Safnar dósum svo hún komist til veikrar móður sinnar

„Ég er að safna fyrir gjald­eyri svo ég geti verið hjá móður minni í nokkrar vikur,“ segir ein­stæð móðir sem dreymir um að kom­ast til Banda­ríkj­anna að hitta móður sína sem fékk heila­blóð­fall.

Safnar dósum svo hún komist til veikrar móður sinnar
Fátækt Myndin er svið­sett. Mynd: Kristinn Magnússon

„Þetta hefur ekk­ert gengið, hreint ekki neitt,“ segir ein­stæð móðir og öryrki sem setti inn aug­lýs­ingu á Bland.is í morgun þar sem hún óskar eftir dósum og flöskum frá vel­vilj­uðum sam­borg­urum. Ástæðan er sú að hún vill heim­sækja veika móður sína sem býr í Banda­ríkj­unum.

„Ég er með flug­miða en er að safna fyrir gjald­eyri svo ég geti verið hjá móður minni í nokkrar vikur,“ segir hún í sam­tali við Stundina en móðir hennar fékk nýlega heila­blóð­fall og er lömuð öðrum megin á lík­ama. 

„Það var ein­hver neyð sem rak mig áfram. Ég vildi athuga hvort fólk lægi nokkuð á flöskum sem ég gæti sótt og tekið.“ Hún hefur ekki ákveðið hve löng dvölin verður. „Þetta fer allt eftir því hversu fljót mamma verður að ná sér.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár