Píratar vilja hætta að gefa trúfélögum ókeypis lóðir

Þing­flokkur Pírata hefur lagt fram frum­varp sem afnemur skyldu sveit­ar­fé­laga til að leggja til ókeypis lóðir undir kirkjur. Samkvæmt nýrri könnun MMR eru 76 pró­sent Íslend­inga and­víg því að trú­fé­lög fái úthlutað ókeypis lóðum.

Píratar vilja hætta að gefa trúfélögum ókeypis lóðir
Helgi Hrafn Gunn­ars­son er fyrsti flutn­ings­maður frum­varps­ins. Mynd: Pressphotos.biz - (RosaBraga)

Þing­flokkur Pírata hefur lagt fram frum­varp sem um að nema úr gildi skyldu sveit­ar­fé­laga um að leggja til ókeypis lóðir undir kirkjur og und­an­skilja þær gatna­gerð­ar­gjaldi. Samkvæmt nýrri könnun MMR er meiri­hluti Íslend­inga, eða tæp 76 pró­sent, and­víg því að trú­fé­lög fái úthlutað ókeypis lóðum til að byggja trú­ar­bygg­ingar, þar af sögð­ust 48,3 pró­sent vera mjög and­víg. 

Umrætt ákvæði er að finna í lögum um Kristni­sjóð en frá árinu 1999 hefur Reykja­vík­ur­borg túlkað ákvæðið út frá almennum jafn­ræð­is­sjónar­miðum og þar með haft það sem stefnu að gera ekki upp á milli trú­fé­laga þegar kemur að úthlutun ókeypis lóða undir til­beiðslu­hús, hvort sem um er að ræða kristnar kirkjur, must­eri, moskur eða hof. Lögin nefna enda ekki sér­stak­lega kirkjur þjóð­kirkj­unnar, heldur kirkjur almennt. Ákvæðið og afleið­ingar þess urðu þannig til þónokk­urrar umræðu í kosn­ing­um til sveit­ar­stjórna árið 2014 vegna fyr­ir­hug­aðrar bygg­ingar mosku, eins og segir í grein­ar­gerð með frum­varp­inu en Svein­björg Birna Svein­björns­dóttir, odd­viti Fram­sókn­ar­flokks­ins í Reykja­vík, vildi að lóð sem hefur verið úthlutað til bygg­ingar mosku í borg­inni yrði aft­ur­kölluð.  

Eitt skal yfir alla ganga

Nefnt hefur verið að breyta lög­unum í þá átt að ákvæðið til­greini kirkjur þjóð­kirkj­unnar sér­stak­lega, en flutn­ings­menn frum­varps­ins, þau Helgi Hrafn Gunn­ars­son, Ásta Guðrún Helga­dóttir og Birgitta Jóns­dóttir, telja að slík breyt­ing yrði skref aftur á bak og ekki í takt við þróun sam­fé­lags­ins í átt til umburð­ar­lyndis og jafn­ræðis fyrir lögum óháð trú­ar­skoð­unum. „Einnig telja flutn­ings­menn ekki for­svar­an­legt að eftir umræðu sem bein­ist gegn einu til­teknu trú­fé­lagi sé ákvæðið sniðið sér­stak­lega að öðru trú­fé­lagi enda mætti ætla að slíkt yki enn frekar á þá spennu og þann ágrein­ing sem ákvæðið hefur þegar valdið.“

Þau telja ákvæðið barn þess tíma þegar trú­ar­skoð­anir og fyr­ir­komu­lag trúar- og lífs­skoð­un­ar­fé­laga voru tals­vert eins­leit­ari en nú er raunin og vilja afnema það. Þá segja þau enn­fremur engin góð rök standa fyrir því að sveit­ar­fé­lögu sé gert skylt að láta af hendi lóðir án end­ur­gjalds til trú­fé­laga frekar en ann­arra félaga. 

„Trúar- og lífs­skoð­un­ar­fé­lög eru í eðli sínu umdeild og stutt getur verið í hat­urs­fulla orð­ræðu sem er á skjön við mark­mið opinnar og upp­lýstrar umræðu. Það er mjög óheppi­legt að íslensk lög séu þess vald­andi að mis­jafn skiln­ingur á mark­miði og túlkun þeirra valdi ágrein­ingi, bæði um hvort mis­munun sé til staðar í lögum eða jafn­vel hvort hún eigi að vera til stað­ar. Óhætt er að segja að ætlun lög­gjafans hafi aldrei verið að valda sam­fé­lag­s­nún­ingi þegar ákvæðið var fyrst sett í lög en flutn­ings­menn frum­varps þessa telja ein­föld­ustu lausn­ina á þeim vanda vera þá að fella grein­ina brott,“ segir í grein­ar­gerð með frum­varp­inu. 

Þess má geta að Björt fram­tíð lagði fram sam­bæri­legt frum­varp undir lok síð­asta árs, en það var ekki tekið til umræðu á þing­inu. Heiða Kristín Helga­dóttir, sem þá sat á Alþingi fyrir Bjarta fram­tíð, var fyrsti flutn­ings­maður frum­varps­ins. Í grein­ar­gerð Bjartrar fram­tíðar segir meðal ann­ars að ákvæðið eigi ekki við í nútíma­sam­fé­lagi þar sem lóðir séu tak­mörkuð auð­lind. „Ákvæðið felur í sér tíma­skekkju þar sem sveit­ar­fé­lög eru ein­hliða skylduð til að ráð­stafa dýr­mætu landi án end­ur­gjalds til þeirra trú­fé­laga sem sækj­ast eftir því,“ segir í grein­ar­gerð Bjartrar fram­tíðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Trúmál

Mest lesið

Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár