Sala Íbúðalánasjóðs á eignasöfnum ólögleg?

Sala Íbúða­lána­sjóðs á mörg hund­ruð íbúðum til fjár­fest­inga­fé­laga hafa vakið mikla reiði fast­eigna­sala. Enginn óháður eða sjálf­stæður fast­eigna­sali kom að sölu eigna­safn­anna sem voru metin á rúma ell­efu millj­arða þrátt fyrir að lög kveði á um aðkomu þeirra. Íbúða­lána­sjóður telur sig þó í fullum rétti með túlkun sinni á lög­unum.

Sala Íbúðalánasjóðs á eignasöfnum ólögleg?
Einokun á mark­aði Umsvifa­mikil fast­eigna­við­skipti Íbúða­lána­sjóðs hafa orðið til þess að gríð­ar­legur fjöldi leigu­í­búða er nú komin í hendur mjög fárra fjár­fest­ing­ar­fé­laga sem geta í krafti stærðar stjórnað leigu­verði á land­inu öllu. Mynd: Shutterstock

Íbúða­lána­sjóður virð­ist ekki hafa haft neina heim­ild til þess að sjá sjálfur um sölu á 642 íbúðum til hinna ýmsu fjár­fest­ing­ar­fé­laga í tveimur gríð­ar­stórum sölu­ferlum sem fóru fram í mars í fyrra og í maí á þessu ári. Um er að ræða fast­eigna­við­skipti upp á rúm­lega ell­efu millj­arða sem eng­inn sjálf­stæður eða óháður fast­eigna­sali kom að. Aðdrag­andi og fram­kvæmd sölu­ferl­is­ins er mjög umdeild meðal fast­eigna­sala sem telja Íbúða­lána­sjóð ekki hafa haft heim­ild í lögum til þess að selja eigna­söfnin. Þeir fast­eigna­salar sem Stundin ræddi við voru allir til í að segja sína skoðun á mál­inu en eng­inn vildi stíga fram og gagn­rýna sjóð­inn opin­ber­lega. En af hverju vildi eng­inn stíga fram og gagn­rýna ferlið og benda á van­kanta fram­kvæmd­ar­innar undir nafni? Þeir sögð­ust ekki þora því af ótta við að fá ekki úthlut­aðar fast­eignir til sölu frá sjóðnum.

Frá 1. jan­úar 2008 og til dags­ins í dag hefur Íbúða­lána­sjóður selt rúm­lega 3.500 íbúðir en um er að ræða fast­eignir sem sjóð­ur­inn eign­að­ist með nauð­ung­ar­upp­boðum. Af þessum rúm­lega 3.500 íbúðum vill Íbúða­lána­sjóður meina að flestar hafi verið seldar til ein­stak­linga í gegnum sam­starf við fast­eigna­sala um allt land. Verðmæti þess­ara fast­eigna­við­skipta hlaupa á rúmum fimm­tíu og fimm millj­örðum króna. Umfangs­mestu fast­eigna­við­skipti sjóðs­ins voru þó ekki við ein­stak­linga heldur hin ýmsu fjár­fest­ing­ar­fé­lög sem hafa keypt upp hund­ruð íbúða á land­inu öllu. Með þessum gjörn­ingum hefur ótrú­legt magn fast­eigna færst á hendur örfárra fyr­ir­tækja sem stjórna leigu­verði á stórum svæðum og í raun á öllu land­inu. Líkt og Stundin greindi frá um miðjan ágúst voru kaup­end­urnir í öllum til­vikum fjár­fest­ing­ar­fé­lög.

Vafasöm fasteignaviðskipti upp á 11 milljarða

Þannig keyptu sex fjár­fest­ing­ar­fé­lög sam­tals 642 íbúðir á rúma ell­efu millj­arða króna í tveimur sölu­ferlum. En það sem var ólíkt með þessum sölu­ferlum og öðrum sem Íbúða­lána­sjóður hefur staðið í frá hruni er að eng­inn lög­gildur, óháður og sjálf­stæður fast­eigna­sali kom að við­skipt­unum. Ef litið er á lög um sölu á fast­eignum og skipum kemur skýrt fram í annarri grein að: „Þeim einum er heim­ilt að hafa milli­göngu fyrir aðra um kaup, sölu eða skipti á fast­eignum eða skrán­ing­ar­skyldum skipum sem hafa til þess lög­gild­ingu sýslu­manns.“ 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár