Silicor Materials sver af sér Bjarna Ben

Davíð Stef­áns­son segir í tölvu­pósti til Stund­ar­innar að Bjarni hafi aldrei átt fund með full­trúum félags­ins.

Silicor Materials sver af sér Bjarna Ben

Vegna greinar sem birt­ist á vef­síð­unni vald.org, þar sem tengsl Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála­ráð­herra og for­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins við félagið „Elkem Silicor Mater­i­als“ voru til umfjöll­unar, sendi Davíð Stef­áns­son, verk­efn­is­stjóri Silicor Mater­i­als á Íslandi, neð­an­greinda árétt­ingu á Stundina. 

Síð­ast­lið­inn föstu­dag greindi Stundin frá því að hluti þeirra ásak­ana sem birt­ust á vef­síð­unni vald.org voru réttar. Þar má helst nefna þá staf­hæf­ingu að Bjarni sé enn umboðs­að­ili Elkem á Íslandi sam­kvæmt fyr­ir­tækja­skrá. Að sögn Teits Björns Ein­ars­sonar, aðstoð­ar­manns Bjarna, var ástæðan sú að skrán­ingu hafi ekki verið breytt frá árinu 2003 þegar Bjarni tók að sér að sér sem lög­fræð­ingur að stofna banka­reikn­ing fyrir Elkem á Íslandi. Raunar benti Teitur á það sama þá og Davíð nú, Elkem og Silicor Mater­i­als eru tvö mis­mun­andi fyr­ir­tæki.

Yfirlýsing Silicor Materials á Íslandi í heild sinni:

„Hér er verið að rugla saman tveimur alls óskyldum fyr­ir­tækjum. Annað er járn­blendi­verk­smiðja Elkem á Grund­ar­tanga og hitt er fyr­ir­tækið Silicor Mater­i­als sem er að und­ir­búa bygg­ingu sól­ar­kís­il­verk­smiðju á Grund­ar­tanga. Stað­setn­ingin á Grund­ar­tanga er það eina sem þessi fyr­ir­tæki eiga sam­eig­in­legt. Alls engin stjórn­un­ar­tengsl eða eign­ar­tengsl eru á milli félag­anna. Enn síður eru nokkur tengsl á milli Silicor Mater­i­als og Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála­ráð­herra. Mér vit­an­lega hafa full­trúar Silicor Mater­i­als aldrei átt fund með Bjarna Bene­dikts­syni, hvað þá að hann hafi verið eða sé lög­maður félags­ins.“

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár