Réðst á tvær lögreglukonur við Keiluhöllina

Tvítugur lyft­inga­á­huga­maður hefur verið ákærður fyrir að kýla lög­reglu­konu fyrir utan skemmti­stað­inn Rúbín.

Réðst á tvær lögreglukonur við Keiluhöllina
Gamla Keilu­höllin Atvikið átti sér stað áður en Keilu­höllin flutt­ist í Egils­höll. Mynd: Google

Rétt rúm­lega tví­tugur áhuga­maður um lyft­ingar hefur verið ákærður af Rík­is­sak­sókn­ara fyrir brot gegn vald­stjórn­inni með því að kýla lög­reglu­konu fyrir utan gömlu Keilu­höll­ina í Öskju­hlíð­inni, við skemmti­stað­inn Rúbín. Atvikið átti sér stað fimmtu­dags­kvöldið 6. nóv­em­ber í fyrra. Keilu­höllin færði sig í Egils­höll fyrr á þessu ári.

Samkvæmt ákærunni kýldi mað­ur­inn lög­reglu­kon­una hnefa­höggi í and­litið. Önnur lög­reglu­kona, ásamt þeirri sem hafði verið kýld, reyndu að snúa karl­mann­inn niður á jörð­ina. Þá ýtti karl­mað­ur­inn af afli í hina lög­reglu­kon­una með þeim afleið­ingum að hún féll aftur fyrir sig. Í ákæru kemur fram að afleið­ing þess að hún féll aftur fyrir var hún „hlaut lítið fleið­ur­sár á vinstri oln­boga sem og lít­ils­háttar blæð­ingu, mar á vinstri fram­hand­legg og mar­blett utan á hægri kálfa hlið­lægt og annan mar­blett á vinstri sköfl­ungi.“

Af Facebook-síðu ákærða að dæma er hann áhuga­maður um lyft­ingar og birtir hann fjölda mynda af sér berum að ofan, þar sem hann sýnir árangur lík­ams­ræktar.

Málið verður tekið fyrir í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár