Öryrki neyðist til að sofa í bílnum sínum

Leiguverð í Reykjavík hefur hækkað um helming á sama tíma og kaup­máttur öryrkja hefur aukist um 1 prósent. Linda Kristín Fjölnis­dóttir hefur misst húsnæði sitt og er komin í bílinn. Hún lýsir vanda þess að lifa á örorku­bótum.

Með búslóðina í bílnum
Með búslóð­ina í bílnum Linda hefur áður þurft að sofa í bílnum mán­uðum saman. Það end­aði með því að hún fékk ill­víga lungna­bólgu. Mynd: Kristinn Magnússon

Linda Kristín Fjölnis­dóttir hefur verið öryrki í um 20 ár og segir líf sitt ekki hafa verið neinn dans á rósum. Nýlega var íbúð sem hún var að leigja seld og henni gert að yfirgefa íbúðina með þriggja vikna fyrirvara. Hún sér fram á að sofa í bílnum sínum næstu nætur og veit ekkert hvernig fram­haldið verður.

Til þess að draga fram lífið á örorku­bótum hefur Linda þurft að gera hluti sem flestum þætti algjör­lega óhugsandi. Hún þarf reglulega að leita sér matar í rusla­gámum matvöru­verslana. Hún lét draga úr sér allar tennurnar því það var ódýrara en að láta gera við þær. Hún bjó í bílnum sínum mánuðum saman þar til hún fékk lungna­bólgu og var lögð inn á spítala. Nú er svo komið að því að Lindu hefur verið vísað út úr íbúð sem hún leigði vegna þess að hún var seld og henni gert að yfirgefa …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár