Sérkennilegar tilraunir Kínverja til að miðla áróðri á íslensku

Kínversk yfir­völd virð­ast hafa sér­stak­lega mik­inn áhuga á að auka umsvif sín hér á landi. Ein leiðin til þess er að koma á fót fjöl­miðlum á íslensku. Einn slíkur er nú þegar til stað­arm stað­settur í Finn­landi. Forseti Xinhua, rík­is­mið­ils Kínverja, fund­aði með Ólafi Ragnari Gríms­syni og stuttu síðar hóf frétta­rit­ari mið­ils­ins störf á Íslandi.

Sérkennilegar tilraunir Kínverja til að miðla áróðri á íslensku
For­set­inn hittir sendi­nefnd kín­versks fjöl­mið­ils Ólafur Ragnar Grímsson for­seti fund­aði með Li Congjun, for­seta Xinhua, í júní í fyrra. Stuttu síðar hóf frétta­rit­ari Xinhua störf á Íslandi.

Kínversk yfir­völd virð­ast hafa umtals­verðan áhuga á að koma á fót fjöl­miðli á íslensku sem talar þeirra máli. Sér­kenni­leg atburða­rás varð til þess að frétta­rit­ari frá kín­verska rík­is­fjöl­miðl­inum Xinhua fékk aðsetur hér á landi. Samkvæmt svörum Fjöl­miðla­nefndar við fyr­ir­spurn frá Stund­inni verður ekki betur séð en Xinhua hafi fyrst haft í hyggju að koma á fót úti­búi á Íslandi. Orðalag bréfa tals­manna Xinhua gæti þó hæg­lega valdið mis­skiln­ingi. Hvað sem því líður fékk rík­is­mið­ill­inn frétta­rit­ara hér á landi í sömu viku og Ólafur Ragnar Grímsson fund­aði með frétta­stjóra mið­ils­ins.

Þetta er þó ekki eina dæmið um til­raunir Kínverja til að koma á fót íslenskum fjöl­miðli en nú þegar eru fréttir fluttar á íslensku á áróð­ursmiðl­inum GBtimes.

Sérkennileg tilkoma fréttaritara

Áður hefur verið greint frá því að Xinhua, rík­is­fjöl­mið­ill Kína, hafi komið á fót stöðu frétta­rit­ara hér á landi í fyrra. Aðdrag­andi þess er þó ósögð saga. Í svari Fjöl­miðla­nefndar við fyr­ir­spurn Stund­ar­innar vegna áhuga Xinhua á Íslandi kemur fram að blaða­maður Xinhua hafi fyrst haft sam­band við Fjöl­miðla­nefnd árið 2013. Blaða­mað­ur­inn, Xie Binbin, hafi sent tölvu­póst í júní árið 2013 og óskað eftir upp­lýs­ingum um íslensk fjöl­miðla­lög. Fjöl­miðla­nefnd hafi orðið við þess­ari bón Binbin og bent honum sér­stak­lega á reglur og lög sem segja til um að fjöl­miðla­veitur þurfi að vera stað­settar hér á landi til að falla undir íslensk lög um fjöl­miðla, ábyrgð­ar­maður fjöl­mið­ils þurfi að hafa lög­heim­ili hér á landi og for­svars­maður fjöl­miðla­veitu þurfi að vera rík­is­borg­ari í EES ríki.

Ekkert heyrð­ist í Binbin aftur fyrr en í febr­úar árið eftir og þá lýsti hann áhuga Xinhua á að stofna Reykja­vík­ur­skrif­stofu og var mark­miðið að miðla efni um Ísland til Kína og og því ætti fjöl­mið­ill­inn að vera und­an­skil­inn fjöl­miðla­lögum. Binbin óskaði hins vegar eftir að Reykja­vík­ur­skrif­stofan yrði skráður sem lög­að­ili hér og var í fram­haldi vísað á utan­rík­is­ráðu­neytið.

Vildi samstarf við Fjölmiðlanefnd

Í apríl í fyrra barst Fjöl­miðla­nefnd tölvu­póstur frá fram­kvæmda­stjóra Evr­ópu­skrif­stofu Xinhua News, Wang Chaowen. Hann tjáði Fjöl­miðla­nefnd að hann væri á leið til lands­ins og vildi hitta fram­kvæmda­stjóra þar sem hann hefði áhuga á að ræða sam­starf við Fjöl­miðla­nefnd um „starfs­manna­skipti, frétta­vinnslu og þjálfun frétta­manna“. Chaowen var bent 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár