Heilbrigðisráðuneyti Kristjáns Þórs Júlíussonar vinnur nú að því að setja á laggirnar þrjár nýjar heilsugæslustöðvar sem gert er ráð fyrir að verði einkareknar. Ákvörðunin um þessa niðurstöðu er alfarið tekin af heilbrigðisráðuneytinu, að sögn Svanhvítar Jakobsdóttur, forstjóra Heilsugæslunnar, í samtali við Stundina. Hún segir að stofnunin hafi eingöngu verið ráðgefandi í ákvarðanatökunni. „Við höfum haft ákveðna aðkomu að þessu en þessi vinna er alfarið leidd af ráðuneytinu,“ segir Svanhvít.
Ráðuneyti Kristján Þórs tekur einhliða ákvörðun um einkavæðingu
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins segist eingöngu hafa verið ráðgefandi þegar heilbrigðisráðuneyti Kristjáns Þórs Júlíussonar ákvað að opna þrjár nýjar einkareknar heilsugæslustöðvar. Framkvæmdastjóri lækninga heilsugæslunnar hefur lengi talað fyrir aukinni fjölbreytni á rekstrarformum heilbrigðisþjónustu og stofnaði sjálfur fyrirtæki sem ætlaði að sinna ferðatengdri lækningaþjónustu fyrir erlenda aðila. Nýju stöðvarnar eru ekki fjármagnaðar og munu 20 heilsugæslustöðvar - 15 ríkisreknar og 5 einkareknar - því þurfa að bítast um sama fjármagnið.
Mest lesið

1
Ástleysið er sárt
Nánd er næring, nauðsynleg eins og matur. Tæpur helmingur fólks elst upp í óöruggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ástarsamböndum á fullorðinsárum, jafnvel ógnað heilsu, enda er „tengslamyndun ein af grunnforsendum farsældar“, að sögn klíníska sálfræðingsins Guðbrands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ástina í öllum sínum myndum.

2
Lexíur og leikhúsið
Sigríður Jónsdóttir skrifar um Högg eftir James Graham, sem sýnt er í Þjóðleikhúsinu.

3
Skattur á milljarðamæringa á kjörseðlinum
Kjósendur í Kaliforníu greiða atkvæði um fimm prósenta skatt á hreina eign um 200 milljarðamæringa. Bernie Sanders hleypir af stokkunum herferð gegn auðræði.

4
Pútín kvaðst vera til í friðarviðræður
Þriggja tíma fundi erindreka Trumps með Pútín lauk með því að Rússlandsforseti skaut á hugmyndir Evrópu en samþykkti viðræður.

5
Mærður höfundur hankaður á gervigreind
Nýstirni í skáldsagnaheiminum hefur orðið fyrir aflýsingu eftir að gervigreind greindist í margrómuðu verki hans. Sjálfur segist hann að gervigreind hafi ekki verið til þegar hann lauk fyrsta uppkasti.

6
Úkraínskur maður handtekinn í Þýskalandi grunaður um njósnir
Alríkissaksóknari segir manninn hafa aflað upplýsinga um framleiðslu brynvarinna ökutækja, skotfæra og sprengiefna, auk starfsfólks og hernaðarmannvirkja.
Mest lesið í vikunni

1
Hjónadjöflar
Sigríður Jónsdóttir skrifar um Djöfla eftir Lars Norén, sem sýnt er í Borgarleikhúsinu.

2
Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir
Ég, hóran
Fimmtíu og sjö karlmenn eru grunaðir um að hafa ekki komið ungri konu til aðstoðar þegar vinir þeirra nauðguðu henni í hópi. Hrafnhildur Sigmarsdóttir segir brandara um „hórur“ í ræktinni endurspegla sama tilkall til kvenna.

3
Ísland kemur einna best út úr COVID-faraldrinum
Yfirlæknir á sýkla- og veirufræðadeild Landspítalans segir gögn sýna að Ísland kom einna best út úr COVID-faraldrinum. Annarskonar áskoranir hafa þó fylgt faraldrinum, svo sem Long-COVID og vantraust til bólusetninga.

4
„Margt sem ég hef séð situr í mér“
Þegar Halla Bergþóra Björnsdóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna löggæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekkert erindi í lögregluna. Hún lét það ekki á sig fá, varð lögreglustjóri og loks ríkislögreglustjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erfiðum málum og fengið hótanir. Á sama tíma hefur hún öðlast skarpari sýn á lífið, sterkari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakklæti fyrir allt það góða.

5
Íbúum boðnar „mútur“ fyrir að samþykkja gagnaver
Andstaða íbúa stöðvaði eða tafði að minnsta kosti 75 gagnaverkefni í Bandaríkjunum á fyrstu þremur mánuðum ársins. Í Pennsylvaníu reyna íbúar að stöðva gagnaver og háspennulínu.

6
Kvíði, álag og lélegur svefn geta aukið verki
Verkir eru algengasta ástæða þess að fólk leitar til heilbrigðisþjónustunnar. Grundvallarmunur er á hvernig verkir eru meðhöndlaðir eftir gerð. Það eru þó ýmsar bjargir sem fólk hefur hér á landi til að fá meðferð við verkjum og til sjálfshjálpar.
Mest lesið í mánuðinum

1
Lögreglan rukkar viðburðahaldara um tugi milljóna
Tvö lögregluembætti hafa krafið þrjá viðburðarhaldara um samanlagt 47 milljónir vegna þriggja viðburða í sumar. Viðburðahaldarar eru hugsi vegna málsins og tveir hafa kært gjaldtöku lögreglu.

2
Vilja að Katla fari á elliheimili
Heilbrigðisráðuneytið hefur þrýst á að Katla Guðnadóttir, 24 ára gömul, velji sér hjúkrunarheimili til að flytja á tímabundið. Formaður ÖBÍ segir slíkar innlagnir ungs fólks sjaldnast verða tímabundnar. Katla hefur verið ári lengur á Grensásdeild en heilbrigðisstarfsfólk taldi þurfa og vill flytja heim til sín.

3
Prófaði brimbretti í fyrsta skipti og lamaðist
Wojciech Jarosz vann á Keflavíkurflugvelli en eftir örlagaríkt frí í Karíbahafinu sækir hann nú endurhæfingu á Grensásdeild í von um að geta staðið aftur upp einn daginn. Sjaldgæfur kvilli sem byrjendur á brimbrettum geta fengið olli lömun fyrir neðan mitti.

4
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
Viðbragðsaðilar héldu að Björn Ólafur Haraldsson væri útúrdópaður þegar hann lá á gólfinu með blæðingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkrunarfræðinámi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leiðrétta mistök ófaglærðs starfsfólks á heilbrigðisstofnunum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterkari til baka.

5
Sjálfstæðismenn aftur á fund bandarískra íhaldsmanna ásamt Zachary
Forysta Sjálfstæðisflokksins og Birgir Þórarinsson, fyrrverandi þingmaður, funduðu með íhaldssömum hugveitum og mæltu fyrir fríverslunarsamningi.

6
Fulltrúi Íslands sat áfram meðan tugir gengu úr salnum undir ræðu Netanyahu
Tugir fulltrúa gengu úr salnum þegar Benjamín Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels, hóf ræðu sína á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna. Fulltrúi Íslands sat áfram í sæti landsins. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra var á sama tíma á fundi til stuðnings Palestínuflóttamannahjálp SÞ.




































Athugasemdir