Segir engan hafa haft hugmyndaflug í að fjármálaráðherra ætlaði sjálfur að verða stjórnarformaður

„Til­gang­ur­inn með stofnun þessa félags var að halda hæfi­legri fjar­lægð frá ráðu­neyt­inu og hinu póli­tíska valdi eins og kemur fram í nefnd­ar­á­liti meiri­hluta efna­hags- og við­skipta­nefndar,“ skrifar Katrín Jak­obs­dóttir um félag sem ann­ast sölu rík­is­eigna.

Segir engan hafa haft hugmyndaflug í að fjármálaráðherra ætlaði sjálfur að verða stjórnarformaður

Frétt RÚV í gær, þar sem fram kom að fjár­mála­ráð­herra hygð­ist sjálfur gegna stjórn­ar­for­mennsku í einka­hluta­fé­lagi sem sér um sölu rík­is­eigna, vakti mikla athygli. Stundin fjall­aði um málið í morgun og setti í sam­hengi við umræður og nefnd­ar­á­lit af þing­inu.

Nú hefur hins vegar fjár­mála­ráðu­neytið sent út frétta­til­kynn­ingu þar sem fram kemur að ekki standi til að ráð­herra verði stjórn­ar­for­maður. „Vegna rang­hermis í fréttum í tengslum við einka­hluta­fé­lag sem ann­ast skal umsýslu og fulln­ustu stöð­ug­leika­eigna, tekur fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið fram, að fjár­mála­ráð­herra gegnir ekki stjórn­ar­for­mennsku í félag­inu,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Stundin ræddi við upp­lýs­inga­full­trúa ráðu­neyt­is­ins sem sagði að aldrei hefði staðið til að Bjarni gegndi stjórn­ar­for­mennsku í félag­inu. Hefur RÚV beðist vel­virð­ingar á mis­tök­unum. 

Eft­ir­far­andi frétt birt­ist á vef Stund­ar­innar í morgun:

Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, gagn­rýnir þá til­högun að Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, gegni sjálfur stjórn­ar­for­mennsku í einka­hluta­fé­lagi sem ann­ast umsýslu, fulln­ustu og sölu rík­is­eigna sem til komnar eru af stöð­ug­leika­fram­lögum.

Stundin fjall­aði ítar­lega um málið í morgun og vitn­aði í nefnd­ar­á­lit efna­hags- og við­skipta­nefndar Alþingis þar sem talað er um að verk­efni einka­hluta­fé­lags­ins verði „leyst í hæfi­legri fjar­lægð frá ráðu­neyt­inu“. Nú er ljóst að fjár­mála­ráð­herra skipar ekki aðeins í stjórn félags­ins heldur verður sjálfur stjórn­ar­for­maður þess.

„Ég studdi ekki þetta frum­varp og taldi að það fyr­ir­komu­lag að setja ráð­stöfun þess­ara eigna í einka­eign­ar­rétt­ar­legt sam­hengi ynni gegn yfir­lýstum mark­miðum um gagn­sæi og jafn­ræði,“ skrifar Katrín og bætir við: „En ég held að eng­inn hafi haft hug­mynda­flug í það að fjár­mála­ráð­herra ætl­aði sjálfur að verða stjórn­ar­for­maður félags um ráð­stöfun stöð­ug­leika­fram­laga - en til­gang­ur­inn með stofnun þessa félags var að halda hæfi­legri fjar­lægð frá ráðu­neyt­inu og hinu póli­tíska valdi eins og kemur fram í nefnd­ar­á­liti meiri­hluta efna­hags- og við­skipta­nefndar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisfjármál

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár