Róberti gert að endurgreiða skatta af tæplega milljarði

Rík­is­skatt­stjóri sótti rúma þrjá millj­arða til á annað hund­rað ein­stak­linga með end­ur­á­kvörð­unum á sköttum. Þekktir fjár­festar og banka­menn eru þar á meðal. Tekjur af kaup- og sölu­rétt­ar­samn­ingum fyrir hrun skatt­lagðar sem starfstengd hlunn­indi.

Róberti gert að endurgreiða skatta af tæplega milljarði
Tekju­skattur af starfstengdum hlunn­indum Rík­is­skatt­stjóri hefur sótt rúm­lega þrjá millj­arða króna til á annað hund­rað ein­stak­linga sem voru með kaup- og sölu­rétt­ar­samn­inga á hluta­bréfum við vinnu­veit­endur sína á Íslandi á árunum fyrir hrunið 2008. Róbert Wessmann, fyrr­ver­andi for­stjóri Actavis, er einn þeirra.Mynd Alvogen Mynd: Alvogen

Róbert mun greiða þessa fjár­hæð sam­kvæmt sam­komu­lagi við skatt­stjóra líkt og tíðkast í svona málum,“ segir Halldór Krist­manns­son, sem séð hefur um sam­skipti við fjöl­miðla fyrir fjár­fest­inn Róbert Wessmann, aðspurður um hvort Róbert hafi end­ur­greitt emb­ætti Rík­is­skatt­stjóra skatt af tæp­lega millj­arðs króna launa­tekjum sem voru end­ur­á­kvarð­aðar á hann í fyrra fyrir árið 2007. Fjallað er um málið gegn Róberti í úrskurði yfir­skatta­nefndar frá því í fyrra en nafn fjár­fest­is­ins kemur ekki fram í úrskurð­inum.
Deilt um skatt af kaup­rétt­ar­samn­ingum

Deilan snýst í grunn­inn um það hvort skil­greina beri tekjur af kaup­rétt­ar­samn­ingum stjórn­enda í fyr­ir­tækjum sem fjár­magns- eða launa­tekjur. Róbert Wessmann var for­stjóri Actavis fram á mitt ár 2007 og átti hluta­bréf í sam­heita­lyfja­fyr­ir­tæk­inu sem voru hluti af starfs­kjörum hans. Við­skipti Róberts með hluta­bréfin fóru að hluta til fram í gegnum aflands­fé­lag í Panama. Þegar Róbert hætti hjá Actavis eftir yfir­töku Björg­ólfs Thors Björg­ólfs­sonar á fyr­ir­tæk­inu seldi hann hluta­bréf sín. Róbert greiddi fjár­magnstekju­skatt af tekjum sínum af hluta­bréfa­eign­inni. 
Inntak deil­unnar er í reynd að þegar og ef starfs­mað­ur­inn selur slík hluta­bréf þá eigi hann að greiða af þeim skatt líkt og af launa­tekjum en ekki fjár­magnstekju­skatt þar sem hluta­bréfa­eignin var bein­tengd við starf við­kom­andi og í mörgum til­fellum hluti af ráðn­ing­ar­samn­ingi hans. Mikill munur er á fjár­magns­tekju­skatti og tekju­skatti en sá fyrr­nefndi er tíu pró­sent á meðan tekju­skattur er þrisvar til fjórum sinnum hærri, en taka þarf til­lit til launa við­kom­andi við ákvörðun hans. Því er um veru­lega breyt­ingu að ræða fyrir við­kom­andi og geta upp­hæð­irnar sem um ræðir, sem við­kom­andi þar að greiða til baka, hlaupið á mörg hund­ruð millj­ónum króna.

Einnig Þórður Már, Sigurður og Bjarki 

Rík­is­skatt­stjóri, yfir­skatta­nefnd og dóm­stólar á Íslandi hafa kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að flokka beri tekjur sem mynd­uð­ust af slíkum kaup­rétt­ar­samn­ingum sem starfstengd hlunn­inndi og að þar með beri af greiða af þeim skatta líkt og af launum en ekki fjár­magnstekju­skatt. 
Ljóst var strax árið 2009, þegar yfir­skatta­nefnd kvað upp fyrsta úrskurð sinn í sam­bæri­legu máli, að margir íslenskir stjórn­endur fyr­ir­tækja, sem voru með slíka kaup­rétt­ar­samn­inga, myndu þurfa að end­ur­greiða háar fjár­hæðir til skatt­stjóra vegna þessa.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár