Stundin fær flestar tilnefningar til blaðamannaverðlauna Íslands

Ingi Freyr Vil­hjálms­son, Ingi­björg Dögg Kjart­ans­dóttir og Reynir Trausta­son til­nefnd til verð­launa fyrir hönd Stund­ar­innar.

Stundin fær flestar tilnefningar til blaðamannaverðlauna Íslands

Stundin fær flestar til­nefn­ingar til blaða­manna­verð­launa Íslands af öllum miðlum lands­ins fyrir síð­asta ár. Tilkynnt var um til­nefn­ing­arnar um mið­nætti.

Alls fær Stundin þrjár til­nefn­ingar í flokk­unum: Rann­sókn­ar­blaða­mennska árs­ins, blaða­manna­verð­laun árs­ins og við­tal árs­ins.

Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir
Ingi­björg Dögg Kjart­ans­dóttir Rit­stjóri Stund­ar­innar.

Frétta­blaðið, Morg­un­blaðið og RÚV fá tvær til­nefn­ingar hver mið­ill, Kjarninn eina, Vísir.is eina og DV eina.

Ingi­björg Dögg Kjart­ans­dóttir, annar rit­stjóra Stund­ar­innar, er til­nefnd til blaða­manna­verð­launa árs­ins fyrir „fjöl­breytta og mik­il­væga umfjöllun um kyn­bundið ofbeldi“. 

Í rök­stuðn­ingi dóm­nefndar segir: „Í fjöl­mörgum greinum gaf Ingi­björg þolendum kyn­bund­ins ofbeldis og kyn­ferð­is­brota vett­vang að tjá sig um sína upp­lifun af brot­unum, upp­lýsti um hve víða í sam­fé­lag­inu þessi brot er að finna og hversu erfitt er fyrir fórn­ar­lömb að leita rétt­lætis vegna þeirra.“

Ingi Freyr Vilhjálmsson
Ingi Freyr Vil­hjálms­son Til­nefndur fyrir rann­sókn­ar­blaða­mennsku árs­ins.

Ingi Freyr Vil­hjálms­son blaða­maður er til­nefndur fyrir „afhjúp­andi umfjöllun sína um fjár­hags­leg tengsl Illuga Gunn­ars­sonar mennta­mála­ráð­herra og eign­ar­halds­fé­lags hans OG Capital við fyr­ir­tækið Orka Energy.“ Í rök­stuðn­ingi segir: „Í ljós komu veru­legir hags­muna­á­rekstrar vegna sam­starfs­samn­ings íslenskra og kín­verskra stjórn­valda í orku­málum sem Orka Energy var aðili að og ráð­herr­ann rit­aði undir.“

 

Reynir Traustason
Reynir Trausta­son Til­nefndur fyrir við­tal árs­ins.

Reynir Trausta­son er til­nefndur í flokknum við­tal árs­ins fyrir við­tal við Ástu Kristínu Andr­és­dóttur hjúkr­un­ar­fræð­ing sem sökuð var um mann­dráp af gáleysi. Í rök­stuðn­ingi segir: „Reynir gerir lífs­hlaupi Ástu Krist­ínar góð skil og fær við­mæl­anda til að tala mjög opin­skátt um hvernig þessi atburður hefur markað líf hennar, hvernig hún hefur barist við kvíða og reynt að við­halda lífs­vilj­anum.“

Fyrri tilnefningar blaðamanna Stundarinnar 

Þetta er í fjórða sinn sem þau Ingi­björg Dögg og Ingi Freyr eru til­nefnd til blaða­manna­verð­launa. Ingi­björg Dögg var einnig til­nefnd í fyrra, þá í flokknum umfjöllun árs­ins fyrir greina­röð um alzheimer og heila­bilun. Árið 2011 var hún til­nefnd sem blaða­maður árs­ins fyrir fjöl­breytt og mik­il­væg skrif um sam­fé­lags­vanda­mál, svo sem ofbeldi, einkum er vörð­uðu hlut­skipti kvenna. Árið 2010 vann hún til verð­launa í flokki rann­sókn­ar­blaða­mennsku „fyrir áleitna og vand­aða umfjöllun um kyn­ferð­is­brota­mál og for­ystu um skrif á þessu sviði, svo sem um bisk­ups­málið og önnur meint kyn­ferð­is­brot innan kirkju og trú­fé­laga.“

Ingi Freyr var til­nefndur sem blaða­maður árs­ins 2012 fyrir umfjöllun um fisk­veiðar Íslend­inga við Afríku og ýmis skrif um við­skipti og upp­gjör í kjöl­far  hruns­ins.  Áður hafði hann tvisvar verið til­nefndur fyrir rann­sókn­ar­blaða­mennsku. Annars vegar fyrir umfangs­mik­inn og ágengan frétta­flutn­ing af upp­gjöri og afleið­ingum fjár­mála­hruns­ins árið 2011. Hins vegar fyrir skrif um kúlu­lán og fjöl­margar afhjúp­andi fréttir um við­skipta­hætti auð­manna og stór­fyr­ir­tækja í aðdrag­anda og eft­ir­mála hruns­ins árið 2009. 

Reynir Trausta­son var verð­laun­aður fyrir umfjöllun árs­ins 2003, fyrir frum­kvæði og heild­stæða umfjöllun um rann­sókn Sam­keppn­is­stofn­unar á sam­ráði olíu­fé­lag­anna. Sama ár var hann einnig til­nefndur til blaða­manna­verð­launa árs­ins. 

Þá unnu þeir Jóhann Páll Jóhanns­son og Jón Bjarki Magn­ús­son, sem nú skrifa fyrir Stundina, til verð­launa árin 2013 og 2014. Fyrri verð­launin fengu þeir í flokki rann­sókn­ar­blaða­mennsku fyrir upp­lýsandi og athygl­is­verða umfjöllun um hæl­is­leit­endur og fyrir að fylgja því vel eftir hvort mögu­lega hefði verið brotið á rétt­indum ein­stak­linga í hópi þeirra. Árið 2014 fengu þeir síðan blaða­manna­verð­laun árs­ins fyrir umfjöllun um leka­málið. Í rök­stuðn­ingi dóm­nefndar sagði að þeir hefðu sýnt „ein­stakt þol­gæði við að upp­lýsa allar hliðar leka­máls­ins svo­kall­aða og [fylgt] mál­inu vel eftir, þrátt fyrir mikið mót­læti og and­stöðu ráð­herra , sem end­aði með afsögn hans.“

Tilnefningarnar í heild:

Viðtal ársins 2015

Helgi Bjarna­son, Morg­un­blað­inu. Fyrir við­tal við Þröst Leó Gunn­ars­son um sjó­slysið úti af Aðalvík í júlí í fyrra­sumar. Þresti Leó tókst fyrir snar­ræði að bjarga tveimur félögum sínum en sá þriðji fórst. Björg­un­ar­tæki brugð­ust ger­sam­lega og fær Helgi ein­stæðar lýs­ingar Þrastar Leó á hug­ar­á­standi 
þre­menn­ing­anna á meðan þeir biðu björg­unar. 

Reynir Trausta­son, Stund­inni. Fyrir við­tal við Ástu Kristínu Andr­és­dóttur hjúkr­un­ar­fræð­ing sem sökuð var um mann­dráp af gáleysi. Reynir gerir lífs­hlaupi Ástu Krist­ínar góð skil og fær við­mæl­anda til að tala mjög opin­skátt um hvernig þessi atburður hefur markað líf hennar, hvernig hún hefur barist við kvíða og reynt að við­halda lífs­vilj­anum. 

Snærós Sindra­dóttir, Frétta­blað­inu. Fyrir við­tal við Einar Zeppelin Hild­ar­son, ungan mann, sem á að baki afar erf­iða lífs­reynslu. Einar segir á ein­lægan hátt frá örlaga­deg­inum þegar mamma hans varð systur hans að bana en sjálfur slapp hann slas­aður frá hild­ar­leiknum. Snærós segir áhrifa­mikla sögu manns og dregur fram mikla þraut­seigju, góða mann­kosti og kær­leika.

Umfjöllun ársins 2015

Gísli Ein­ars­son, Ingólfur Bjarni Sig­fús­son, Karl Sig­tryggs­son og Ragnar Santos, frétta­stofu RÚV.  Fyrir umfjöllun um flótta­manna­vand­ann sem geisar í Evrópu. Með inn­lendu sjón­ar­horni á björg­un­ar­störf áhafnar Týs á Mið­jarð­ar­hafi og við­tölum við fórn­ar­lömb á ver­gangi í Ung­verja­landi og Líbanon fengu lands­menn mik­ils­verða inn­sýn inn í erf­iða ferð flótta­manna í leit að öryggi. 

Helgi Seljan, Kastljós RÚV.  Fyrir umfjöllun um nauðg­anir, áreitni og ofbeldi gagn­vart þroska­höml­uðum konum. Ljóstrað var upp um sinnu­leysi yfir­valda sem héldu ekki hlífi­skildi yfir kon­unum, settu ekki reglur um umönnun þeirra og huns­uðu kvart­anir. Af virð­ingu og með áhrifa­ríkum hætti var saga kvenn­anna sögð og sjón­ar­miði þeirra komið á fram­færi.

Krist­jana Björg Guð­brands­dóttir og Viktoría Her­manns­dóttir, Frétta­blað­inu. Fyrir ítar­lega umfjöllun um man­sal þar sem fjallað var um umfang og ein­kenni mansals á Íslandi og bresti í aðgerð­ar­á­ætlun stjórn­valda. Frétta­skýr­inga­röð þeirra varp­aði ljósi á vax­andi mansals­vanda hér á landi þar sem ein­stak­lingar eru mis­not­aðir í kyn­ferð­is­legum til­gangi, til nauð­ung­ar­vinnu eða í glæp­a­starf­semi.

Blaðamannaverðlaun ársins 2015

Hörður Ægisson, DV. Fyrir skýra og greina­góða umfjöllun um slitabú föllnu bank­ana, vog­un­ar­sjóð­ina sem þá keyptu sem og útgöngu­samn­inga þeirra við íslensk stjórn­völd. Hörður hefur upp­lýst stöðu mála af djúpri þekk­ingu og nákvæmni í máli sem hefur rík áhrif á þjóð­ar­búið.

Ingi­björg Kjart­ans­dóttir, Stund­inni. Fyrir fjöl­breytta og mik­il­væga umfjöllun um kyn­bundið ofbeldi. Í fjöl­mörgum greinum gaf Ingi­björg þolendum kyn­bund­ins ofbeldis og kyn­ferð­is­brota vett­vang að tjá sig um sína upp­lifun af brot­unum, upp­lýsti um hve víða í sam­fé­lag­inu þessi brot er að finna og hversu erfitt er fyrir fórn­ar­lömb að leita rétt­lætis vegna þeirra

Sunna Ósk Loga­dóttir, Morg­un­blaðið/mbl.is. Fyrir áhrifa­mikla umfjöllun um heim­sókn sína til Líbanon þar sem hún ræddi við sýr­lenska flótta­menn og starfs­menn flótta­manna­búða til að kynna sér aðstæður þeirra flótta­manna sem veitt hafði verið hæli á Íslandi.


Rannsóknarblaðamennska ársins 2015

Ingi Freyr Vil­hjálms­son, Stund­inni. Fyrir afhjúp­andi umfjöllun sína um fjár­hags­leg tengsl Illuga Gunn­ars­sonar mennta­mála­ráð­herra og eign­ar­halds­fé­lags hans OG Capital við fyr­ir­tækið Orka Energy. Í ljós komu veru­legir hags­muna­á­rekstrar vegna sam­starfs­samn­ings íslenskra og kín­verskra stjórn­valda í orku­málum sem Orka Energy var aðili að og ráð­herr­ann rit­aði undir. 

Kolbeinn Tumi Daðason  365 miðlum. Fyrir  upp­ljóstrandi umfjöllun um óánægju lög­reglu­manna með störf lög­reglu­full­trúa í fíkni­efna­deild og alvar­legar ásak­anir sam­starfs­fé­laga hans vegna gruns um tengsl hans við fíkni­efna­heim­inn. Upphaf umfjöll­un­ar­innar var tál­beitu­að­gerð við Hótel Frón sem  fór út um þúfur. 

Magnús Hall­dórs­son, Kjarn­anum. Fyrir ítar­lega umfjöllun um sölu á hlutum Lands­bank­ans í Borgun í lok­uðu sölu­ferli og vís­bend­ingar um að hlutur Lands­bank­ans hafi verið seldur á und­ir­verði m.a. í ljósi aðgreiðslna og því hafi ekki verið gætt að hags­munum eig­enda sem er almenn­ingur í land­inu.

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár