Nuddþjónusta í Grafarholti: Nudda bera viðskiptavini með brjóstum og lærum

Tantrísk nudd­þjón­usta í Graf­ar­holti fær yfir sjö millj­ónir króna í tekjur. Konur, sem starfa við nudd­þjón­ust­una, nudda bera við­skipta­vini með brjóst­unum. Starfs­maður segir að ekki sé um kyn­líf að ræða, heldur ást og kær­leika.

Nuddþjónusta í Grafarholti: Nudda bera viðskiptavini með brjóstum og lærum

Sjálfs­eign­ar­fé­lagið Tantra­hofið ehf. býður upp á nudd­þjón­ustu þar sem fáklædd kona nuddar við­skipta­vini meðal ann­ars með brjóstum sínum. Rekst­ur­inn afl­aði 7,2 millj­óna króna tekna á síð­asta ári.

Starfs­maður nudd­þjón­ust­unnar segir í sam­tali við Stundina að ekki sé um að ræða kyn­lífs­þjón­ustu.

„Við bjóðum upp á tantra­nudd. Við nuddum með höndum og öðrum lík­ams­hlutum, til dæmis hári, fót­leggjum og brjóstum. Þetta er mjög náið og eró­tískt en samt ekki kyn­lífs­þjón­usta,“ segir Magda­lena, starfs­maður nudd­stof­unnar Tantra­hofs­ins í sam­tali við Stundina.

Á vef fyr­ir­tæk­is­ins er körlum og konum boðið að upp­lifa leynd­ar­dóma tantra í formi munúð­ar­fulls nudds. „Við snertum ekki kyn­færin og það er aldrei sáð­lát í nudd­inu. Í tantra lærum við að skilja að full­næg­ingu og sáð­lát,“ segir starfs­mað­ur­inn aðspurður hversu langt þjón­ustan nær.

Nuddari á g-streng

„Nuddið er heil lík­ami við lík­ama nudd þar sem nudd­ar­inn (kven­kyns) á mjög skap­andi nautna­fullan hátt snertir allan lík­amann með höndum auk mis­mun­andi hlutum lík­ama síns, svo sem brjóstum, fótum, hári o.fl. nuddið getur verið veitt af einum eða tveimur nudd­urum. Nudd­þeg­inn er nak­inn í nudd­inu og nudd­ar­inn er aðeins í g-streng,“ segir í kynn­ingu á nuddi fyrir karla á vefnum. 

Magda­lena segir að vel sé hægt að upp­lifa full­næg­ingu í öllum lík­am­anum án sáð­láts, jafn­vel rað­full­næg­ingar. Þetta eigi bæði við um konur og karla. Aðspurð hvort margir starfi hjá Tantra­hof­inu segir hún: „Nei, ekki miðað það sem tíðkast til dæmis í Danmörku. Við erum auð­vitað á Íslandi en í Danmörku er fólk mun opn­ara gagn­vart þess­ari starf­semi. Þetta er auð­vitað ekki fyrir alla.“

„Þetta er fullt af feg­urð og ást en ekki kyn­ferð­is­legt.“

Fegurð og ást en ekki kynferðislegt

Magda­lena segir marga halda að um kyn­lífs­þjón­ustu sé að ræða, en svo sé hins vegar ekki. „Þetta er fullt af feg­urð og ást en ekki kyn­ferð­is­legt. Við kennum tantra og jóga, pör geta komið og lært hjá okkur og beitt tækn­inni í eigin til­huga­lífi.“

Magda­lena segir tryggt að nuddið leiði ekki til sáð­láts fyrir mis­tök. „Nei, það ger­ist ekki. Hér vinnur fólk sem er mjög fært,“ svarar hún og bætir við: „Þegar menn fá sáð­lát missa þeir þann kraft sem hefur magnst upp, og hver væri til­gang­ur­inn í því?“

Klúr styttaHof Hindú í Indlandi sýnir tantra­nudd.

Holdris heimilt

Magda­lena segir að það sé ekk­ert til­töku­mál þótt menn fái hold­ris meðan á þjón­ust­unni stendur. Hins vegar séu kyn­færa­svæði aldrei snert. „Það er reynsla okkar að það er ekki fyrr en að sá sem stundar tan­trísk fræði hefur sannað sig og hefur upp­götvað eró­tíska mögu­leika sína að hann er til­búin til að upp­lifa lingam nudd,“ segir á vef nudd­stof­unnar.

Aðspurð hvort margir komi og haldi að um vænd­is­þjón­ustu sé að ræða segir Magda­lena að slíkt sé ekki algengt. Auk þess hafi aldrei nein vanda­mál komið upp. Flestir komi, fái kynn­ingu og fræðslu og sjái þá að ekki er um vændi að ræða. „Fyrir okkur snýst þetta ekki um pen­ingaplokk heldur að kynna til sög­unnar þessa tækni, þessa speki. Þetta er lífstíll okkar,“ segir hún. 

„Þetta er mjög náið og eró­tískt, en samt ekki kyn­lífs­þjón­usta.“

„Nuddar með brjóstunum“

Þegar mögu­legur kúnni hringdi í Tantra­hofið var eft­ir­far­andi lýs­ing gefin á starf­sem­inni: „Tantra­nudd er slak­andi nudd, eró­tískt og náið. Við nuddum allan lík­amann nema kyn­færin. Við nuddum ekki bara með höndum, heldur líka hári, lærum og brjóstum. Þetta er mjög náið og eró­tískt, en samt ekki kyn­lífs­þjón­usta. Við snertum ekki kyn­færin og það er aldrei sáð­lát. Það er hægt að fá full­næg­ingu í öllum lík­am­anum án sáð­láts. Í tantra lærum við að skilja að full­næg­ingu og sáð­lát.“ Þá kom fram að kúnn­inn væri nak­inn en nudd­ar­inn í g-streng einum klæða. „Hún er næstum nakin og nuddar með brjóstum.“

Samkvæmt svörum nudd­þjón­ust­unnar er um hóp nudd­ara að ræða. „Það er ekki hægt að velja. Við erum hópur af konum sem erum að nudda, en það er ekki hægt að velja. Allar eru mjög góðar í því sem þær gera.“ 

Þjónustan kostar 27 þúsund

Tantra­hofið er til húsa í ein­býl­is­húfi í Graf­ar­holti. Þjón­ustan kostar 27 þús­und krónur og getur tekið allt að tvo tíma. „Þetta getur kannski tekið tvo tíma ef þú vilt fara í sturtu fyrir og eftir nuddið og þú færð vatn og ávexti eftir nuddið,“ segir starfs­mað­ur­inn. Þá er boðið upp á fjög­urra handa nudd á 45 þús­und krónur.

Við­skipta­blaðið fjall­aði um hagnað Tantra­hofs­ins fyrr í dag, en félagið skil­aði árs­reikn­ingi á dög­unum. Um er að ræða sjálfs­eign­ar­stofnun sem skil­aði 265 þús­und króna hagn­aði á síð­asta ári. Samkvæmt frétt Við­skipta­blaðs­ins var tap á Tantra­hof­inu í fyrra um 98 þús­und krónur en tekjur af sölu á vöru og þjón­ustu námu 7,2 millj­ónum króna. Þetta eru 264 nudd­lotur sé miðað við að hvert nudd sé tveggja handa nudd. Við­skipta­blaðið greinir frá að eignir félags­ins hafi numið 1,7 millj­ónum króna meðan skuldir voru 1,1 milljón króna og eigið fé var 650 þús­und krónur. 

Hér fyrir neðan má sjá mynd­band frá dönsku úti­búi Tantra­hofs­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár