Sigmundur Davíð birtir gögn um tölvuinnbrot

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son birtir skjal um að rík­is­lög­reglu­stjóri hafi hætt rann­sókn á meintu inn­broti í tölvu hans þegar hann var for­sæt­is­ráð­herra. Í bréf­inu kemur ekk­ert fram sem rennir stoðum undir grun Sig­mundar.

Sigmundur Davíð birtir gögn um tölvuinnbrot

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, birti rétt í þessu bréf frá Rík­is­lög­reglu­stjóra á Facebook-síðu sinni þar sem fram kemur að emb­ættið hafi hætt rann­sókn á meintu inn­broti í tölvu hans. Í bréf­inu kemur fram að rík­is­lög­reglu­stjóri hafi óskað eftir frek­ari upp­lýs­ingum um málið frá rekstr­ar­fé­lagi Stjórn­ar­ráðs­ins eftir að fjöl­miðlar fjöll­uðu um meint inn­brot í tölvu Sig­mundar Davíðs í síð­asta mán­uði, en Sig­mundur Davíð hélt því fram í ræðu á mið­stjórn­ar­fundi Fram­sókn­arflokks­ins að brot­ist hafi verið inn í tölvu hans. Sig­mundur var meðal ann­ars gagn­rýndur fyrir að hafa ekki til­kynnt lög­reglu um inn­brotið. Eftir að upp­lýs­ingar hafi borist frá rekstr­ar­fé­lagi Stjórn­ar­ráðs­ins og lagt hafði verið á þær mat var það hins vegar nið­ur­staða rík­is­lög­reglu­stjóra að hætta rann­sókn máls­ins.

Samhliða bréf­inu birtir Sig­mundur Davíð langa færslu þar sem hann segir meðal ann­ars að frá því að hann hóf þátt­töku í stjórn­málum hafi hópur fólks talið það hlut­verk sitt að reyna að gera flest það sem hann segir ótrú­verð­ugt, allt frá stórum til­lögum í efna­hags­málum að frá­sögn um hvers­dags­lega atburði. Í tengslum við yfir­lýs­ingar hans um meint inn­brot í tölvu hans segir Sig­mundur Davíð einn fjöl­miðil hafa fengið „mann til að halda því fram að það að brot­ist hefði verið inn í tölv­una líkt­ist vís­inda­skáld­sögu,“ og vísar í við­tal Morg­un­út­varps­ins á RÚV við Theódór Gíslason tölvu­ör­ygg­is­sér­fræð­ing, sem sagði meðal ann­ars að öll tölvu­inn­brot skilji eftir sig ummerki. 

Sig­mundur Davíð segir enn­fremur að hann hafi fengið gögn þar sem fram kemur að tölvu­póstur sem sendur var á hann, og lát­inn líta út fyrir að kæmi frá öðrum, hefði lík­lega inni­haldið þekkta tölvu­veiru að nafni „Poison Ivy backdoor“. „Um þá veiru segir í bréfi frá RFS: „Einkenni hennar eru þær að hún opnar bak­dyr inn á tölvu við­kom­andi fyrir aðgengi árás­ar­að­ila að tölv­unni“. Þótt veiran hafi ekki fund­ist í tölv­unni er tekið fram að „Algengt er með slíka veirur að árás­ar­að­il­inn hreinsar til eftir sjálfan sig að lok­inni aðgerð“. Atvikið var skráð sem örygg­is­at­vik hjá RFS,“ skrifar Sig­mundur Davíð, en birtir hins vegar ekki umrætt skjal þar sem þessar upp­lýs­ingar koma fram, heldur ein­ungis til­kynn­ingu rík­is­lög­reglu­stjóra um að hætta rann­sókn.

Til­kynn­ing Sig­mundar Davíðs í heild:

Frá því að ég hóf þátt­töku í stjórn­málum hefur hópur fólks talið það hlut­verk sitt að reyna að gera flest það sem ég segi ótrú­verð­ugt, allt frá stórum til­lögum í efna­hags­málum að frá­sögn um hvers­dags­lega atburði. 

Á mið­stjórn­ar­fundi um dag­inn gerði ég grín að því að menn hefðu meira að segja talið það til marks um „para­noju“ að telja að menn myndu gera ýmis­legt til að verja hags­muni sem voru álíka miklir og verð­mæti allra mann­virkja í Reykja­vík og hring­inn í kringum landið. Það var því skondin kald­hæðni að fréttir af fund­inum næstu daga á eftir snér­ust aðal­lega um atriði sem ég hafði nefnt í fram­hjá­hlaupi, þ.e. að brot­ist hefði verið inn í tölv­una mína, og leit­ast við að gera það ótrú­verð­ugt. Einn fjöl­mið­ill fékk mann til að halda því fram að það að brot­ist hefði verið inn í tölv­una líkt­ist vís­inda­skáld­sögu.

Í krafti upp­lýs­inga­laga hef ég nú fengið afhent gögn sem varða málið frá Rík­is­lög­reglu­stjóra. Þar birt­ast sam­skipti rík­is­lög­reglu­stjóra (RLS) og rekstr­ar­fé­lags Stjórn­ar­ráðs­ins (RFS) auk þess sem afrit voru í sumum til­vikum send til for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins og rík­is­sak­sókn­ara. 

Fram kemur að tölvu­póstur sem sendur var á mig og lát­inn líta út fyrir að hann hefði komið frá öðrum en þeim sem sendi hann hefði lík­lega inni­haldið þekkta tölvu­veiru að nafni „Poison Ivy backdoor“. Um þá veiru segir í bréfi frá RFS: „Einkenni hennar eru þær að hún opnar bak­dyr inn á tölvu við­kom­andi fyrir aðgengi árás­ar­að­ila að tölv­unni“. Þótt veiran hafi ekki fund­ist í tölv­unni er tekið fram að „Algengt er með slíka veirur að árás­ar­að­il­inn hreinsar til eftir sjálfan sig að lok­inni aðgerð“. Atvikið var skráð sem örygg­is­at­vik hjá RFS.

Embætti rík­is­lög­reglu­stjóra fylgdi mál­inu svo eftir og hafði sam­ráð um það við rík­is­sak­sókn­ara. Ástæða er til að taka fram að ekki er annað að sjá en að RLS hafi staðið mjög fag­lega að með­ferð þessa máls og það er í sam­ræmi við reynslu mína af emb­ætt­inu sem for­sætis- og dóms­mála­ráð­herra. 

Hér fylgir bréf frá rík­is­lög­reglu­stjóra sem lýsir nið­ur­stöð­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár