Sigmundur rauk út – öskrað á Eygló

Eftir tap í for­manns­kjöri yfir­gaf Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son flokks­þing Fram­sókn­ar­manna í snatri án þess að taka í hendur sam­flokks­manns, eins og for­mað­ur­inn Sigurður Ingi Jóhanns­son bað um. Gerð voru köll að Eygló Harð­ar­dóttur í ræðu hennar í kjöl­farið.

Sigmundur rauk út – öskrað á Eygló
Eygló heldur ræðu Gestur á flokks­þing­inu öskr­aði á Eygló að hún væri „ömur­leg“. Mynd:

Um það leyti sem Sigurður Ingi Jóhanns­son, nýkjör­inn for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, bað flokks­menn á flokks­þingi Fram­sóknar að hald­ast í hendur og láta „strauma fram­sókn­ar­mennsk­unnar“ streyma um sal­inn í Háskóla­bíói fyrir skemmstu, svo þeir færu þaðan sem sam­stíga fjöl­skylda, yfir­gaf Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, frá­far­andi for­maður, sal­inn í nokkrum flýti. Á eftir honum hélt Jóhannes Þór Skúlason, aðstoð­ar­maður hans.

Aðstoð­ar­mað­ur­innJóhannes Þór Skúlason, aðstoð­ar­maður Sig­mundar Davíðs, leit­aði hans eftir tapið í for­manns­kjör­inu.

Sig­mundur Davíð sagði við frétta­menn að hann hefði ekki búist við því að tapa kjör­inu um for­mennsku í Fram­sókn­ar­flokknum. 

„Við sjáum bara til,“ svar­aði hann, þegar hann var spurður hvað hann myndi gera í kjöl­farið.Sig­mundur tók því ekki þátt í hópefli því sem Sigurður Ingi lagði til í sig­ur­ræðu sinni. Þess í stað hélt hann áleiðis að Hótel Sögu og fór þangað inn. Á eftir honum stefndi Jóhannes Þór, aðstoð­ar­maður hans, sem hafði þó misst sjónar á honum fyrir utan Háskóla­bíó. „Veit ein­hver hvert hús­bóndi minn fór?“ spurði Jóhannes fyrir utan.

Augna­blik taps­insSig­mundur Davíð Gunn­laugs­son og eig­in­kona hans, Anna Sig­ur­laug Páls­dóttir, risu ekki á fætur þegar hinn nýi for­maður, Sigurður Ingi Jóhanns­son, hvatti fram­sókn­ar­menn til að taka höndum saman. Faðir Sig­mundar, Gunn­laugur Sig­munds­son, fyrr­ver­andi þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, horfir á son sinn tveimur sæta­röðum aftar.

 

Hróp gerð að Eygló

Strax í kjöl­far þess að Sigurður Ingi Jóhanns­son hafði sigrað Sigmund Davíð Gunn­laugs­son í for­manns­kjör­inu var til­kynnt að fram­bjóð­endur til vara­for­mennsku myndu halda ræður. Eygló Harð­ar­dóttir, einn þriggja fram­bjóð­enda, sem studdi Sigurð Inga til for­mennsku, bað um að fá að halda ræðu á undan Lilju Dögg Alfreðs­dóttur, sem studdi Sigmund Davíð. 

„Eins og oft vill verða þegar ein­stak­lingar takast á um emb­ætti, þá eigum við til að láta til­finn­ing­arnar bera rök­hyggj­una ofur­liði. Það er því mjög eðli­legt að hér inni sé fólk sem finnur nú fyrir reiði og von­brigðum,“ sagði Eygló í ræðu sinni. Skömmu síðar hróp­aði flokks­þings­gestur yfir sal­inn að Eygló: „Kjaftæði, þú ert ömur­leg!“

Samkvæmt frá­sögn þing­flokks­for­manns­ins Ásmundar Einars Daða­sonar gekk Eygló á eftir Sigmundi Davíð Gunn­laugs­syni á fundi fram­kvæmda­stjórnar flokks­ins í fyrra­dag eftir að Sig­mundur hafði slitið fund­inum ein­hliða og sýnt „ein­ræði“ og „hroka“ í umræðu um dag­skrá flokks­þings­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár