Vinir Hlínar yfirheyrðir í nauðgunarmáli

Hlín Ein­ars­dóttir segir að allir þeir sem hún hafi sagt frá meintri nauðgun hafi verið teknir í skýrslu­töku. Hún fer fram á að fá aðgang að tölvu­póstað­gangi sínum hjá Vef­pressuni. Þar á meðal er tölvu­póstur sem hún sendi Birni Inga Hrafns­syni, hennar fyrr­ver­andi sam­býl­is­manni og útgef­anda DV og Pressunnar, um meinta nauðgun.

Vinir Hlínar yfirheyrðir í nauðgunarmáli
Hlín Ein­ars­dóttir Á ýmsu hefur gengið í lífi rit­stjór­ans fyrr­ver­andi und­an­farnar vikur. Hún hefur verið kærð fyrir fjár­kúgun og kærði sjálf nauðgun. Mynd: Kristinn Magnússon

Hlín Ein­ars­dóttir, sem reyndi að kúga fé út úr for­sæt­is­ráð­herra, segir að vinir hennar sem hún hafi tjáð um meinta nauðgun hafi verið teknir í skýrslu­töku hjá lög­reglu. „Ég sagði vinum mínum frá nauðg­un­inni dag­inn eftir að þetta gerð­ist. Það er búið að taka skýrslur af þeim,“ segir Hlín í sam­tali við Stundina. Samkvæmt heim­ildum Stund­ar­innar hefur Hlín fengið aðgang að hluta af tölvu­póstum sínum  sem stjórn­endur Vef­press­unar höfðu lokað á. Grun­semdir eru uppi um að til­teknum póstum hafi verið eytt. Málið er á leið til Per­sónu­verndar. Hlín vill hvorki játa þessu opin­ber­lega né neita. „Ég vísa á lög­mann minn í þessu máli,“ segir Hlín.

„Hún hefur ekki fengið aðgang, það er enn þá lokað fyrir net­fangið. Þetta var bara í Outlookinu í sím­anum, þetta vist­ast þar. Það stendur enn þá eftir þessi krafa um að fá aðgang að tölvu­póst­inum þannig að hún geti fengið sín per­sónu­legu gögn,“ segir Kolbrún Garð­ars­dóttir, lög­maður Hlínar. Hún seg­ist bíða þar til Arnar Ægisson, fram­kvæmda­stjóra Pressunnar, komi úr fríi áður en málið verði form­lega kært til Per­sónu­verndar.

Hlín hyggst nota tölvu­pósta sem voru inn á net­fangi hennar, hlin@bleikt.is, í þeim mála­ferlum sem hún stendur frammi fyrir. Að hennar sögn er þar á meðal tölvu­póstur sem hún sendi Birni Inga Hrafns­syni, hennar fyrr­ver­andi sam­býl­is­manni og útgef­anda DV og Pressunnar, um meinta nauðgun sem hún hafi kært til lög­reglu.

Öll málin enn í rannsókn

Hlín og systir hennar Malín Brand voru, líkt og þekkt er orðið, hand­teknar fyrir að senda Sigmundi Davíð Gunn­laugs­syni for­sæt­is­ráð­herra fjár­kúg­un­ar­bréf. Fljót­lega eftir að það mál kom upp kærði Helgi Jean Claessen, eig­andi menn.is, þær systur fyrir fjár­kúgun. Helgi segir að þær systur hafi kúgað fé úr honum með því að saka hann um nauðgun. Hlín hefur hins vegar form­lega kært Helga fyrir nauðgun. Öll þrjú mál eru enn í rann­sókn hjá lög­reglu.

Engin viðbrögð

Í upp­hafi þar síð­ustu viku fór Hlín fram á að hún fengi aðgang að tölvu­póstað­gangi sínum hjá Vef­press­unni. Hún seg­ist hafa haft þetta net­fang allt frá því að hún var rit­stjóri Bleikt.is, sem er einn af miðlum Vef­pressunnar. Lokað var á þann aðgang um svipað leyti og fjár­kúgun hennar gegn Sigmundi Davíð komst í hámæli. Hvorki Hlín né lög­maður hennar hafa fengið við­brögð frá eig­endum og stjórn­endum fyr­ir­tæk­is­ins utan þess að vísað var á lög­mann Vef­pressunnar. Kolbrún segir að lög­maður Vef­pressunnar í mál­inu sem varðar tölvu­póstana sé Sigurður G. Guð­jóns­son. „Fram­kvæmda­stjór­inn Arnar vís­aði á Sigurð sem lög­mann Vef­pressunnar, meira veit ég ekki. Ég ræddi við hann og fékk þær upp­lýs­ingar að hann upp­lýsti félagið um regl­unnar sem gilda um tölvu­póst sam­kvæmt per­sónu­vernd­ar­lögum,“ segir Kolbrún.

Sigurður segist ekkert tengjast málinu

Sigurður segir þó í sam­tali við Stundina að mál Hlínar og Press­unar teng­ist sér ekk­ert. „Það er bara ekki á mínu for­ræði,“ segir hann og bendir blaða­manni að ræða við Arnar Ægisson, fram­kvæmda­stjóra Pressunnar. Sigurður þver­tekur fyrir að  vera lög­maður Pressunnar. „Þó svo að ég væri lög­maður Press­unar, þá ræði ég aldrei mál skjól­stæð­inga við fjöl­miðla,“ segir Sigurður. Hvorki hefur náðst í Björn Inga Hrafns­son né Arnar Ægisson við vinnslu fréttar. 

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fjárkúgun

ViðtalFjárkúgun

Malín Brand, þú ert hand­tekin

Fjöl­miðla­konan Malín Brand, 34 ára, hefur á örfáum mán­uðum misst vinn­una, heim­ili sitt og mann­orðið. Allt frá því að upp komst um fjár­kúg­un­ar­mál systur hennar, Hlínar Ein­ars­dóttur, á hendur for­sæt­is­ráð­herra og aðild Malínar hefur líf hennar farið algjör­lega á hvolf. Við þetta bætt­ist að sam­starfs­maður, sem sak­aður er um nauðgun og greiddi miska­bætur, kærði syst­urnar fyrir að hafa beitt sig fjár­kúgun. Það mál er til rann­sóknar líkt og fjár­kúg­unin á hendur Sigmundi Davíð Gunn­laugs­syni. Malín er í dag atvinnu­laus og úthrópuð. Hún segir hér sögu sína.

42 mín. lestur

Mest lesið

4
Stjórnmál

Hildur segir til­lögu um bóka­söfn hafa verið óheppi­lega orð­aða

Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri hafnar því að meiri­hlut­inn í Reykja­vík hafi þurft að bakka með áform um hag­ræð­ingu í rekstri Borg­ar­bóka­safns­ins vegna mót­mæla. „Það stendur ekki til að loka bóka­söfnum,“ segir hún. Í til­lög­unni er meðal ann­ars lagt til að skoðað verði hvort hægt sé að fækka rekstr­ar­ein­ingum og sam­eina starf­semi bóka­safna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár