Myndband sýnir mótmælendur dregna út úr innanríkisráðuneytinu

Hópur fólks mót­mælti brott­vísun Eze Okafor og krafð­ist þess að fá að tala við Ólöfu Nordal inn­an­rík­is­ráð­herra. Segja hana skor­ast undan ábyrgð í mál­inu. Á mynd­bandi má sjá hvernig lög­reglu­menn drógu mót­mæl­endur úr and­dyri húss­ins við lokun.

Myndband sýnir mótmælendur dregna út úr innanríkisráðuneytinu
Skrif­stofu­stjóri og mót­mæl­endur Hermann Sæmunds­son, skrif­stofu­stjóri hjá inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu, hlýddi á kröfur mót­mæl­enda. Mynd: Paul Fontaine

Lög­reglu­menn drógu mót­mæl­endur út úr inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu fyrr í dag þegar þeir kröfð­ust þess að hitta Ólöfu Nordal ráð­herra vegna brott­flutn­ings Eze Okafor úr landi eftir fjög­urra ára búsetu á Íslandi. Atburð­inn má sjá á mynd­bandi neðar í frétt­inni.

„Það er bara verið að gera allt til þess að fá Ólöfu [Nordal] til þess að gang­ast við þeirri ábyrgð sem hennar emb­ætti á að bera og að hún feli sig ekki enda­laust á bak við stofn­anir sem heyra undir hennar emb­ætti,“ segir Hjalti Hrafn Haf­þórs­son, heim­spek­ingur og tals­maður No Borders, í sam­tali við Stundina.

Meðlimir sam­tak­anna og ýmsir aðrir mót­mæltu brott­vísun hæl­is­leit­and­ans Eze Okafor til Sví­þjóðar harð­lega í ráðu­neyt­inu í dag. Hermann Sæmunds­son, skrif­stofu­stjóri hjá inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu, ræddi við mót­mæl­endur og tók við kröfum þeirra eins og sjá má á með­fylgj­andi mynd­bandi.

„Bring back Eze!“

Þeir stuðn­ings­menn Eze sem Stundin hefur rætt við eru óánægðir með við­bragða­leysi inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins í mál­inu og það sem þau kalla algjöra þögn Ólafar Nordal inn­an­rík­is­ráð­herra. „Við teljum mjög mik­il­vægt að hún fái ekki að fara í gegnum þetta allt saman í ein­hverri þögn og varpi síðan allri ábyrgð yfir á Útlend­inga­stofnun,“ segir Hjalti Hrafn í sam­tali við Stundina. „Það hefur verið hennar háttur hingað til, hún bara lætur ekk­ert í sér heyra um mál, vill ekk­ert tala við neinn um þessi mál og þyk­ist svo ekki bera neina ábyrgð á þeim,“ segir Hjalti og bætir við: „Hún verður bara að gjöra svo vel að gera það í þetta skipti.“

Sjá einnig: Hrópaði á Jesú meðan hann var tek­inn lög­reglutaki

Í óeirðargallanum
Í óeirð­ar­gall­anum Lög­reglu­menn stóðu vakt­ina í óeirð­ar­gall­anum eins og sjá má á þess­ari mynd.

„Hún bara lætur ekk­ert í sér heyra um mál, vill ekk­ert tala við neinn um þessi mál og þyk­ist svo ekki bera neina ábyrgð á þeim“

Talið er að um sex­tíu manns hafi mót­mælt þegar mest var. Mót­mæl­endur hróp­uðu ýmis slag­orð, meðal ann­ars „Bring back Eze!“ en það hefur orðið að eins­konar slag­orði þeirrar hreyf­ingar sem virð­ist vera að mynd­ast í kring um málið. Mótmælin þró­uð­ust síðar yfir í setu­verk­fall þar sem mót­mæl­endur tóku sér sæti í and­dyri ráðu­neyt­is­ins og kröfð­ust þess að fá að ræða við ráð­herra. Setu­verk­fallið stóð yfir þar til skrif­stofum inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins var lokað klukkan fjögur. Þá tóku lög­reglu­menn í óeirð­ar­bún­ingum til við að hreinsa and­dyri ráðu­neyt­is­ins með því að draga fólk út með valdi og henda því út líkt og sést á með­fylgj­andi mynd­bandi sem Stundin birtir.

Þögul mótmæli á þingpöllum

Eze hefur verið gert að yfir­gefa Svíþjóð ekki síðar en á morgun, mið­viku­dag­inn 1. júní, en öll rök íslenskra yfir­valda byggja á því að Svíþjóð taki við honum og þar fái hann rétt­láta máls­með­ferð. Eze ótt­ast um líf sitt verði hann sendur aftur til Nígeríu en hann flúði þaðan árið 2011 eftir að liðs­menn Boko Haram höfðu ráð­ist á hann og drepið bróður hans í borg­inni Mai­dug­uri í norð-aust­ur­hluta Nígeríu. „Þetta er bara spurn­ing um ein­hverjar klukku­stundir,“ segir Hjalti Hrafn sem bendir á að bar­áttan sem standi nú yfir geti hrein­lega snú­ist um líf eða dauða Eze. Þetta sé ein ástæða þess að ein­hverjir hafi haldið mót­mæl­unum áfram fyrir utan Alþing­is­húsið og farið upp á þing­palla.

Sjá einnig: Hand­tek­inn, fluttur úr landi án fyr­ir­vara og beittur ofbeldi þegar hann mót­mælti

Spiluðu tónlist
Spiluðu tón­list Ein­hverjir mót­mæl­endur spil­uðu tón­list á meðan á mót­mæl­unum stóð.

„Eftir að okkur var hent út úr ráðu­neyt­inu með með valdi fórum við á þing­palla,“ segir Jórunn Edda Helga­dóttir, önnur þeirra kvenna sem hand­teknar voru í flug­vél Icelandair þegar þær mót­mæltu brott­vís­un­inni, í sam­tali við Stundina. „Þar sátum við í þögn í rúman klukku­tíma, eða þangað til klukkan 18:00 þegar atkvæða­greiðsla var að hefj­ast og þing­menn fóru að týn­ast í sal­inn. Þá stóðum við upp saman og gengum út eftir að eitt okkar hafði óskað þess við sal­inn að þing­menn myndu nýta fyr­ir­spurn­ar­tíma á morgun til þess að spyrj­ast fyrir um vinnu­brögð Útlend­inga­stofn­unar í máli Eze Okafor.“

Vinur Eze talar um dauðadóm

Reykja­vik Grapevine fjallar um málið en þar er haft eftir vini Eze, sem er einnig frá Nígeríu að Eze bíði dauða­dómur í Nígeríu. „Eze er að horfa fram á dauða­refs­ingu,“ sagði hann í and­dyri inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins. „Hann verður færður í hendur Boko Haram þegar hann kemur aftur til Nígeríu. Það er eng­inn friður í Nígeríu. Ég biðla til íslenskra stjórn­valda að koma með hann aftur hingað. Hann á ekki í úti­stöðum við neinn hér,“ sagði vin­ur­inn sem líkti brott­vís­un­inni við það dauða­dóm.

Færð út með valdi
Færð út með valdi Mót­mæl­endur sem höfðu tekið þátt í setu­verk­falli voru teknir með valdi út úr and­dyri ráðu­neyt­is­ins.

„Það er margoft búið að reyna að ná tali af inn­an­rík­is­ráð­herra, hún hefur ávallt neitað“

Sem fyrr segir stóð Hermann Sæmunds­son, skrif­stofu­stjóri hjá inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu, fyrir svörum og ræddi við mót­mæl­endur fyrir hönd ráðu­neytis og ráð­herra. „Það er margoft búið að reyna að ná tali af inn­an­rík­is­ráð­herra, hún hefur ávallt neitað,“ sagði einn mót­mæl­enda í sam­tali við skrif­stofu­stjór­ann fyrr í dag.

„Nú hef ég tekið við ykkar boð­skap,“ svar­aði Hermann en stuðn­ings­maður Eze greip fram í: „Já, það er ekki í fyrsta skiptið sem það hefur verið tekið á móti okkar boð­skap og það eru aldrei nein svör eða úrræði. Við erum búin að fá leið á þessu.“

Þá var Hermann spurður hvort hann hefði ein­hver skila­boð frá Ólöfu og hann svar­aði því neit­andi. Jórunn Edda Helga­dóttir, önnur þeirra kvenna sem hand­teknar voru í flug­vél Icelandair þegar þær mót­mæltu brott­vís­un­inni, sagði að mót­mæl­endur vildu ein­dregið hitta Ólöfu Nordal sjálfa þar sem skila­boð á milli mót­mæl­enda og ráð­herra, í gegnum hvers kyns milli­liði, virt­ust sífellt fara for­görðum.

Rúmlega 1600 skora á Ólöfu

Óttast um líf sitt
Óttast um líf sitt Eze Okafor, hæl­is­leit­andi frá Nígeríu, var sendur út landi í síð­ustu viku. Hann ótt­ast um líf sitt verði hann sendur aftur til Nígeríu líkt og sænsk yfir­völd fyr­ir­huga.

Mál Eze Okafor hefur vakið mikla athygli og verið mikið til umfjöll­unar fjöl­miðla síð­ustu daga. Bent hefur verið á að með henni sé Útlend­inga­stofn­una að fara gegn fyr­ir­mælum æðra stjórn­valds, kæru­nefndar útlend­inga­mála.

„Úrskurði kæru­nefndar verður ekki hnekkt af Útlend­inga­stofnun sem er lægra sett stjórn­vald, það brýtur gegn íslenskri stjórn­skipan,“ sagði Katrín Theó­dórs­dóttir, lög­maður Eze, í sam­tali við Stundina á mið­viku­dag. Útlend­inga­stofnun hefur hafnað þessu og sakar Katrínu sem og fjöl­miðla um rang­færslur, í til­kynn­ingu á heima­síðu sinni. Er það álit stofn­un­ar­innar að í úrskurð­inum sé Eze ein­ungis leið­beint um að afla upp­lýs­inga hjá Útlend­inga­stofnun um það hvort frest­ur­inn sé lið­inn.

Það vakti mikla athygli þegar tvær konur mót­mæltu brott­vísun Eze í flug­vél Icelandair með eft­ir­minni­legum hætti. Hópur fólks hefur nú tekið sig saman og hafið söfnun til styrktar kon­unum tveimur, þeim Ragn­heiði Freyju Krist­ín­ar­dóttur og Jórunni Eddu Helga­dóttur, á söfn­un­ar­síð­unni Indi­egogo. Þar segir að þær geti átt von á kostn­að­ar­sömum rétt­ar­höldum en í kæru sem lög­regla hefur kynnt þeim og hyggst leggja fram í fjórum liðum er gefið til kynna að þær hafi reynt að taka stjórn flug­vél­ar­innar. Refsiramm­inn fyrir þá grein felur í sér tveggja ára fang­els­is­dóm, hið minnsta.

Sjá einnig: Hand­teknar í flug­vél: Þeir voru að leika sér að því að meiða mig

Mót­mæl­endur ávörp­uðu þing­menn í þing­sal kl. 18:00 í kvöld, að því er fram kemur í til­kynn­ingu sem No Borders sam­tökin og Vinir Eze, sendu frá sér nú í kvöld. „Lagaleg staða Eze í Svíþjóð er sú að honum hefur verið neitað um máls­með­ferð og sagt að hann verði sendur beint til Nígeríu við það fyrsta. Þetta und­ir­strikar ábyrgð íslenskra stjórn­valda þar sem mann­rétt­inda­lög, þar á meðal Flótta­manna­sátt­máli Sam­ein­uðu þjóð­anna, Mann­rétt­inda­sátt­mála Evrópu auk Samnings S.Þ. um pynt­ingar, kveða skýrt á um að ekki megi vísa ein­stak­ling til baka þangað sem líf ein­stak­lings er ótryggt,“ segir í til­kynn­ing­unni. Þá und­ir­strika vinir Eze og No Borders Iceland  kröfu sína um að brott­vísun verði dregin til baka og máls­með­ferð Eze verði skoðuð.

1600 manns hafa skrifað undir áskorun á vefnum change.org þess efnis að Ólöf Nordal inn­an­rík­is­ráð­herra beiti sér fyrir því að Eze Okafor fái að koma aftur til lands­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Flóttamenn

Fá ekki að læra hér frekar en í Afganistan
FréttirFlóttamenn

Fá ekki að læra hér frekar en í Afganistan

Í Afganistan var þeim bannað að læra. Á Íslandi hafa þær mætt hindr­unum í hvert sinn sem þær hafa reynt að kom­ast í skóla. Þær þrá ekk­ert heitar en að læra íslensku, kom­ast inn í sam­fé­lagið og sækja sér háskóla­menntun. En þær eru fastar; kom­ast ekki út úr störfum sínum sem hót­el­þernur þar sem þær hafa engin tæki­færi til að þjálfa íslensk­una: lyk­il­inn að sam­fé­lag­inu.
Ágreiningurinn um útlendingamálin
Greining

Ágrein­ing­ur­inn um útlend­inga­málin

„Ég tel ekki að slík frum­vörp eigi erindi inn í þingið,“ sagði Svandís Svav­ars­dóttir. „Þar erum við inn­við­a­ráð­herra held ég ósam­mála,“ svar­aði Guðrún Haf­steins­dóttir. Þetta var gam­alt stef og nýtt, að flokk­arnir væru ósam­mála í útlend­inga­málum, en það hafði þó varla verið jafn skýrt fyrr en rétt áður en stjórnin féll, skömmu áður en Guðrún ætl­aði sér að leggja fram frum­varp um lokað búsetu­úr­ræði.

Mest lesið

Hildur segir tillögu um bókasöfn hafa verið óheppilega orðaða
4
Stjórnmál

Hildur segir til­lögu um bóka­söfn hafa verið óheppi­lega orð­aða

Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri hafnar því að meiri­hlut­inn í Reykja­vík hafi þurft að bakka með áform um hag­ræð­ingu í rekstri Borg­ar­bóka­safns­ins vegna mót­mæla. „Það stendur ekki til að loka bóka­söfnum,“ segir hún. Í til­lög­unni er meðal ann­ars lagt til að skoðað verði hvort hægt sé að fækka rekstr­ar­ein­ingum og sam­eina starf­semi bóka­safna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár