Ólafur Ragnar stoppar Sigmund Davíð

Ólafur Ragnar Grímsson for­seti synj­aði Sigmundi Davíð Gunn­laugs­syni for­sæt­is­ráð­herra um heim­ild til að boða kosn­ingar, eins og Sig­mundur hót­aði á fundi með Bjarna Bene­dikts­syni.

Ólafur Ragnar stoppar Sigmund Davíð
Sig­mundur á leið af fundi For­set­inn synj­aði beiðni Sig­mundar. Mynd: Kristinn Magnússon

Ólafur Ragnar Grímsson for­seti hefur stoppað til­raun Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar for­sæt­is­ráð­herra til að nota boðun kosn­inga sem vopn í átökum við Sjálf­stæð­is­flokk­inn.

Sig­mundur Davíð hafði flýtt fundi sínum með for­set­anum eftir fund sinn með Bjarna Bene­dikts­syni í morgun, þar sem hann hót­aði Bjarna kosn­ingum ef hann nyti ekki stuðn­ings sem for­sæt­is­ráð­herra.

Sig­mundur þurfti að sækja umboð til að boða kosn­ingar hjá for­seta Íslans, en for­set­inn sagði nei. 

„For­sæt­is­ráð­herra gat ekki full­vissað mig um það hver væri afstaða Sjálf­stæð­is­flokks­ins til þeirrar beiðni. Í ljósi þess tjáði ég for­sæt­is­ráð­herra það að ég væri ekki til­bú­inn til þess nú, eða án þess að hafa rætt við for­mann Sjálf­stæð­is­flokks­ins, að veita honum heim­ild til þless að rjúfa þing,“ sagði Ólafur Ragnar á fundi með frétta­mönnum í hádeg­inu. 

Sig­mundur Davíð greindi frá fyr­ir­ætlun sinni að stefna að þing­rofi ef hann nyti ekki stuðn­ings á Facebook í morgun. Hann hafði ekki ráð­fært sig við þing­flokk Fram­sókn­ar­flokks­ins fyrir það. „Hann hefði kannski átt að segja þing­flokknum frá þessu fyrst,“ sagði Karl Garð­ars­son í fréttum RÚV vegna yfir­lýs­ingar for­manns­ins.

Ólafur Ragnar Grímsson
Ólafur Ragnar Grímsson Neitaði að afhenda Sigmundi vopnið sem hann ætl­aði sér að nota á Sjálf­stæð­is­flokk­inn.

Ekki við hæfi hjá Sigmundi

Í ljósi þess að Sig­mundur opin­ber­aði þá fyr­ir­ætlun sína ákvað for­seti Íslands að tjá sig um fund­inn með Sigmundi. 

Hann sagði það ekki hafa verið auð­velda ákvörðun að gera slíkt en í ljósi yfir­lýs­ingar Sig­mundar Davíð væri eðli­legt að for­seti skýrði frá afstöðu sinni, þar sem hér hefði verið reynt að draga for­set­ann inn í valda­bar­áttu á milli stjórn­mála­flokk­anna og  slíkt væri ekki við hæfi.

„Það hefur verið regla í íslenskri stjórn­skipun að fundir for­seta og for­sæt­is­ráð­herra fari fram í trún­aði og án þess að gerð sé opin­ber grein fyrir því. Þess vegna var það í sjálfu sér ekki ein­föld ákvörðun að ákveða að tala við ykkur. En eins og ég tjáði for­sæt­is­ráð­herra í ljósi þess að hann gerði ykkur og almenn­ingi á Facebókarsíðu sinni að ég held grein fyrir því að hann stendi að þing­rofi og myndi beita því afli í við­ræðum sínum við sam­starfs­flokk­inn að þá væri á vissan hátt verið að draga for­set­ann með ákveðnum hætti inn í deilur eða afl­raunir á milli stjórn­mála­flokk­anna á ákveðnum tíma­punkti og það er ekki við hæfi að for­set­inn sé með þeim hætti dreg­inn inn í atburð­ar­rás eða afl­raunir sem á sér stað frá einni klukku­stund til ann­arar,“ sagði Ólafur Ragnar á blaða­manna­fund­inum, og hélt áfram að ávíta for­sæt­is­ráð­herra. „Þess vegna hefði mér fund­ist óeðli­legt ef ég hefði ekki gert grein fyrir því hvert svar mitt var fyrst að lagt var upp í för­ina hingað til Besssa­staða í dag á þann hátt að fyr­ir­fram fjalla um erindið með þeim hætti sem gert var og til­kynna að það ætti að beita því í við­ræðum við  sam­starfs­flokk­inn síðar í dag.“

Ólafur Ragnar Grímsson hefur því ekki aðeins tekið púðrið úr hótun Sig­mundar Davíðs heldur einnig opin­berað fund­ar­efnið með honum með óvenju­legum hætti.

Sigmundur á Bessastöðum
Sig­mundur á Bessa­stöðum For­sæt­is­ráð­herra flýtti fundi með for­set­anum til að biðja um umboð til að boða kosn­ingar, en fékk neitun.

Sigmundi lá á

Sigmundi Davíð virð­ist hafa legið mikið á að fá heim­ild til að boða til kosn­inga eftir fund hans með Bjarna Bene­dikts­syni. Ólafur Ragnar segir frá því að Sig­mundur hafi viljað flýta fundi með honum.

„Ég hafði nú ekki ætlað mér að halda hér í dag blaða­manna­fund á Bessa­stöðum, en ég tel óhjá­kvæmi­legt í ljósi ummæla for­sæt­is­ráð­herra fyrr í dag og þess fundar sem við höfum átt hér á Bessa­stöðum að ég geri ykkur og þjóð­inni um leið skýra grein fyrir mínum sjón­ar­miðum og afstöðu til þess erindis sem hann kom með hingað til Bessa­staða. Við töl­uðum saman í gær, ég var á leið til lands­ins, í síma, og ákváðum að við myndum hitt­ast hér klukkan eitt í dag. Svo barst mér rúm­lega ell­efu í morgun að for­sæt­is­ráð­herra vildi koma strax hingað til Bessa­staða og ég ákvað að verða við þeirri ósk og frestaði fundi sem ég hafði ákveðið með for­seta þings Kýpur.“

Ólafur Ragnar mun síðar í dag funda með Bjarna Bene­dikts­syni, for­manni Sjálf­stæð­is­flokks­ins, og for­seta Alþingis. Sig­mundur Davíð er hins vegar á leið á þing­flokks­fund hjá Fram­sókn­ar­flokknum þar sem hann mun vænt­an­lega þurfa að útskýra gjörðir sínar.

Einangraður Sigmundur á hlaupum

Útspil Sig­mundar Davíðs í morgun hefur því mis­tek­ist og leitt til þess að hann er enn ein­angr­að­ari en áður.

Uppfært kl. 13.40: Sig­mundur yfir­gaf Stjórn­ar­ráðið og neit­aði að svara spurn­ingum frétta­manns RÚV. Hann sagði að frétta­maður RÚV ætti að líta á Facebook. „Kíktu bara á Facebook, það er jafn­vel betri heim­ild en sumt sem maður heyrir á blaða­manna­fundum.“ Sig­mundur stefndi síðan á Alþing­is­húsið, þar sem hann smeygði sér í gegnum hóp frétta­manna og sagð­ist ætla að tala við þá síðar.

Bless, bless
Bless, bless For­sæt­is­ráð­herra var fljótur að láta sig hverfa eftir fund með for­set­anum og neit­aði að ræða við frétta­menn, en lét þó hafa eft­ir­far­andi eftir sér: Við sjáum til með þetta allt saman, bless, bless.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár