Sprengjuárás í Hafnarfirði: Snyrti- og flúrstofa í ljósum logum

Heima­til­bú­inni sprengju var kastað inn um glugga á snyrti- og flúr­stofu við Dals­hraun í Hafn­ar­firði í nótt. Lög­reglan vill ekk­ert tjá sig um málið en sam­kvæmt heim­ildum Stund­ar­innar hafði eig­endum fyr­ir­tæk­is­ins verið hótað und­an­farnar vikur. Stofan hafði aðeins verið opin í einn dag.

Sprengjuárás í Hafnarfirði: Snyrti- og flúrstofa í ljósum logum
Stór sprengja á stærð við hand­bolta Lög­reglan leitar þriggja manna vegna sprengju­árás­ar­innar í Hafn­ar­firði. Mynd: CCTV

Heima­til­bú­inni sprengju, lík­ust þeim sem sjá má í teikni­myndum, var kastað inn um glugga á snyrti- og flúr­stof­unni Immortal Art í Dals­hrauni rétt fyrir klukkan tvö í nótt.

Allt ónýtt
Allt ónýtt Sprengjan olli miklum elds­voða sem eyði­lagði alla inn­an­stokks­muni fyr­ir­tæk­is­ins.

Stundin hefur undir höndum myndefni úr örygg­is­mynda­vél stað­ar­ins en þar sést sprengjan á gólfi snyrti­stof­unnar nokkrum and­ar­tökum áður en hún sprakk. Spreng­ingin olli mik­illi eyði­legg­ingu en sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá slökkvi­liði höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins eru allir inn­an­stokks­munir ónýtir.

Samkvæmt heim­ildum Stund­ar­innar hafði eig­endum fyr­ir­tæk­is­ins verið hótað und­an­farnar vikur. Þá herma sömu heim­ildir að árásin í nótt og hót­an­irnar und­an­farnar vikur hafi verið til þess að drepa sam­keppni á flúr­mark­að­inum og að lög­reglan leiti nú að minnsta kosti þriggja manna sem taldir eru bera ábyrgð á sprengju­árásinni í nótt.

Við fjölfarinn veg
Við fjöl­far­inn veg Immortal Art opn­aði í Dals­hrauni en veg­ur­inn er fjöl­far­inn og því ekki ólík­legt að ein­hver hafi séð þá sem köst­uðu sprengj­unni í nótt.

Opnuðu í gær

Það sem vekur athygli er að snyrti- og flúr­stofan Immortal Art hafði aðeins verið í rekstri í einn dag. Hún opn­aði í gær og af því til­efni var vænt­an­legum við­skipta­vinum boðið að taka þátt í gjafa­bréfa­leik á nýstofn­aðri Facebook-síðu snyrti­stof­unnar. Rúmum átta klukku­stundum eftir að þessi nýja snyrti- og flúr­stofa lok­aði eftir fyrsta dag­inn var sprengju kastað inn um rúð­una. Vitni sem skoð­aði vett­vang­inn í Dals­hrauni í morgun sagði að elds­voð­inn hefði einnig valdið skemmdum í öðru bili í hús­næð­inu.

Stundin hafði sam­band við lög­regl­una á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sem vildi ekk­ert tjá sig um málið.

Uppfært 13:04

Stundin ræddi við nokkra sér­fræð­inga í flug­eldum, meðal ann­ars hjá hjálp­ar­sveitum lands­ins, en þeim bar saman um að hin „heima­til­búna“ sprengja hafi í raun og veru verið „tívolí­bomba“ - öflug sprengja sem er bannað að selja hér á landi en er víða notuð í stórum flug­elda­sýn­ingum. Á mynd­inni sem fylgir frétt­inni sést í svo­kall­aðan „tunnu­þráð“ sem ein­kennir flug­elda af þess­ari stærð­argráðu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár