Sakar Gunnar Einarsson um valdníðslu

María Grét­ars­dóttir, bæj­ar­full­trúi Fólksins í bænum í Garðabæ, segir farir sínar ekki sléttar af bæj­ar­stjór­anum Gunnari Ein­ars­syni. Hún hefur lagt inn fyr­ir­spurn um hvort jafn­ræð­is­reglur almennrar stjórn­sýslu hafi verið brotnar. Gunnar vísar ásök­unum Maríu alfarið á bug.

Sakar Gunnar Einarsson um valdníðslu
Bæj­ar­stjóri Gunnar Ein­ars­son vísar ásök­unum Maríu á bug.

Bæj­ar­full­trúi Fólksins í bænum í Garðabæ hefur lagt inn fyr­ir­spurn til bæj­ar­stjóra um hvort jafn­ræð­is­reglur almennrar stjórn­sýslu hafi verið brotnar hjá bænum þegar fyr­ir­hug­aðar fram­kvæmdir við fjöl­nota knatt­hús á Ásgarðs­svæði voru kynntar fyrir ein­ungis hluta af bæj­ar­full­trúum, það er öllum nema full­trúa Fólksins í bænum.

„Við fréttum af því að búið sé að láta teikna hálft hús á Ásgarðs­svæðið sem sé búið að kynna fyrir Stjörn­unni og minni­hlut­anum, öðrum en okkur,“ segir María Grét­ars­dóttir, bæj­ar­full­trúi Fólksins í bænum í Garðabæ, í sam­tali við Stundina. „Okkur finnst mjög sér­kenni­legt að kalla til alla aðila máls­ins nema okkur. Þess vegna sendum við inn þessa fyr­ir­spurn.“

„Hvort sem þetta er kallað ein­elti eða vald­níðsla, þá eru þetta óeðli­leg vinnu­brögð.“

María segir Gunnar Ein­ars­son, bæj­ar­stjóra, hafa boðað aðra full­trúa minni­hlut­ar­ins eins­lega á sinn fund og kynnt fyrir þeim fyrir fyr­ir­hug­aðar fram­kvæmdir. Þá segir hún að full­trúum bæj­ar­ráðs, sem mættu til fundar á þriðju­dag, hafi fund­ist þessi vinnu­brögð eðli­leg. „Menn gætu hisst utan funda og rætt málin þó það sé ekki endi­lega haft sam­band við alla,“ segir hún. „Gunnar lét það fylgja að hann gerði þetta í hinum ýmsum málum, að hringja í aðra full­trúa minni­hlut­ans til þess að fara yfir málin.“

Í sam­tali við Stundina vísar Gunnar ásök­unum Maríu alfarið á bug og bendir á aðeins sé um að ræða almenna umræðu en ekki úrlausn máls­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár