Birgitta segir að „þriðja leiðin“ sé á teikniborðinu

Eftir tvær mis­heppn­aðar til­raunir til stjórn­ar­mynd­anna fengu Píratar stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boðið. Birgitta Jóns­dóttir segir að skatta, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­mál séu stóru málin sem ná þurfi mála­miðlun um.

Birgitta segir að „þriðja leiðin“ sé á teikniborðinu
Birgitta á Bessa­stöðum Tekur við stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boði frá Guðna Th. Jóhann­essyni for­seta. Mynd: Pressphotos

Rúmlega fimm vikum eftir Alþing­is­kosn­ingar og mis­heppn­aðar til­raunir Sjálf­stæð­is­flokks­ins og VG til að mynda rík­i­s­tjórnir hefur for­seti Íslands veitt Pírötum stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð. Þing­flokks­for­maður Pírata, Birgitta Jóns­dóttir, segir að þetta sé mjög spenn­andi tæki­færi til að færa Ísland inn í nútím­ann.

Ráðast fyrst í stóru málin

Fimm flokkar koma að óform­legum við­ræðum, en að auki Pírata eru það Björt fram­tíð, Sam­fylk­ingin, Vinstri græn og Viðreisn; þetta eru sömu flokkar og Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður VG, reyndi að mynda starf­tæka rík­is­stjórn með, en hún skil­aði umboð­inu áður en við­ræðum lauk.

Birgitta segir að sam­ræðan haldi í raun áfram frá fyrri við­ræðum, og að mikil vinna nýt­ist því aftur. Áður en haldið er út í form­legar við­ræður segir Birgitta að það sé mik­il­vægt að útkljá stóru málin til að sjá hvort sé til grund­völlur fyrir sam­starfi. „Það er nátt­úr­lega fyrst og fremst hvernig má fjár­magna rík­is­út­gjöld, og síðan sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­málin.“

Sömu mál hafa staðið í vegi fyrir því að önnur stjórn­ar­mynstur verði að veru­leika.

„Allir flokk­arnir lof­uðu tölu­vert miklum útgjöldum“

Til að undi­búa þessar við­ræður segir Birgitta að Píratar hafi unnið mikla hug­mynda­vinnu og safnað til­lögum og gögnum frá flokk­unum um áherslur þeirra. „Allir flokk­arnir lof­uðu tölu­vert miklum útgjöldum í sinni kosn­inga­bar­áttu, þannig að við erum að fara yfir hvernig má fjár­magna það.“

Margt sameinar flokkana

Þrátt fyrir að það sé tölu­vert bil á stefnum sumra flokka segir Birgitta að það sé líka mjög mikið sem sam­eini þá. „Þessir flokkar hafa mjög spenn­andi hug­myndir til að setja í pott­inn, og hafa allir áhuga á því að takast á stórum málum eins og lofts­lags­málum, opinni og gagn­særri stjórn­sýslu, mann­rétt­indum og jafn­rétti. Það er svo margt sem sam­einar okkur en við þurfum fyrst að sjá hvort við getum fundið lausnir á erf­iðu mál­unum áður en við getum farið að vinda okkur í þau skemmti­legu.“

Aðspurð um ágrein­inga innan þessa fimm flokka segir Birgitta að hún telji hann vera að vissu leyti tungu­mála­örð­ug­leikar. „Það má kannski segja að við séum öll að kynn­ast betur núna. Mörg okkar þekkt­ust ekki neitt fyrir kosn­ingar, og flokk­arnir eru með mis­mum­andi upp­bygg­ingu og menn­ingu, og það tekur fólk tíma að skilja það. Hug­mynda­fræðin er mis­mun­andi, en oft er það þannig að þegar þeir hægra megin heyra orðið „skattar“ stuðar það þá, eins og „hag­ræð­ingar“ stuðar vinstri menn, og þeir hætta að geta talað saman. Við erum að fara ólíkan veg í að leysa þetta, ein­hverja þriðju leið.“

Birgitta leggur áherslu á það að allir taki sér sinn tíma í þessum við­ræðum. „Það er mik­il­vægt þegar maður er að vinna með ólíka strengi að það sé gert af nær­gætni—að fólk líði vel með ferlið og finn­ist ekki eins og það sé að bregð­ast kjós­endum sínum.“

Tekur einum degi í einu

Birgitta segir að vinn­unni miði áfram og að hún hafi mjög góða til­finn­ingu fyrir hópnum. Núna sé mik­il­vægt að ræða þau mál sem flokk­arnir leggja mesta áherslu á og finna mála­miðl­anir sem allir geta sætt sig við.

„Ég er bara að taka þessu einn dag í einu fram að helgi. Ef það gengur vel þá ákveðum við fram­haldið í kjöl­far af því. Við erum að fara að vinna mikla vinnu hjá Pírötum til að búa til ein­hvern ramma til að vinna eftir. Ég er bara mjög von­góð með fram­vindu mála.“

Næsti óform­legi fund­ur­inn á milli for­manna flokk­anna og hennar Birgittu hefst í dag eftir umræðu um fjár­laga­frum­varpið á þing­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Alþingiskosningar 2016

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár