja höf­uð­á­herslu á tekjur frá almenn­ingi. Með því að treysta á áskrift­ar­tekjur er Stundin fyrst og fremst háð almenn­ingi.

Markmið

Við stofnun og mótun Stund­ar­innar var tekið mið af fjórum for­sendum:

1. Við tökum öll ákvarðanir byggt á þeim upplýsingum sem við fáum.

-Á hverjum degi tökum við ákvarð­anir sem borg­arar, starfs­fólk, for­eldrar, neyt­endur og fleira. Við byggjum á eigin dóm­greind, en upp­lýs­ingar bæði móta þessa dóm­greind og eru hrá­efni hennar.

2. Þessar ákvarðanir eru undirstaða farsældar samfélagsins og okkar sjálfra.

- Hæfni, geta og dóm­greind mynda saman „mannauð“, sem er birt­inga­mynd réttra ákvarð­ana. Velmegun og far­sæld þjóða ræðst ekki síður af mannauði en nátt­úru­auð­lindum. Auð­lindir fara ekki endi­lega saman við háar þjóð­ar­tekjur, að hluta til vegna óupp­lýstra ákvarð­ana og marg­feld­is­á­hrifa þeirra.

3. Vald hefur áhrif á þær upplýsingar sem okkur eru veittar.

-Hags­muna­að­ilar geta og hafa eign­ast fjöl­miðla og mótað þá eftir eigin höfði. Kaup og nið­ur­greiðslur á fjöl­miðla­út­gáfu getur flokk­ast undir mark­aðs­kostnað fyrir öfl­uga hags­muna­að­ila. Eigendur fjöl­miðla geta ráðið til starfa stjórn­endur á rit­stjórnum sem hafa gild­is­mat, bak­grunn og skoð­anir sem hæfa ytri hags­munum þeirra, með þeim afleið­ingum að umfjall­anir fær­ast í átt að þeirra hags­munum.

4. Þetta vald hefur ekki alltaf sömu hagsmuni og við sem einstaklingar eða heild.

- Hags­munir þeirra sem ráða yfir nægi­legu fjár­magni og kjósa að kaupa upp fjöl­miðla geta gengið gegn almanna­hags­munum.


 

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár