Skipasmíðastöðin sem smíðar nýjan Herjólf notar vinnuþræla

Íslensk stjórn­völd hafa samið við pólsku skipa­smíða­stöð­ina Crist S.A. um smíði á nýrri Vest­manna­eyja­ferju en skipa­smíða­stöðin hefur notað vinnu­þræla frá Norður-Kóreu. Halldór Ó. Sig­urðs­son, for­stjóri Rík­is­kaupa, segir Rík­is­kaup og Vega­gerð­ina ekki hafa hald­bærar heim­ildir um að Crist hafi orðið upp­víst að brotum sem geta fallið undir skil­grein­ingu á man­sali. Sigurður Áss Grét­ars­son, fram­kvæmda­stjóri sigl­inga­sviðs Vega­gerð­ar­innar, ætlar að krefj­ast skýr­inga af pólska fyr­ir­tæk­inu.

Skipasmíðastöðin sem smíðar nýjan Herjólf notar vinnuþræla
Frá und­ir­skrift samn­ings­ins Hildur Sólveig Sig­urð­ar­dóttir, Radoslaw Pallach og Romuald Teperski, full­trúar pólsku skipa­smíða­stöðv­ar­innar, og Hreinn Har­ald­son vega­mála­stjóri. Mynd: Vegagerðin

Pólska skipa­smíða­stöðin Crist S.A., sem falið hefur verið að smíða nýja Vest­manna­eyja­ferju fyrir íslensk stjórn­völd, var staðin að því á síð­asta ári að nota vinnu­þræla frá Norður-Kóreu. Lifa þeir við bágar aðstæður og þurfa að greiða stóran hluta launa sinna til ein­ræð­is­stjórnar Kim Jong-un. Vega­mála­stjóri og full­trúar pólsku skipa­smíða­stöðv­ar­innar Crist S.A. skrif­uðu undir samn­ing um smíði nýrrar ferju í gær og verður hún afhent sum­arið 2018. „Rík­is­kaup og Vega­gerðin hafa engar hald­bærar heim­ildir um að pólska fyr­ir­tækið Crist hafi orðið upp­víst að brotum sem geta fallið undir skil­grein­ingu á man­sali,“ segir Halldór Sig­urðs­son, for­stjóri Rík­is­kaupa, í svari til Stund­ar­innar. Sigurður Áss Grét­ars­son, fram­kvæmda­stjóri sigl­inga­sviðs Vega­gerð­ar­innar, hefur óskað eftir að Crist verði kraf­ist skýr­ingu á þessu og hvernig þetta sam­ræm­ist yfir­lýs­ingu þeirra til íslenskra stjórn­valda. „Auk þess hef ég farið fram að þeir verði spurðir hversu margir frá Norður Kóreu vinni hjá þeim,“ segir hann í svari til Stund­ar­innar. 

Sviplegt …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár