Sigmundur gagnrýninn í viðtali: Segir samstarf Evrópuríkja „leysast upp í vitleysu“

For­sæt­is­ráð­herra segir að sam­starf Evr­ópu­þjóð­anna í flótta­manna­málum sé „allt að leys­ast upp í vit­leysu“ og að hug­myndin um Schengen-sam­starfið sé „fallin“. Hann sakar kaup­menn um frekju og segir borg­ar­yf­ir­völd vera í „þrjóskukasti“.

Sigmundur gagnrýninn í viðtali: Segir samstarf Evrópuríkja „leysast upp í vitleysu“
For­sæt­is­ráð­herra Mynd: Getty

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra lýsir því yfir í við­tali í Bylgj­unni í morgun að Schengen-sam­starfið um frjáls og vega­bréfa­laus ferða­lög innan Evrópska efna­hags­svæð­is­ins sé komið að falli.

Í við­tal­inu í þætt­inum Í bítið gagn­rýndi Sig­mundur Seðla­bank­ann, Lands­bank­ann, kaup­menn, stjórn­ar­and­stöð­una, borg­ar­yf­ir­völd, þýsk yfir­völd og Evr­ópu­sam­bands­ríki og sagði Evr­ópu­sam­bandið vera „í vit­leysu“ í flótta­manna­málum.

Hugmyndin um Schengen er „fallin“

Sig­mundur var spurður út í Schengen-sam­starfið um landamæra­lausa Evrópu, sem lönd á Evrópska efna­hags­svæð­inu eru aðilar að. Hann sagði Schengen vera komið að falli.

„Já, mér sýn­ist það í raun og veru vera að ger­ast sjálf­krafa, hvort sem mönnum líkar betur eða verr. Það eru alltaf að koma nýjar og nýjar fréttir af ein­hverjum stöðum þar sem menn eru að setja upp eft­ir­lit á landa­mærum, og núna síð­ast verið að stoppa umferð milli Dan­merkur og Þýska­lands að miklu leyti. Þetta vekur mjög stórar spurn­ingar um Schengen, þegar menn eru hættir svo mikið sem að skrá fólk inn á svæðið, þá er það í raun­inni hug­myndin sem það gekk út á, þessi ytri mörk. Þá er hún fallin,“ segir Sig­mundur. 

Hann líkur flótta­manna­vand­anum við keppn­is­í­þrótt, þar sem klappað er fyrir flótta­fólk­inu eftir lífs­hættu­lega för með glæpa­gengjum þegar það kemur á „enda­markið“.

„... þar sem er tekið á móti fólki eins og það sé að vinna í ein­hverri keppni“

„Þannig að það verður mjög erfitt að sjá hvernig Schengen fyr­ir­komu­lagið á að lifa þetta af nema menn nái þeim mun meiri sam­stöðu um aðgerðir og mark­mið, en það bólar nú lítið á sam­stöðu í Evr­ópu­sam­band­inu um þessi mál núna. Og í raun dap­ur­legt að sjá hvernig menn eru að vinna í sitt hvora átt­ina og þetta er ein­hvern veg­inn allt að leys­ast upp í vit­leysu. Þetta er vanda­mál af þeirri stærð­argráðu, og það er erfitt og flókið, að það verður ekki leyst nema Evr­ópu­löndin komi sér saman um hvernig eigi að tækla þetta. Það er spurn­ing hvort það er eðli­legt fyr­ir­komu­lag, hvort það sé búið til eitt­hvað enda­mark, eins og Þýska­land, þar sem er tekið á móti fólki eins og það sé að vinna í ein­hverri keppni, en á sama tíma leyfa þessi lönd, Þýska­land og fleiri lönd, fólki ekki að koma með eðli­legum hætti. Ekki að fljúga til Þýska­lands með flug­vél. Ekki að stoppa á flug­vell­inum. Ekki að koma að landa­mær­unum á ytra svæð­inu, ytri mörkum Schengen, nema í raun með ólög­legum hætti. Þannig að skila­boðin eru þessi: Þið verðið að leita á náðir glæpa­sam­taka og reyna að láta smygla ykkur inn með lífs­hættu­legum hætti. Ef ykkur tekst það, þá er tekið á móti ykkur og klappað þegar þið komið í land. En ef menn fara ekki í slíka hættu­för, þá eru menn bara stopp­aðir og sendir aftur. Þetta eru mjög hættu­leg skila­boð,“ segir Sig­mundur Davíð. 

Í gær kynnti hins vegar Jean Claude Juncker, for­seti fram­kvæmda­stjórnar Evr­ópu­sam­bands­ins, til­lögu um sam­eig­in­lega áætlun Evr­ópu­ríkja um mót­töku á 160 þús­und flótta­mönnum. Ríki Schengen tækju þannig öll þátt í mót­töku flótta­manna. Samkvæmt Schengen-sam­starf­inu yrði Ísland skyldugt til að taka þátt í áætlun Evr­ópu­sam­bands­ins um mót­töku flótta­manna. 

„Frekja“ hjá kaupmönnum

Sig­mundur gagn­rýndi einnig kaup­menn harð­lega fyrir hug­myndir þeirra um lækkun tolla á mat­væli, en ákveðið hefur verið að tollar verða afnumdir á fatn­aði og fleiri vörum, en ekki mat­vælum.

„Þessi við­brögð stór­kaup­manna, sem þessi sam­tök hétu nú áður, ef ég man rétt. Þessi við­brögð núna þegar verið er að ráð­ast í þessi sögu­legu skref í afnámi tolla, sem setur Ísland nán­ast í sér­flokk í þessum efnum, að menn skuli ekki svo mikið sem segja: Þetta var frá­bært, tími til kom­inn. Heldur byrja strax að fussa og sveia yfir því af hverju menn séu ekki að afnema tolla af mat­vöru. Þetta þykja mér vera furðu­leg við­brögð, sér­stak­lega í ljósi þess að í mat­væl­unum er þetta allt ann­ars eðlis. Þar snýst þetta um að við náum að halda úti þeirri mat­væla­fram­leiðslu sem við höfum við­haldið hér á Íslandi. Þar erum við í raun að verja fram­lög stjórn­valda, sem við getum kallað neyt­enda­fram­lög, vegna þess að þau snú­ast um að við náum að fram­leiða mat á sam­keppn­is­hæfu verði hér á Íslandi. Sem okkur hefur tek­ist.

„Við erum með lægra mat­væla­verð heldur en á öðrum Norð­ur­lönd­unum.“

Við erum með lægra mat­væla­verð heldur en á öðrum Norð­ur­lönd­unum. Við erum kannski í með­al­tali Evr­ópu­sam­bands­ins í mat­væla­verði. Og sér­stak­lega, ef við lítum til inn­lendra mat­væla, þá eru þau að styrkja stöðu okkar í þess­ari sam­keppni. Og við höfum líka séð það að erlendis, þar sem menn hafa fellt niður ákveðna tolla, þá hefur það ekki skilað sér til neyt­enda í lægra verði. Það hefur bara skilað sér í því að versl­unin nær að taka meira til sín. Þannig að mér finnst þetta í raun­inni frekja að ganga fram með þessum hætti eftir að hafa ham­ast á inn­lendri mat­væla­fram­leiðslu, eins og menn hafa gert, þrátt fyrir að hún hafi haldið aftur af verð­bólg­unni á und­an­förnum árum, að þegar það er verið að afnema tolla og vöru­gjöld af 1.600 vöru­flokkum, þá séu við­brögðin þau: Hva, af hverju eruð þið ekki að leyfa okkur að leggja meira á mat­inn?“

„Hva, af hverju eruð þið ekki að leyfa okkur að leggja meira á mat­inn?“

Sig­mundur Davíð segir að verið sé að semja við „meðal ann­ars vini okkar í Evr­ópu­sam­band­inu“ um gagn­kvæma nið­ur­fell­ingu eða lækkun tolla. „Þannig að við getum flutt út skyrið og fleira sem þeir sækj­ast eftir, lamba­kjöt eða annað, þeir geta þá flutt meira af sínum vörum hingað.“

Jóhannes Gunn­ars­son, for­maður Neyt­enda­sam­tak­anna, segir að ef mat­væla­verð á Íslandi sé jafn­lágt og Sig­mundur Davíð segir ætti inn­lend mat­væla­fram­leiðsla að þola sam­keppni sem fæst með lækkun tolla á mat­væli.

„Ég minni á að nú þegar er meiri­hluti mat­væla sem seld eru hér á landi eru inn­flutt. Hér er for­sæt­is­ráð­herra fyrst og fremst að tala um land­bún­að­ar­vörur. Ef verð er jafn hag­stætt og for­sæt­is­ráð­herra heldur fram, hvaða ótti er þá varð­andi það að lækka tolla?“ spyr Jóhannes. „Hann talar jafn­framt um frekju í þeim sem kalla eftir lægri tollum á inn­fluttar land­bún­að­ar­vörur. Hvað á þá segja um þá sem ætl­ast til að neyt­endur borgi hærra verð vegna þeirra ofur­tolla sem lagðir eru á inn­fluttu vör­una? Er það ekki frekja í þeim að ætl­ast til að neyt­endur borgi það sem kostar að halda úti land­bún­aði þegar það er ekki þjóð­hags­lega hag­kvæmt? Stjórn­mála­menn gáfu lítið fyrir það að þegar við gengum í EFTA lagð­ist fata- og hús­gagna­fram­leiðsla að mestu af. Það var í lagi þar sem þessi fram­leiðsla var í raun ekki sam­keppn­is­hæf þegar toll­vernd lauk. En eflaust er meira hlustað á for­ystu­menn bænda þegar kemur að inn­flutn­ings­vernd­inni og þá er það bölvuð frekja í þeim sem vilja lægra mat­væla­verð að mati for­sæt­is­ráð­herra,“ segir Jóhannes.

„Vaxtaokur“ á Íslandi

Sig­mundur, sem lof­aði því fyrir kosn­ingar að afnema verð­trygg­ing­una, lýsir yfir óánægju sinni í við­tal­inu við Bylgjuna vegna „vaxta­ok­urs“. Hann segir að frum­vörp um afnám verð­trygg­ingar verði vænt­an­lega lögð fram á næsta þingi. „Hins vegar breytir það ekki því að vaxta­okrið á land­inu er sjálf­stætt vanda­mál. Það er búið að hanna kerfi sem er bein­línis til þess gert að rík­is­stjórn og stjórn­mála­menn séu ekki að skipta sér af vöxtum. En menn geta farið að velta því fyrir sér hvort það sé rétta fyr­ir­komu­lag fyrir Ísland miðað við þá vaxta­stefnu sem hér hefur verið rekin. Maður hefði viljað sjá rík­is­bank­ann, að minnsta kosti á meðan hann er banki í þjóð­ar­eigu, leggja áherslu á að fara á undan með góðu for­dæmi í þjón­ustu við við­skipta­vini. Keyra niður verð frekar en hitt. Og ég von­ast til að sjá þá þróun. Hins vegar ráð­ast vextir þess banka og ann­arra ekki ein­göngu af þeirra vaxta­mun, eða þeirra verð­lagn­ingu á pen­ingum ef svo má segja, heldur líka af vaxta­stefnu Seðla­bank­ans og fleiru. En já, maður hefði viljað sjá Lands­bank­ann ganga lengra í því að draga hina bank­ana með sér í því efni.“

Forsætisráðherra gagnrýnir fleiri

Í við­tal­inu gagn­rýndi Sig­mundur Davíð einnig borg­ar­yf­ir­völd, stjórn­ar­and­stöð­una og fleiri. Hann sagði borg­ar­yf­ir­völd hafa ætlað sér í „þrjóskukasti“ að hóta að „stoppa fram­kvæmdir, stoppa að hægt sé að nýta lóð­irnar í eitt­hvað annað“ ef rædd yrði hug­mynd um að nýr Land­spít­ali yrði á öðrum stað en þegar hefur verið ákveð­inn. Sig­mundur er andsnú­inn stað­setn­ingu hans og vill „byggja bara nýjan og flottan spít­ala eftir öllum nútíma­kröfum og þörfum á stað sem er meira mið­svæðis, sem liggur betur við umferð, frekar en að byggja þetta borg­virki sem liggur þarna.“

Þá segir Sig­mundur að stjórn­ar­and­stöðu­þing­menn virð­ast gagn­rýna rík­is­stjórn­ina án þess að kynna sér málin. „Stundum finnst mér nú Árni Páll og sum þeirra þarna í stjórn­ar­and­stöðu bara ákveða fyr­ir­fram hvað þau ætla að segja og byrja svo að blaða í frum­varp­inu.“

Spurður út í lít­inn stuðn­ing við Fram­sókna­flokk­inn segir Sig­mundur að flokkur hans, sem mælist með um helm­ing þess fylgis í skoð­ana­könn­unum sem hann fékk í alþing­is­kosn­ing­unum, standi sögu­lega betur en hinir hefð­bundnu flokk­arnir í ljósi sögu síð­ustu ára.

„Það er nú þannig með alla þessa hefð­bundnu flokka. En við þó, ef við lítum til sög­unnar, með­al­fylgis síð­ustu 10 til 15 ára, í stað­inn fyrir að skoða stöð­una að und­an­förnu, þá stendur minn flokkur lang­best. Við erum með rúm­lega 100 pró­sent eða í kringum 100 pró­sent af með­al­fylgi. Á svip­uðum slóðum og við höfum verið í seinni tíð, á meðan aðrir flokkar eru í undir helm­ingi af sínu fylgi eða tvo þriðju.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár