Sími Birnu gæti hafa farið í átt að Heiðmörk: „Það er slökkt af mannavöldum“

Einhver tók ákvörðun um að slökkva á síma Birnu Brjáns­dóttur þar sem hann virt­ist hugs­an­lega vera á leið í Heiðmörk. Lög­reglan leitar Birnu Brjáns­dóttur í Hafn­ar­firði og í Reykja­vík. Hún segir vís­bend­ingar á Facebook um að henni hafi liðið illa, en hún hafi „svartan húmor“.

Sími Birnu gæti hafa farið í átt að Heiðmörk: „Það er slökkt af mannavöldum“
Birna Brjáns­dóttir Týndist aðfar­arnótt laug­ar­dags. Mynd: Facebook / Lögreglan

„Það er slökkt af manna­völdum,“ sagði Grímur Grímsson rann­sókn­ar­lög­reglu­maður á blaða­manna­fundi um hvarf Birnu Brjáns­dóttur rétt í þessu. „Slökkt á sím­anum. Manúalt slökkt á sím­anum,“ segir Grímur.

Spurður hvort ein­hver hafi verið með henni sem hafi viljað slökkva á síma hennar svarar Grímur: „Það er góð spurn­ing.“

Grun­sam­legt hvarf Birnu er rann­sakað út frá því að hún hafi horfið í Reykja­vík eða Hafn­ar­firði, allt eftir því hvort hún hafi verið aðskilin frá síma sínum eða ekki. Hún sást á örygg­is­mynda­vélum á Lauga­vegi, en virð­ist ekki hafa farið lengra en Laugaveg 31. Leitað er að öku­manni á Rauðum Kia Rio sem ók á Lauga­veg­inum sömu mín­útu, eða klukkan 05:25.

Lög­reglan hefur birt mynd­band af ferðum Birnu mín­út­urnar áður en hún hvarf.

Sími hennar greind­ist á far­síma­sendum í eða við Hafn­ar­fjörð um nótt­ina. „Síminn gæti hafa farið áleiðis upp í Heiðmörk,“ sagði for­svars­maður slysa­varn­ar­fé­lags­ins Lands­bjargar á fund­inum. Ein sviðs­myndin er að sími Birnu hafi ferð­ast svo­kall­aða flótta­manna­leið frá Reykja­nes­braut að Víf­ils­stöðum og inn í Hafn­ar­fjörð. 

Birna Brjáns­dóttirEr rétt rúm­lega tví­tug.

Birna er 170 sentí­metrar á hæð, um 70 kíló, ljós­rauð­hærð með slegið hár. Hún er til­tölu­lega nýhætt í sam­bandi og er talið ólík­legt að hún hafi ætlað sér að ganga heim til sín, þar sem hún býr í Breið­holt­inu. 

Að sögn móður Birnu hafði hún nýlega skráð sig að nýju á sam­fé­lags­mið­il­inn Tinder, sem not­aður er til að koma á kynnum milli fólks. Hún hafi áður kynnst ferða­mönnum í gegnum Tinder og farið í ferð inn­an­lands.

Vísbendingar um vanlíðan

Lög­reglan hefur fengið leyfi fjöl­skyld­unnar til að skrá sig inn á Facebook-aðgang Birnu, en engin virkni var þar eftir síð­asta fimmtu­dag. 

„Það eru vís­bend­ingar um að henni hafi ekki liðið vel. Fjöl­skyldan segir okkur að hún sé með dálítið svartan húmor. Það sem kemur fram í þessu skyni sé því marki brennt að vera svartur húmor.“

Lög­reglan hefur engar kenn­ingar til að vinna eftir og leitar frek­ari upp­lýs­inga. „Það er ekk­ert sem bendir til þess að þetta hafi verið sjálfs­víg en í svona rann­sókn er ekk­ert úti­lokað,“ segir Grímur.

Af blaða­manna­fund­inum í dagSigríður Björk Guð­jóns­dóttir ásamt full­trúa Lands­bjargar.

Skilaboð til íbúa í miðborginni

„Það er verið að leggja áherslu á það núna að fara í leit í nágrenni Hafn­ar­fjarðar. Annað sem ég vildi vilja nefnna ogg biðja ykkur að koma á fram­færi við íbúa í mið­borg­inni er sú að lands­björg fór í leit og leit­aði á svæði í 300 metra rad­íus frá þeim stað sem Birna sást síðar,“ segir Grímur.

 Hann biðlar til fólks í mið­borg­inni, sér­stak­lega fólks sem býr á svæð­inu milli Lækj­ar­götu, Skóla­vörðu­stígs, Bar­ón­stígs og Sæbrautar. „Við viljum biðja íbúa sem eiga eignir á þessu svæði að kanna hvort Birna leyn­ist í skúma­skotum, kjöll­urum.“

Unnið er eftir mörgum mis­mun­andi kenn­ingum. Ein þeirra er að Birna hafi beygt niður Vatns­stíg. Þyrla Land­helg­is­gæsl­unnar verður send af stað í leit­ina í Hafn­ar­firði með hita­mynda­vélar. 

„Það er kannski ein­feldn­ings­legt af minni hálfu, en mig langar að halda áfram leit­inni með það fyrir augum að við finnum hana á lífi,“ sagði Grímur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Hvarf Birnu Brjánsdóttur

Lögmaður Nikolaj skilur ekki af hverju hann hefur enn stöðu sakbornings
Fréttir

Lögmaður Nikolaj skilur ekki af hverju hann hefur enn stöðu sak­born­ings

Unn­steinn Örn Elvars­son, lög­fræð­ingur Nikolaj Olsen, segir að skjól­stæð­ingur sinn hafi verið him­in­lif­andi þegar hann fékk þær fréttir að hann yrði lát­inn laus úr gæslu­varð­haldi en ein­angr­unin hefur reynt veru­lega á hann. Ekki verður farið fram á far­bann yfir honum en hann hefur verið stað­fastur í frá­sögn sinni, lýst yfir sak­leysi og reynt að upp­lýsa málið eftir bestu getu.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár