Ólafur Ólafsson er í minnsta klefa Kvíabryggju

Fangi á Kvía­bryggju segir „Óla“ hressan og blanda geði við aðra fanga. Hreiðar Már verður nágranni Ólafs á gang­inum.

Ólafur Ólafsson er í minnsta klefa Kvíabryggju

Kaup­sýslu­mað­ur­inn Ólafur Ólafsson hefur komið sér vel fyrir á Kvía­bryggju á þeim tæpu tveimur vikum sem hann hefur setið inn vegna Al-Thani máls­ins að sögn fanga þar sem Stundin ræddi við.

„Þeir eru bara fínir. Þeir eru ekk­ert bug­aðir, þeir eru bara hressir. Allavega þessi Óli, hann er bara hress,“ segir fang­inn. Hann segir sömu­leiðis að aðrir fangar hafi ekki verið með nein leið­indi við banka­menn­ina.

Fanginn seg­ist þó ekki vita eins mikið um líðan Hreiðars Más Sig­urðs­sonar, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings, en hann hóf afplánun á Kvía­bryggju í dag.

„Ég sá Hreiðar áðan og hann virt­ist bara vera ágætur og Óli bara hress.“

Hann segir að Ólafur hafi ekki ein­angrað sig við kom­una í fang­elsið. „Hann blandar alveg geði. Hann er nátt­úru­lega kannski ekki mikið í kringum liðið, en jú hann er alveg að spjalla.“

Talað hefur verið um mis­munun hvað varðar fram­göngu Fang­els­is­mála­stofn­unar í málum banka­mann­anna sem dæmdir voru fyrir Al-Thani málið. Hvað sem því líður þá virð­ast þeir ekki vera á neinum sér­kjörum í fang­els­inu þar sem Ólafur Ólafsson er í minnsta her­bergi Kvía­bryggju­fang­elsis. „Hann er bara á gang­inum, Óli er í minnsta her­berg­inu. Hann Óli er bara í mót­töku­her­berg­inu,“ segir fang­inn.

Nýkominn á Kvíabryggju
Nýkominn á Kvía­bryggju Að sögn fang­ans verður Heiðar Már nágranni Ólafs Ólafs­sonar í fang­els­inu.
 

Óvíst er hvaða her­bergi Hreiðar Már fær úthlutað en ljóst er að hann verður á sama gangi og Ólafur. „Það er ekk­ert laust í hinu hús­inu svo hann verður bara á gang­inum,“ segir fang­inn.   

Heiðar Már fékk fimm og hálfs árs fang­els­is­dóm á meðan Ólafur Ólafsson fékk fjög­urra og hálfs árs dóm.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár