Ölgerðin fjarlægir umdeildar auglýsingar: „Þetta var mjög óheppilegt“

Aug­lýs­inga­skilti Ölgerð­ar­innar sögð inni­halda skírskotun í nauðg­un­ar­menn­ingu og Druslu­göng­una. Vöru­merkja­stjóri hjá Ölgerð­inni segir afar miður ef ein­hver hafi upp­lifað her­ferð­ina með þeim hætti og hafa skiltin verið fjar­lægð.

Ölgerðin fjarlægir umdeildar auglýsingar: „Þetta var mjög óheppilegt“

Ölgerðin hefur fjar­lægt aug­lýs­inga­skilti fyrir Egils Grape drykk­inn eftir að hafa borist athuga­semdir um að skiltin sendu dul­búin eða tví­ræð skila­boð. Á aug­lýs­inga­skilt­unum hefur verið sett X yfir staf­inn G í nafni Grape svo úr verður orðið X-rape, en eins og flestir vita þýðir orðið rape nauðgun á ensku. Fyrir neðan stendur stórum stöfum „Hef ekk­ert betra að gera“. Þá töldu ein­hverjir að með því að nota mót­mæla­skilti í her­ferð­inni væri aug­ljós­lega verið að vísa í Druslu­göng­una þar sem nauðg­un­ar­menn­ingu hefur verið mót­mælt, meðal ann­ars með beittum mót­mæla­skiltum. 

Sigurður Valur Sig­urðs­son, vöru­merkja­stjóri hjá Ölgerð­inni, segir aug­lýs­inga­her­ferð­ina ekki hafa neina skírskotun í Druslu­göng­una, eða það sem hún stendur fyrir, og að honum þyki afar miður ef ein­hver upp­lifir hana með þeim hætti. „Skiltið átti að sýna illa gert „X-Grape“ sem vísar í „setjið X við Grape í for­seta­kosn­ing­unum“. Það að 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár