Táfýlan kom upp um svissnesku þjófana

Eitt stærsta glæpa­mál síð­ari tíma á Ströndum kom upp í sumar þegar par rændi kaup­fé­lagið og faldi góssið á víða­vangi. Glöggur sund­laug­ar­vörður varð til þess að flett var ofan af par­inu.

Táfýlan kom upp um svissnesku þjófana
Vett­vang­ur­inn Það var hérna sem sviss­neska glæpap­arið gleymdi sér og skyldi eftir illa lykt­andi sönn­un­ar­gögn. Mynd: DEREK KIND

Stærsta glæpa­mál síð­ari ára á Ströndum kom upp í Norð­ur­firði í sumar þegar sviss­neskt par rændi kaup­fé­lagið og kom sér upp mat­ar­holum í fjar­lægð frá tjaldi sínu. Hluti af ráns­fengnum, sem met­inn er á tugi þús­unda voru hand­prjón­aðir sokkar sem Ágúst í Steins­túni gerir af hreinni list. 

Sviss­neska parið dvaldi um tíma í Árnes­hreppi og lenti meðal ann­ars í slag­viðri. Þá gripu þau til þess að „brjót­ast“ að næt­ur­þeli inn í sund­laug­ina í Kross­nesi og leggja húsið undir sig í því skyni að þurrka pjönkur sínar. Þegar Sigrún Sverr­is­dóttir sund­laug­ar­stjóri kom til vinnu sinnar var allt und­ir­lagt af far­angri Sviss­lend­ing­anna sem þeir höfðu dreift úr um allt. 

Sigrún fyr­ir­skip­aði þeim að hirða dót sitt, en grun­aði parið ekki um annað mis­jafnt en inn­brotið. Þau hlýddu. Nokkru eftir brott­hvarfið varð hún vör við tor­kenni­lega og ágenga lykt í bún­ings­klefa. Við athugun kom í ljós að ull­ar­sokkum hafði verið troðið á bak við ofn. Við þurrkinn kom óþef­ur­inn. Sigrún sá strax að sokk­arnir voru með listi­leg­hand­bragði Ágústar í Steins­túni. Í ljós kom að hann hafði komið með sokk­ana í kaup­fé­lagið en ekk­ert hafði enn verið selt. Aftur á móti voru sokkar horfnir. Þar með byrj­aði bolt­inn að rúlla og glæpa­málið var upp­lýst. Slóð afbrota þeirra lá víða. Sviss­neska parið var síðar dæmt fyrir Hér­aðs­dómi vest­fjarða til sektar fyrir brot sín og greiddi kaup­fé­lag­inu sitt. Þau voru bókuð af landi brott í byrjun sept­em­ber en ekk­ert hefur til þeirra spurst um tíma.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Þjófnaður

FréttirÞjófnaður

Reið­hjóli bæj­ar­full­trú­ans stolið: Lög­reglan brýnir fyrir fólki að geyma þau inn­an­dyra

Friðjón Ein­ars­son, bæj­ar­full­trúi í Reykja­nesbæ, varð fyrir því óláni á föstu­dags­kvöldið að reið­hjóli hans var stolið. Nú þegar nær dregur sumri aukast þjófn­aðir af þessu tagi. Varð­stjóri hjá lög­regl­unni á Suð­ur­nesjum, Bjarney Ann­els­dóttir segir þessa þjófn­aði nú eiga sér stað allan árs­ins hring en hennar reið­hjóli var stolið þar sem það stóð læst fyrir utan heim­ili hennar í fyrra.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár