Rangt að ekki hafi verið mótmælt 17. júní

Að minnsta kosti fjórum sinnum hefur verið mót­mælt á 17. júní frá alda­mótum. Sam­fé­lags­miðlar gera mót­mæl­endum auð­veld­ara fyrir að skipu­leggja mót­mælin. Stefán Pálsson sagn­fræð­ingur segir Íslend­inga fljóta að gleyma.

Rangt að ekki hafi verið mótmælt 17. júní

Borið hefur á mik­illi óánægju með fyr­ir­huguð mót­mæli á Aust­ur­velli á morgun, 17. júní, en um 3400 manns hafa boðað komu sína á mót­mæla­fund. Guðfinna Jóhanna Guð­munds­dóttir, borga­full­trúi Fram­sóknar og flug­vall­ar­vina, skrif­aði um málið á Facebook síðu sína í morgun og þá skrif­aði Kolbrún Berg­þórs­dóttir, rit­stjóri DV, leið­ara í blað dags­ins þar sem hún sagð­ist von­ast til þess að þjóðin fái að hvíla sig á reið­inni á þjóð­há­tíð­ar­dag­inn. Á mbl.is er meðal ann­ars spurt hvort um sé að ræða fyrstu mót­mælin á 17. júní og haft er eftir Arnari Rúnari Mart­eins­syni, aðal­varð­stjóra hjá lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, að hann muni ekki eftir öðrum skipu­lögðum mót­mælum á þjóð­há­tíð­ar­dag­inn. „Ég hef nú bara verið hérna í 30 ár en ég man ekki eftir því. Það hafa ein­hverjir menn komið með skilti en engin skipu­lögð mót­mæli,“ segir hann.

Stefán Pálsson sagn­fræð­ingur vakti hins vegar athygli á því á Facebook- síðu sinni í morgun að mót­mæli á þjóð­há­tíð­ar­deg­inum væri engin nýlunda hér á landi. „Það man aldrei neinn neitt,“ segir hann og segir alla vera búna að gleyma Icesave-mót­mæl­unum á Aust­ur­velli 17. júní árið 2009 og Falun Gong mót­mæl­unum árið 2002. Stefán segir fólk oft hafa mætt með mót­mæla­spjöld á hátíð­ar­höldin en sjald­gæfara sé að það stefni til mót­mæla á sama tíma og hátíð­ar­höld fara fram. „Ég held að það sé að hluta til afleið­ing sam­fé­lags­miðla að í dag get­urðu með mjög óform­legum hætti stefnt til mót­mæla.“

Stundin rifj­aði upp nokkur mót­mæli á þjóð­há­tíð­ar­degi Íslend­inga. 

Frammíköll undir ræðu ráðherra 

Árið 2009 safn­að­ist hópur fólks saman við hátíð­ar­svæðið á Aust­ur­velli til þess að mót­mæla því sem því þótti betur mega fara og koma skoð­unum sínum á fram­færi, eins og segir í frétt Morg­un­blaðs­ins af mál­inu. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Spurningaþraut Illuga: Noregskonungar, viskugyðjur og eitt fjall
5
Þrautir

Spurn­inga­þraut Illuga: Nor­egs­kon­ungar, visku­gyðjur og eitt fjall

Hver var Nor­egs­kon­ungur þá Íslend­ingar gengu Norð­mönnum á hönd – að minnsta kosti sam­kvæmt hefð­bund­inni sögu­skoðun? Hvað heitir sú kona í Banda­ríkj­unum sem var fyrir rétti sökuð um að myrða börn sín þrjú? Ann­að­hvort skírnar- eða eft­ir­nafn dugar. Árið 1975 var Jónas Krist­jáns­son rek­inn sem rit­stjóri Vísis og stofn­aði þá ásamt sam­starfs­fólki nýtt dag­blað. Hvað nefnd­ist það? Hvað heitir nýorðin...

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár