Séra Bjarni Karlsson kynferðislega áreittur sem barn

Fyrr­ver­andi sókn­ar­prestur tjáir sig um kyn­ferð­is­lega áreitni sem hann varð fyrir sem barn. Segir mik­il­vægt að muna að ofbeld­is­fólk er yfir­vegað og gott fólk í dag­legu líki en ekki stjórn­lausir brjál­æð­ingar.

Séra Bjarni Karlsson kynferðislega áreittur sem barn

Séra Bjarni Karlsson, fyrr­ver­andi sókn­ar­prestur í Lang­holts­kirkju, tjáir sig um kyn­ferð­is­lega áreitni sem hann varð fyrir sem barn í nýjasta þætti Fólks með Sirrý á sjón­varps­stöð­inni Hring­braut. Ger­and­inn var kona sem var honum mjög kær í æsku. Hann seg­ist hafa upp­götvað það þegar hann var 35 ára að þegar hann var barn hafi kona í hans lífi gengið yfir hans mörk kyn­ferð­is­lega. „Ég hafði grafið þetta inn, alveg múrað þetta inn, og gætt þess að muna þetta ekki,“ segir hann. 

„Ertu að tala um kyn­ferð­is­lega mis­notkun?“ spyr Sirrý í kjöl­farið. „Nei, ég er að tala um kyn­ferð­is­lega áreitni. Það sem myndi heita til­raun til tæl­ingar,“ svarar Bjarni. 

Við erum öll kynverur

Umræðu­efni þátt­ar­ins er sið­ferði kyn­lífs og tekur Hanna Björk Vil­hjálms­dóttir, kenn­ari í kynja­fræði, sömu­leiðis þátt í umræð­unni. Bjarni útskýrir meðal ann­ars ítar­lega hvers vegna kyn­ferð­is­legt ofbeldi hefur jafn alvar­legar afleið­ingar fyrir börn:

„Við fæð­umst öll sem kyn­verur.“

„Við fæð­umst öll sem kyn­verur. Litli afa­strák­ur­inn minn, Guð­mundur Bjarni, þegar hann sér afa sinn og teygir út faðm­inn og vill koma til mín, það er vegna þess að hann er kyn­vera. Hann elskar tengsl. Hann hefur í sér hæfi­leik­ann til þess að mynda sátt­mála um ást. Þessi hæfi­leiki verður ekki kyn­ferð­is­legur fyrr en við verðum kyn­þroska. Þá höfum við hæfi­leik­ann til þess að mynda kyn­ferð­is­legan sátt­mála um ást og lifa kyn­lífi. Ef brot­ist er inn í þennan hæfi­leika ein­stak­lings­ins áður en hann er orð­inn kyn­þroska þá er verið að skerða hæfni hans til þess að gera sátt­mála um kyn­ferð­is­lega ást þegar líður á ævina. Þess vegna er kyn­ferð­is­legt ofbeldi á börnum, og yfir höfuð það að full­orðið fólk nálgist börn kyn­ferð­is­lega, er svo alvar­legt og það skaðar svo mikið. Þetta varðar grunn­hæfni mann­eskj­unnar til þess að elska og treysta,“ segir Bjarni. 

Mikilvægt að skrímslavæða ekki gerendur

Bjarni segir einnig mik­il­vægt að hafa í huga að ger­endur kyn­ferð­is­of­beldis eru ekki ein­hverjir stjórn­lausir brjál­æð­ingar, heldur yfir­vegað og gott fólk í dag­legu lífi. 

„Kyn­ferð­is­legt ofbeldi gegn börnum er gríð­ar­lega útbreitt og miklu algeng­ara en við viljum horfast í augu við. Það er gríð­ar­lega mik­il­vægt að við áttum okkur á algengi þessa fyr­ir­bæris og þurfum að átta okkur á því að allt fólk sem beitir ofbeldi yfir höfuð, allt ofbeld­is­fólk, það er yfir­vegað og gott fólk í dag­legu lífi. Við erum ekki að tala um stjórn­lausa brjál­æð­inga. Það er svo mik­il­vægt að við gerum okkur grein fyrir því. Til dæmis í þessu til­viki, þessi aðili sem þarna gekk yfir mig í minni æsku, þetta er aðili sem var og er mér kær. Ég verð að horfast í augu við það og verð að vinna með það. Þannig er það. Langstærstur hluti af kyn­ferð­is­legu ofbeldi sem á sér stað ger­ist í nánum tengslum,“ segir hann. 

„Þessi aðili sem þarna gekk yfir mig í minni æsku, þetta er aðili sem var og er mér kær.“

Hanna Björk tekur undir þetta og segir mik­il­vægt að ger­endur séu ekki skrímsla­væddir. „Ef við skrímsla­væðum ger­endur þá trúum við aldrei að ein­hver tengdur okkur sé ger­andi. Þá segjum við brota­þola vera að ljúka,“ segir hún. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár