Sólheimasafn „bókstaflega að hruni komið, það er fúið og lekur, það er vond lykt í því“

Bóka­safnið í Sól­heimum er athvarf barna og eldra fólks í hverf­inu. Húsið er látið grotna niður og starfs­maður safns­ins segir sárt að sjá ástandið. Í rign­ing­ar­veðr­inu um dag­inn fruss­að­ist vatn inn yfir afgreiðslu­borð­inu. Bækur hafa skemmst vegna ástands­ins.

Sólheimasafn „bókstaflega að hruni komið, það er fúið og lekur, það er vond lykt í því“

Sól­heima­safnið er falið á milli tveggja blokka í Sól­heimum. Bóka­safnið er athvarf gamla fólks­ins og barn­anna í hverf­inu, grið­ar­staður þar sem allir geta komið og fengið skjól, fræðslu og afþr­ey­ingu. Safnið er engu að síður í nið­ur­níðslu, eins og sjá má á með­fylgj­andi myndum og ástandið er svo slæmt að starfs­mönnum þykir nóg um.

„Þetta er Borg­ar­bóka­safnið í Sól­heimum, vinnu­stað­ur­inn minn en jafn­framt bóka­safnið í hverf­inu mínu. Mér þykir voða­lega vænt um þetta litla heim­il­is­lega hverf­is­safn sem á sér langa sögu. Þess vegna er svo sárt að sjá ástandið á hús­inu, það er bók­staf­lega að hruni komið, það er fúið og lekur, það er vond lykt í því og hefur ekki verið málað í alltof mörg ár. Borgin reynir að slökkva elda með því að fylla í göt hér og þar, en það dugir ekki til,“ skrif­aði Einar Björn Magn­ús­son, starfs­maður bóka­safns­ins, á Facebook.

Fatan stendur á gólfinu 

Þykir vænt um safnið
Þykir vænt um safnið Einar notar Sól­heima­safn sjálfur með fjöl­skyldu sinni.

Stundin náði tali af Einari sem sagði að starfs­menn hefðu barist fyrir úrbótum í mörg ár og væru komnir að þol­mörkum. „Við erum alveg búin að fá nóg. Ég finn það sjálfur hvað ég er orð­inn þreyttur á þessu þegar það fruss­ast yfir starfs­fólk vatn þegar það stendur í afgreiðsl­unni.

Í rign­ing­ar­veðr­inu um dag­inn þurftum við að breiða yfir pen­inga­kass­ana og færa okkur frá því vatnið fruss­að­ist inn,“ útskýrir Einar en núna stendur fata undir mesta lek­anum og hand­klæði hefur verið breitt á gólfið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár