Þögn ráðherra eins og Illuga vekur upp spurningar: „Gagnsæi er versti óvinur spillingarinnar“

Illugi Gunnarsson mennta­mála­ráðherra þarf að svara spurningum fjölmiðla um Orku Energy málið að mati forsvars­manns sænskrar stofnunar sem sérhæfir sig í rann­sóknum á mútum. Illugi hefur ekki svarað neinum spurningum Stundarinnar um málið síðan í lok apríl.

Skaði Illuga
Skaði Illuga Illugi Gunn­ars­son bíður skaða af Orku Energy mál­inu vegna þagnar sinnar þar sem traust almenn­ings í hans garð minnkar á meðan spurn­ingum er enn ósvarað í mál­inu, að mati Helenu Sundén. Mynd: Pressphotos

Einungis grunur um að þjóð­kjörinn fulltrúi gæti hagsmuna annarra en almennings er slæmur í sjálfum sér þar sem hann skaðar trúverðug­leika hans. Stjórn­málamenn okkar skulu ekki koma sér í neina stöðu sem kastað getur rýrð á það traust sem almenningur ber í þeirra garð,“ segir Helena Sundén, framkvæmda­stjóri sænsku stofnunarinnar Institututet mot mutor, aðspurð um skoðun stofnunarinnar á máli Illuga Gunnars­sonar menntamála­ráðherra og Orku Energy. 

Stundin sendi sænsku stofnun­inni, sem sérhæfir sig í rann­sóknum og greiningum á mútum, aðstöðu­braski og öðru slíku, spurningar um mál Illuga Gunnars­sonar þar sem engin sambærileg stofnun er starfandi á Íslandi. 

Institutet mot mutor svarar oft spurningum fjölmiðla í Svíþjóð þegar upp koma mál þar sem trúverðug­leiki stjórn­málamanna kann að hafa beðið hnekki, meðal annars vegna tengsla þeirra við ákveðin fyrirtæki. Til að mynda hefur stofnunin, eða Helena fyrir hennar hönd, tjáð sig um mál nýlega sem verið hefur hitamál í Svíþjóð en það snýst um hvenær stjórn­málamenn og ráðherrar ættu að mega hefja störf fyrir einka­fyrirtæki eftir að þeir hætta opinberum störfum sínum á þingi. Stofnuninni, sem er ekki rekin í hagnaðar­skyni, er stýrt af viðskipta­ráði Stokk­hólms og fleiri aðilum í viðskipta­lífinu sem og sveitar­félögum í Svíþjóð.

Málið ekki útkljáð

Að mati stofunarinnar skilur lýsing­in á máli Illuga eftir sig spurningar sem svara þarf. „Lýsingin á málinu vekur upp spurningar sem þarf að rannsaka nánar,“ segir í skriflegu svari Helenu. 

Þá segir Helena að mikilvægt sé að fulltrúar almennings séu heiðar­legir og opnir þegar kemur að persónu­legum tengslum og að tengsl þeirra megi ekki grafa undan samkeppni á markaði. „Það er mikilvægt að fulltrúar almennings séu opnir og að gagnsæi ríki með þau persónu­legu tengsl sem þeir kunna að hafa og það er að sjálfsögðu mikilvægt að þeir stuðli ekki að því að spilla fyrir heilbrigðri og frjálsri samkeppni á markaðnum.“

Hefur ekki svarað mörgum spurningum

Líkt og Stundin hefur fjallað um í mörgum fréttum vann Illugi fyrir Orku Energy sem ráðgjafi á meðan hann var í leyfi frá þing­störfum árin 2010 og 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Orka Energy-málið

Fréttir

Samstarfs­maður íslenska ríkisins notaði þrjú félög í skatta­skjólum

Haukur Harðarson, fjár­festir og stjórnar­formaður Orku Energy, átti að minnsta kosti þrjú félög í skatta­skjólum sem hann notaði í viðskiptum sínum fyrir og eftir hrun. Stýrir fyrirtæki sem á í samstarfi við íslenska ríkið í orkumálum í Kína og hefur Haukur nokkrum sinnum fundað með Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta Íslands, vegna orkumála. Einsdæmi er að einka­fyrirtæki komist í þá stöðu sem Orka Energy er í í Kína.
PistillOrka Energy-málið

Ingi Freyr Vilhjálmsson

Tvö hliðstæð spill­ing­armál en bara ein athugun á mútubroti

Mál utan­ríkis­ráðherra Svíþjóðar, Margot Wallström, og mál Illuga Gunnars­sonar eru hliðstæð að ýmsu leyti. Bæði leigðu íbúðir af einkaðilum af óljósum ástæðum. Ákæru­valdið í Svíþjóð hefur brugðist við í tilfelli Wallström en enginn eftirlits­aðili hefur skoðað mál Illuga svo vitað sé. Af hverju stafar þessi munur á milli landanna?
PistillOrka Energy-málið

Ingi Freyr Vilhjálmsson

Illugi gerir undirmenn sína samábyrga

Illugi Gunnarsson menntamála­ráðherra gerði undirmenn sína í menntamála­ráðuneytinu samábyrga við skipu­lagn­ingu á opinberri heimsókn til Kína þar sem Orka Energy var í viðskipta­sendinefnd hans. Starfs­menn ráðu­neyt­isins vissu ekki um viðskipti Illuga og stjórnar­formanns Orku Energy. Einn af undir­mönnum Illuga í ráðuneyti er Ásta Magnúsdóttir sem kom að skipu­lagn­ingu ferðarinnar til Kína en ómögulegt hefur verið að ná í hana til að spyrja hana spurninga um ferðina.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár