Þingmaður Framsóknarflokks: Sigmundur Davíð lagður í einelti

Karl Garð­ar­son, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, segir að nýju þjóð­fé­lags­um­ræð­unni sé stýrt af hópi örfárra manna. Í henni sé Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra lagður í ein­elti. Sig­mundur sagði að rof væri milli skynj­unar og veru­leika hjá þjóð­inni.

Þingmaður Framsóknarflokks: Sigmundur Davíð lagður í einelti
Ósáttur við umræðu um sig Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra hefur ítrekað kvartað undan umræð­unni um sig og Fram­sókn­ar­flokk­inn. Skömmu eftir að hann varð for­sæt­is­ráð­herra skrif­aði hann grein­ina „fyrstu mán­uðir loft­árása“ um gagn­rýn­ina. Mynd: AFP

Karl Garð­ar­son, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og fyrr­ver­andi frétta­maður, segir að á Íslandi eigi hin nýja þjóð­fé­lags­um­ræða sér stað á inter­net­inu sem „lýtur stjórn örfárra ein­stak­linga“. 

Að mati Karls er for­maður flokks hans, Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra, fórn­ar­lamb í þeirri umræðu. „Þessa dag­ana þykir Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra vera til­valið skot­mark. Þegar hann er ann­ars vegar er allt  leyfi­legt og oftar er ekki er ráð­ist að honum per­sónu­lega. Ráð­herrar þurfa vissu­lega að geta tekið gagn­rýni, en hún þarf að vera heið­ar­leg og mál­efna­leg.  Og hún á síst að öllu að bein­ast að per­sónu við­kom­andi,“ skrifar Karl um málið á bloggi sínu á Eyjunni.

Sigmundur fái ekki að verja sig

„Pólitískt einelti“
„Póli­tískt ein­elti“ Þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins hefur áhyggjur af nýju þjóð­fé­lags­um­ræð­unni, sem stýr­ist af fámennum hópi undir áhrifum hat­urs.

Karl vísar til þess að „í hinni nýju þjóð­fé­lags­um­ræðu“ séu „menn sak­aðir um að vera hör­undsárir“ ef þeir „reyna að bera hönd fyrir höfuð sér“. „Þannig er tryggt að hat­ursum­ræðan fái að halda áfram og lifi sjálf­stæðu lífi. Umræða er góð, gagn­rýni er góð en hatur og ein­elti er engum til góðs. Línan þar á milli getur verið fín – en hún er til. Við erum komin langt út fyrir það sem eðli­legt getur talist.“

„Við erum komin langt út fyrir það sem eðli­legt getur talist.“

Þá full­yrðir Karl að allt sé leyfi­legt í umræð­unni og að aldrei þurfi að færa sönnur á yfir­lýs­ingar. „Í hinni nýju þjóð­fé­lags­um­ræðu, sem fyrst og fremst á sér stað á inter­net­inu, er allt leyfi­legt. Það þarf aldrei að færa sönnur eða standa skil á hástemmdum yfir­lýs­ingum um nafn­greinda ein­stak­linga. Þetta er umræða þar sem ill­mælgi og hatur ræður ríkjum og póli­tískt ein­elti þykir sjálf­sagt.“

Gaf til kynna að skynjun þjóðarinnar væri röng

Sig­mundur Davíð upp­skar gagn­rýni um síð­ustu helgi þegar hann sagði að skýra mætti stuðn­ings­leysi og van­traust á rík­is­stjórn hans og stjórn­mála­mönnum almennt með „rofi milli raun­veru­leika og skynj­unar“ hjá þjóð­inni. Þá deildi hann þeirri skoðun Karls að þeir sem segðu hann ekki geta tekið gagn­rýni væru að bregð­ast óeðli­lega við til­svörum hans. 

„Það er gömul klisja, en reyndar ekki svo gömul. Það var eftir eitt­hvert skiptið sem að ég benti á rang­færslur hjá til­teknum flokki í stjórn­ar­and­stöð­unni, þá sendu þau út línu um það að nú skyldu allir tala um að ég væri svo hör­undsár, svo ég noti nú sama orð og þau not­uðu. Þannig að það birt­ist varla þing­maður frá Sam­fylk­ing­unni í fjöl­miðlum nokkra daga í röð öðru­vísi en að tala um að ég væri svo hör­undsár. Þetta er dæmi um svona póli­tíska taktík sem er mikið stunduð af ákveðnum aðilum, að setja út ein­hverja línu sem allir ham­ast á til að reyna að stimpla hana inn, þessi stimpl­un­ar­stjórn­mál eins og ég kalla það þangað til ég finn betra orð yfir það. Ég hins vegar hafði í því til­viki ekki gert annað en að leið­rétta rang­færslur,“ sagði hann.

Sigmundur oft gagnrýndur

Sig­mundur Davíð hefur ítrekað þurft að þola gagn­rýni í störfum sínum sem for­sæt­is­ráð­herra. Nýleg könnun MMR leiddi í ljós að ein­ungis 5% þjóð­ar­innar töldu hann vera í tengslum við þjóð­ina. Þá hefur fylgi Pírata mælst hærra en rík­is­stjórn­ar­flokk­anna og rík­is­stjórn­ar­innar sam­an­lagt, en það skýrist að hluta af áður­nefndu rofi milli raun­veru­leika og skynj­unar, að mati Sig­mundar. „Sérð það nátt­úr­lega á þessum fylgiskönn­unum og þessu ótrú­lega fylgi sem Píratar fá.“

Fyrir utan að vera gagn­rýndur fyrir yfir­lýs­ingar sínar um kjós­endur hefur Sig­mundur meðal ann­ars mátt þola mót­byr fyrir yfir­lýs­ingar um sál­grein­ingar og leyni­skýrslur kröfu­hafa á Íslandi, sníkju­dýr í erlendum mat­vælum sem breyta hegð­unum þjóða og fyrir end­ur­teknar yfir­lýs­ingar um gagn­rýnendur sína sem „nið­ur­rif­s­öfl“ sem hann segir að „aðhyllist öfga­kennda hug­mynda­fræði“. 

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár