Þorpið skartaði sínu fegursta. Íbúarnir voru margir hverjir í sparifötunum. Það var spenna í loftinu. Nýtt og glæsilegt skip var á leiðinni alla leið frá Noregi. Og það var vitað að lestar þess voru hlaðnar útvarpstækjum, plötuspilurum og límonaði. Svo birtist glæsifleyið á Önundarfirði og sigldi, fánum prýtt, fyrir oddann og lagðist mjúklega að bryggju. Kaupfélagsstjórinn var auðvitað mættur. Hann hafði látið smíða skipið. Presturinn var þarna, héraðslæknirinn og auðvitað hreppstjórinn. Það voru haldnar hástemmdar ræður um þá gæfu þorpsins að hafa eignast svo stórt og fullkomið fiskiskip. Það var líka ástæða til bjartsýni. Það voru innan við tvö ár frá því þorpið hafði orðið fyrir því reiðarslagi að tveir bátar fórust með dags millibili. Sjö ungir sjómenn létu lífið
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.














































Athugasemdir