„Staðan hefur aldrei verið jafn björt og nú.“ Þannig lauk ræðu Bjarna Benediktssonar, fjármála- og efnahagsráðherra, í eldhúsdagsumræðum á Alþingi rétt í þessu. Benti hann á að kaupmáttur landsmanna hefur vaxið stórum skrefum undanfarin ár, verðbólga verið lág og atvinnustig hátt. Þá hefði ríkisstjórn þeirra Sigmundar lækkað skatta, afnumið vörugjöld og nú stæði til að lækka tolla.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.




















































Athugasemdir