Sigmundur Davíð: „Mun aldrei gefast upp fyrir skíthælunum sem hafa þráð að drepa mig“

Greint er frá því að for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, hafi sagt á fundi með flokks­mönnum í Skaga­firði, að eina leiðin til þess að „drepa sig“ væri ef Fram­sókn­ar­menn sjálfir myndu sjá um „aftök­una“.

Sigmundur Davíð: „Mun aldrei gefast upp fyrir skíthælunum sem hafa þráð að drepa mig“
Sig­mundur Davíð er stór­yrtur, ef eitt­hvað er að marka pistil á Press­unni Mynd: Kristinn Magnússon

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, upp­nefndi and­stæð­inga sína „skít­hæla“ á fundi með fram­sókn­ar­mönnum í Skaga­firði á dög­unum. Þetta kemur fram í dálknum Orðið á göt­unni á Eyjunni.is, sem er í eigu vinar Sig­mundar, sem ber heitið „Nótt hinna löngu hnífa?“

Þar kemur fram að Sig­mundur hafi verið spurður að því á fund­inum hvort hann hefði ekki hug­leitt að hætta og var svar hans:

„Ég mun aldrei gef­ast upp fyrir skít­hæl­unum sem hafa þráð að drepa mig“

„Ætli þetta sé ekki þrjóska. Ég mun aldrei gef­ast upp fyrir skít­hæl­unum sem hafa þráð að drepa mig frá því ég byrj­aði í póli­tík. Ef þeim tekst ætl­un­ar­verk sitt verður það aðeins með því að þeim tak­ist að fá fram­sókn­ar­menn sjálfa, fólkið sem ég hef verið að vinna fyrir, til að sjá um aftök­una.“

Formaður Fram­sókn­ar­fé­lags Skaga­fjarðar, Jóhannes Björn Þor­leifs­son, var á fund­inum. Þegar blaða­maður bar ummælin undir hann sagði hann: „Þetta var svo sem bara á lok­uðum fundi Fram­sókn­ar­manna þannig ég vil ekk­ert tjá mig neitt um það.“ Að því loknu skellti Jóhannes á.

Áður reynst sannspár um gjörðir Sigmundar

Aðal­eig­endi Eyjunnar er Björn Ingi Hrafns­son, náinn vinur Sig­mundar Davíðs. Í Orðinu á göt­unni var spáð fyrir um að Sig­mundur myndi sækj­ast eftir heim­ild til þess að rjúfa þing, sem hann gerði, en fyr­ir­ætl­anir hans fóru út um þúfur þegar Ólafur Ragnar Grímsson for­seti synj­aði honum um heim­ild­ina og hélt blaða­manna­fund um málið.

Sigmundur Davíð og Björn Ingi
Sig­mundur Davíð og Björn Ingi í afmæli Sig­mundar

Í slúð­ur­dálknum sagði þá frá þess­ari lausn á vanda Sig­mundar: „Einn mögu­leik­inn enn hefur verið nefndur. Hann er sá að for­sæt­is­ráð­herra sprengi allt í loft upp, rjúfi hrein­lega þing og boði til kosn­inga. Fari um landið og skýri sitt mál og ræði árangur rík­is­stjórn­ar­innar. Segi sem svo, að vita­skuld sé þetta mál erfitt og hafi valdið sér skaða, en hann vilji leggja öll spilin á borðið, hvetji aðra til að gera slíkt sama og leggi verk sín óhræddur í dóm kjós­enda.“

Aftökusveitin

Nokkrir aðilar innan Fram­sókn­ar­flokks­ins hafa gagn­rýnt for­mann­inn og kallað eftir nýrri for­ystu. Hösk­uldur Þór­halls­son sæk­ist til dæmis eftir fyrsta sæti í próf­kjöri Fram­sókn­ar­flokks­ins í Norð­aust­ur­kjör­dæmi fyrir kom­andi þing­kosn­ingar í haust. Hann hefur jafn­framt skorað á Sigurð Inga Jóhans­son, for­sæt­is­ráð­herra og vara­for­mann flokks­ins, til þess að gefa kost á sér til for­mennsku á kom­andi flokks­þingi. Sigurður sé „ótví­rætt best til þess fall­inn að leiða Fram­sókn­ar­flokk­inn í kom­andi þing­kosn­ingum,“ segir Hösk­uldur. 

Guðni Ágústs­son, fyrr­ver­andi for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, virð­ist einnig vilja sjá for­manns­skipti eiga sér stað. Í við­tali við Frétta­blaðið í vik­unni sagði hann eng­ann mann vera stærri en flokk­inn og að Panama hneyksli for­manns­ins gæti yfir­skyggt kosn­inga­bar­átt­una: „Nú finn ég að þó að mönnum þyki vænt um Sigmund Davíð, ótt­ast menn að þessi vondu mál sem hann hefur orðið fyrir muni yfir­skyggja alla kosn­inga­bar­áttu og skaða árangur flokks­ins í kosn­ing­unum.“

Guðni virð­ist svo vera með ákveð­inn mann í huga til þess að taka við for­manns­emb­ætt­inu: „Sigurður Ingi hefur staðið sig mjög vel. Hann tók við for­sæt­is­ráð­herra­starf­inu við mjög erf­iðar aðstæður í byrjun apríl en hefur staðið sig frá­bær­lega og haldið vel um málin síðan. Hann sættir öfl, hann friðar þing og róar það niður, hann hefur verið auð­mjúkur og getað talað við alla, þannig að hann gerir þetta eins og best verður gert.“

Svein­björn Eyj­ólfs­son, for­stöðu­maður nauta­stöðvar Bænda­sam­taka Íslands, hefur svo gefið kost á sér til emb­ætt­is for­manns Fram­sókn­ar­flokks­ins. Hann hefur jafn­framt sagt að ef ein­hver annar sem kalla mætti „öfl­ugri fram­bjóð­anda“ færi fram, „þá mun ég nú mjög fljót­lega draga mig í hlé.“  

Ekki náð­ist sam­band við Þorleif Karl Egg­erts­son, for­mann kjör­dæma­sam­bands fram­sókn­ar­manna í Norð­vest­ur­kjör­dæmi, Sigmund Davíð Gunn­laugs­son eða Jóhannes Þór Skúlason, aðstoð­ar­mann hans, við vinnslu frétt­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Alþingiskosningar 2016

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár