Stjórnmálaleiðtogar fá mun hærri laun á Íslandi

For­sæt­is­ráð­herra og for­seti Íslands fá hærri laun heldur en fólk í sam­bæri­legum stöðum í mörgum fjöl­menn­ustu löndum heims og stórum ríkjum Evrópu.

Æðsta stjórn ríkisins
Æðsta stjórn rík­is­ins Bjarni Bene­dikts­son fær stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð frá Guðna Th. Jóhann­essyni for­seta. Báðir eru þeir með mjög há laun miðað við sömu stöður í stærri ríkjum. Mynd: Pressphotos

For­sæt­is­ráð­herra Íslands er með hærri laun en for­sæt­is­ráð­herrar flestra ríkja Evrópu og mun hærri laun en leið­togar stærstu og fjöl­menn­ustu ríkja heims. 

Þótt jafnan sé því haldið fram að jöfn­uður sé einna mestur á Íslandi af ríkjum heims end­ur­spegl­ast það ekki jafn vel í mun­inum á kjörum íslenska for­sæt­is­ráð­herr­ans og með­al­mann­eskj­unnar.

Hærri laun en leiðtogar stórþjóða

Íslenski for­sæt­is­ráð­herr­ann er með 8% hærri laun en for­sæt­is­ráð­herra Japans, þar sem 126 millj­ónir manna búa. Hérlendi for­sæt­is­ráð­herr­ann hefur hlut­verki að gegna gagn­vart 0,27% af þeim mann­fjölda sem jap­anski for­sæt­is­ráð­herr­ann Shinzo Abe starfar fyrir. Hlut­falls­legur kostn­aður Íslend­inga af for­sæt­is­ráð­herra sínum er því um 374 sinnum meiri en Japana. 

Leið­togar rík­is­stjórna í Frakk­landi og Bret­landi fá einnig tölu­vert lægri laun en for­sæt­is­ráð­herrar Íslands, þótt á Íslandi búi ein­ungis um 0,5% af íbúa­fjölda ríkj­anna tveggja. For­sæt­is­ráð­herra Belgíu, þar sem rúmar 11 millj­ónir manna búa, fær aðeins tæpar 1,4 millj­ónir króna í laun, eða rúm­lega 600 þús­und krónur minna en sá íslenski.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár