Flúði hryðjuverkahóp og fær nýtt líf á Íslandi

Sautján ára hæl­is­leit­andi frá Sómalíu fékk þær fréttir skömmu fyrir jól að hann fengi að dvelja á Íslandi. Hann seg­ist nú í fyrsta sinn í þrjú ár finna fyrir jafn­vægi í líf­inu.

Muhiyo Hamad
Muhiyo Hamad Hann var sextán ára þegar hann kom til Íslands eftir rúm tvö ár á flótta. Mynd: Kristinn Magnússon

„Ég fékk kenni­töl­una mína áðan.“ Þannig byrjar Muhyio Hamad sam­talið í þetta sinn og það er mun bjart­ara yfir honum en síð­ast þegar hann hitti blaða­mann Stund­ar­innar. Þá var hann bug­aður, von­laus og hafði reynt að svipta sig lífi. Nú hefur hann von, nokkuð sem hann hefur ekki fundið fyrir svo árum skiptir, því honum hefur verið veitt dval­ar­leyfi á Íslandi. 

Stundin rakti sögu Muhiyos í októ­ber síð­ast­liðnum. Hann hafði komið hingað til lands einn síns liðs sextán ára gam­all, eftir að hafa dvalið í tvö ár í Svíþjóð en verið synjað um dval­ar­leyfi þar. Til Sví­þjóðar komst hann eftir miklar hrakn­ingar. Fyrst fór hann frá Sómalíu til Íran, þaðan fót­gang­andi yfir fjöllin til Tyrk­lands og svo frá Tyrk­landi til Grikk­lands. Hann fór með báti yfir Mið­jarð­ar­hafið, sem hvolfdi, og var einn fárra sem lifði þá ferð af. Þegar hann loks komst til Sví­þjóðar hélt hann að honum væri borgið en þar skjátl­að­ist honum, því síðan eru liðin nær þrjú ár af óvissu.

 

Hryðju­verka­hópurPilt­ur­inn var inn­limaður í hryðju­verka­hóp­inn Als­habbab, en náði að forða sér úr haldi hóps­ins eftir einn mánuð. 

Nær langþráðu jafnvægi

Fyrir rúm­lega þremur árum, þegar Muhiyo Hamad var fjór­tan ára, var honum rænt af liðs­mönnum hryðju­verka­sam­tak­anna Alshabab í Sómalíu. Í skítugu húsi langt inni í skógi lenti hann í þjálf­un­ar­búðum hryðju­verka­mann­anna. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár