Reiðhjóli bæjarfulltrúans stolið: Lögreglan brýnir fyrir fólki að geyma þau innandyra

Friðjón Ein­ars­son, bæj­ar­full­trúi í Reykja­nesbæ, varð fyrir því óláni á föstu­dags­kvöldið að reið­hjóli hans var stolið. Nú þegar nær dregur sumri aukast þjófn­aðir af þessu tagi. Varð­stjóri hjá lög­regl­unni á Suð­ur­nesjum, Bjarney Ann­els­dóttir segir þessa þjófn­aði nú eiga sér stað allan árs­ins hring en hennar reið­hjóli var stolið þar sem það stóð læst fyrir utan heim­ili hennar í fyrra.

Reiðhjóli bæjarfulltrúans stolið: Lögreglan brýnir fyrir fólki að geyma þau innandyra
Saknar reið­hjóls­ins Friðjón Ein­ars­son biðlar til þjófs­ins eða þjóf­anna að skila því án allra eft­ir­mála.

Bæj­ar­full­trú­inn Friðjón Ein­ars­son sem býr í Reykja­nesbæ varð fyrir því óláni á föstu­dags­kvöldið að reið­hjóli hans var stolið. Nú þegar nær dregur sumri fer þjófn­aði á reið­hjólum að fjölga. Varð­stjóri á Suð­ur­nesjum segir að vegna sívax­andi vin­sælda reið­hjóla þá séu þessir þjófn­aðir allan árs­ins hring.

„Fyr­ir­gefn­ing er ein­göngu til án eft­ir­mála og ef því er skilað þá er mál­inu bara lokið af minni hálfu“

„Hjólinu var stolið á föstu­dags­kvöldið síð­asta þegar ég var í fimm­tugs­af­mæli hjá vini mínum. Hjólið var vel fallið í inn­keyrsl­unni hjá mér en það virt­ist ekki hafa skipt neinu máli,“ segir Friðjón sem notað hefur reið­hjólið sitt und­an­farin ár alla daga árs­ins.

Friðjón Einarsson
Friðjón Ein­ars­son Bæj­ar­full­trúi í Reykja­nesbæ

Hann var nýbú­inn að skipta út nagla­dekkj­unum og stilla hjólið fyrir sum­arið.

„Hjólið mitt er far­ar­tæki alla daga árs­ins og loks­ins þegar sum­arið er komið að þá er ansi súrt að því sé stolið. Loksins þegar maður þarf ekki að vera vel dúð­aður í hlífð­ar­fötum,“ segir Friðjón sem vor­kennir þeim sem stálu hjól­inu hans. Hann seg­ist þó maður fyr­ir­gefn­ingar og að það eina sem hann vilji sé reið­hjólið til­baka.

„Reið­hjólið mitt var læst fyrir utan heima og því var stolið“ 

„Fyr­ir­gefn­ing er ein­göngu til án eft­ir­mála og ef því er skilað þá er mál­inu bara lokið af minni hálfu,“ segir Friðjón og bætir við að hægt sé að skila því á Suð­ur­götu 51 í Reykja­nesbæ eða bara þangað sem hann getur sótt það.

Reiðhjóli varðstjórans stolið

Stundin hafði sam­band við lög­regl­una á Suð­ur­nesjum og ræddi við varð­stjór­ann Bjarn­eyju Ann­els­dóttur. Hún hefur sjálf lent í því að reið­hjóli hennar var stolið en það var í fyrra.

„Reið­hjólið mitt var læst fyrir utan heima og því var stolið. Þessir þjófn­aðir eru nú allan árs­ins hring en við hvetjum hjól­reiða­eig­endur til þess að geyma þau inn­an­dyra svo ekki sé auð­velt að stela þeim,“ segir Bjarney.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Þjófnaður

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár