Neyðarástand á Landspítalanum í sumar

Til­raunir Land­spít­al­ans til að bregð­ast við mönn­un­ar­vanda spít­al­ans hafa ekki borið árangur. Nemendur sem útskrif­ast munu sem hjúkr­un­ar­fræð­ingar næsta sumar ætla ekki að vinna á spít­al­anum.

Heilbrigðiskerfið
Heil­brigð­is­kerfið Glímir við mönn­un­ar­vanda.

Skortur á hjúkr­un­ar­fræð­ingum ríkir um allt land. Gríð­ar­leg und­ir­mönnun er á Land­spít­al­anum en meiri­hluti nema sem munu útskrif­ast úr hjúkr­un­ar­fræði í vor ætlar ekki að starfa hjá spít­al­anum. Nemarnir sætta sig ekki við þau laun sem nýút­skrif­uðum hjúkr­un­ar­fræð­ingum býðst á spít­al­anum og geta fengið betri kjör hjá stofn­unum sveit­ar­fé­lag­anna. Land­spít­al­inn hefur brugð­ist við, meðal ann­ars með því að inn­leiða hvata­kerfi sem umb­unar þeim sem vinna meiri yfir­vinnu, vaktir á kvöldin, næt­urnar og um helgar. „Þetta hefur ekki höfðað sterk­lega til útskrift­ar­hóps­ins sem stendur fastur á því að launin eigi að vera hærri,“ segir Sigríður Gunn­ars­dóttir, fram­kvæmd­ar­stjóri hjúkr­unar á Land­spít­al­anum. Hún segir spít­al­ann líta málið mjög alvar­legum augum. 

Í sumar, þegar fast­ráðnir hjúkr­un­ar­fræð­ingar fara í sum­ar­frí og nýir hjúkr­un­ar­fræð­ingar taka ekki við, má búast við gríð­ar­legri und­ir­mönnun á spít­al­anum. Auk þess hafa starfs­menn sjúkra­húss­ins lýst yfir áhyggjum af því hversu margir hjúkr­un­ar­fræð­inga kjósa fremur að vinna hjá flug­fé­lög­unum á sumrin …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár