Sigmundur: „Við sjáum til, bless bless“

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra sagði Bjarna Bene­dikts­son á fundi þeirra í morgun að hann myndi boða kosn­ingar ef sjálf­stæð­is­menn treystu sér ekki til að styðja rík­is­stjórn­ina. Hann ráð­færði sig ekki við þing­flokk sinn fyrir yfir­lýs­ing­una.

Sigmundur: „Við sjáum til, bless bless“
Forð­að­ist spurn­ingar Sig­mundur stökk undan hljóð­nemunum inn í bíl með orð­unum: „Bless, bless!“ Mynd: Kristinn Magnússon

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra hótar Sjálf­stæð­is­flokknum kosn­ingum í Facebook-færslu sinni, án þess þó að hafa ráð­fært sig við þing­flokk sinn.

Sig­mundur kom af fundi með for­seta Íslands á Bessa­stöðum nú í hádeg­inu. „Við vorum að spjalla. Við sjáum til með þetta allt saman. Bless bless,“ sagði hann eftir fund­inn.

Ólafur Ragnar greindi hins vegar frétta­mönnum frá fund­inum. Kom þá í ljós að hann hafði neitað Sigmundi um heim­ild til að boða kosn­ingar.

Hótaði Bjarna þingrofi

Sig­mundur hitti Bjarna Bene­dikts­son, for­mann Sjálf­stæð­is­flokks­ins, á fundi í morgun og svar­aði áhyggjum hans af stöðu rík­is­stjórn­ar­innar með þeim orðum að hann myndi boða kosn­ingar ef sjálf­stæð­is­menn treystu sér ekki til að styðja rík­is­stjórn­ina. 

„Jafn­framt fór ég yfir það með for­manni Sjálf­stæð­is­flokks­ins að ef þing­menn flokks­ins treystu sér ekki til að styðja rík­is­stjórn­ina við að ljúka sam­eig­in­legum verk­efnum okkar myndi ég rjúfa þing og boða til kosn­inga hið fyrsta,“ segir Sig­mundur í færslu sinni um fund­inn.

Samkvæmt orðum Karls Garð­ars­sonar, þing­manns Fram­sókn­ar­flokks­ins, í hádeg­is­fréttum RÚV, ráð­færði Sig­mundur sig ekki við þing­flokk Fram­sókn­ar­flokks­ins áður en hann sendi út yfir­lýs­ing­una. „Hann hefði kannski átt að segja þing­flokknum frá þessu fyrst,“ sagði Karl og kveðst myndu hafa gert þetta öðru­vísi.

Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sagði: „Það ber okkur eng­inn til hlýðni“. Hann sagði að í ljós kæmi hvað tæki við.

Sigmundur kemur af fundi
Sig­mundur kemur af fundi Hann vildi ekki ræða við frétta­menn.

Svarar fyrir ákvarðanir sínar með ánægju

Sig­mundur fer yfir stjórn­mála­feril sinn í færslu sinni fyrir stundu.

„Hvort sem litið er til stjórn­mála­bar­áttu und­an­far­inna ára og alls þess sem þar hefur gengið á, bæði opin­ber­lega og inn­byrðis, eða til per­sónu­legra mál­efna fjöl­skyldu minnar get ég óhræddur, óhikað og með ánægju svarað fyrir verk mín og ákvarð­anir. Þegar ég ákvað að hefja þátt­töku í stjórn­málum gerði ég það vegna þess að ég hafði ákveðna sýn á hvað væri nauð­syn­legt að gera til að koma íslensku sam­fé­lagi á réttan kjöl og gera því kleift að nýta þau óþrjót­andi tæki­færi sem þjóðin býr yfir, sam­fé­lag­inu öllu til heilla. Það hefur gengið betur en jafn­vel ég þorði að vona að vinna að þeirri fram­tíð­ar­sýn og henni mun ég fylgja áfram á meðan mér gefst tæki­færi til.“

Þegar allt lék í lyndi
Þegar allt lék í lyndi Sig­mundur Davíð og Bjarni kynntu nýja rík­is­stjórn á Laug­ar­vatni 22. maí 2013.

Bjarni ræddi um „ráðstafanir“

Bæði Heimdallur, félag sjálf­stæð­is­manna í Reykja­vík, og sjálf­stæð­is­menn á Akureyri, hafa farið fram á afsögn Sig­mundar Davíðs. Þá hafa fram­sókn­ar­menn á Akureyri farið fram á „taf­ar­lausa afsögn“ for­manns síns úr emb­ætti for­sæt­is­ráð­herra. 

Vanga­veltur hafa verið um hvort Sig­mundur stígi úr stóli for­sæt­is­ráð­herra, án þess þó að rík­is­stjórn­ar­sam­starf­inu ljúki. Hann virð­ist hins vegar ekki vera til­bú­inn til þess og hefur neitað að segja af sér.

Bjarni Bene­dikts­son sagði í sam­tali við fréttir Sjón­varps­ins í gær að staða Sig­mundar væri óheppi­leg. „Það er auð­vitað alltaf óheppi­legt þegar menn þurfa að bæta í skýr­ingar eftir að máli vindur fram.“ 

Bjarni neit­aði aðspurður að lýsa stuðn­ingi við Sigmund. „Svona spurn­ingum ætla ég ekk­ert að svara vegna þess að þannig ger­ast nú ekki hlut­irnir þar sem ég er í sam­starfi, að menn fái stuðn­ings­yf­ir­lýs­ingar eða van­trausts­yf­ir­lýs­ingar í fjöl­miðlum. Við þurfum ein­fald­lega að vinna þetta eins og almenni­legt fólk, setj­ast niður yfir stöð­una og meta það hvort við teljum okkur hafa nægi­legan stuðn­ing til þess að sinna þeim verk­efnum sem okkur voru falin og sett á dag­skrá. Hvað er til bragðs að taka, hvort rík­is­stjórnin treystir sér til þess að halda áfram, eftir atvikum eftir ein­hverjar ráð­staf­anir.“

Facebook-færsla Sigmundar í heild sinni:

Nú í morgun átti ég mjög góðan fund með Bjarna Bene­dikts­syni, for­manni Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Við ræddum árangur rík­is­stjórn­ar­innar og mik­il­vægi þess að klára þau stóru verk­efni sem und­ir­búin hafa verið síð­ustu miss­eri og ár. Mörg þeirra eru gríð­ar­lega mik­il­væg fyrir íslenskt sam­fé­lag. Meðal ann­ars þarf að ljúka afnámi fjár­magns­hafta, end­ur­skipu­leggja fjár­mála­kerfið svo að það virki í þágu almenn­ings, ljúka því sem rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir höfðu sam­þykkt um afnám verð­trygg­ingar og inn­leiða umfangs­miklar úrbætur í hús­næð­is­málum. Mörgum þess­ara verk­efna hefði ég viljað sjá vinda hraðar fram en enn er þó nægur tími til að klára þau, sé vilj­inn fyrir hendi.

Jafn­framt fór ég yfir það með for­manni Sjálf­stæð­is­flokks­ins að ef þing­menn flokks­ins treystu sér ekki til að styðja rík­is­stjórn­ina við að ljúka sam­eig­in­legum verk­efnum okkar myndi ég rjúfa þing og boða til kosn­inga hið fyrsta.

Ég er stoltur af verkum mínum í stjórn­málum til þessa og óhræddur við að leggja þau í dóm kjós­enda hvort sem það verður gert nú eða síðar. Ég er líka stoltur af eig­in­konu minni og þeim heið­ar­leika og fórn­fýsi sem hún hefur ætíð sýnt.

Hvort sem litið er til stjórn­mála­bar­áttu und­an­far­inna ára og alls þess sem þar hefur gengið á, bæði opin­ber­lega og inn­byrðis, eða til per­sónu­legra mál­efna fjöl­skyldu minnar get ég óhræddur, óhikað og með ánægju svarað fyrir verk mín og ákvarð­anir. Þegar ég ákvað að hefja þátt­töku í stjórn­málum gerði ég það vegna þess að ég hafði ákveðna sýn á hvað væri nauð­syn­legt að gera til að koma íslensku sam­fé­lagi á réttan kjöl og gera því kleift að nýta þau óþrjót­andi tæki­færi sem þjóðin býr yfir, sam­fé­lag­inu öllu til heilla. Það hefur gengið betur en jafn­vel ég þorði að vona að vinna að þeirri fram­tíð­ar­sýn og henni mun ég fylgja áfram á meðan mér gefst tæki­færi til.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár