Mótmælahópur býður börn Bjarna velkomin á „meðmæli“ við heimili hans

Hópurinn Beinar aðgerðir bregst við gagn­rýni á mót­mæla­röð við heim­ili ráð­herra.

Mótmælahópur býður börn Bjarna velkomin á „meðmæli“ við heimili hans

Eftir mikla gagn­rýni á fyr­ir­huguð mót­mæli við heim­ili Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála­ráð­herra og fleiri ráð­herra hefur mót­mæla­hóp­ur­inn Beinar aðgerðir ákveðið að breyta for­skrift atburð­ar­ins í „með­mæli“ með því að hann og rík­is­stjórn hans segi af sér. Þá býður hóp­ur­inn börn Bjarna vel­komin á með­mælin í yfir­lýs­ingu. 

„Ólíkt Bjarna Bene­dikts­syni og rík­is­stjórn Sigurðar Inga erum við þó fær um að hlusta á raddir almenn­ings varð­andi vel­ferð barna og taka þær til greina. Vegna þessa verður atburð­ur­inn end­ur­nefndur „Meðmæli við heim­ili Bjarna Bene­dikt­sonar.“ og ein­blínt verður á það að gera hann ein­stak­lega fjöl­skyldu­vænan þar sem börn Bjarna, eins og önnur börn, verða boðin sér­stak­lega vel­komin, þeim gefið tæki­færi á því að taka þátt og leyfa röddum sínum að heyr­ast,“ segir í yfir­lýs­ing­unni.

Atburð­ur­inn við heim­ili Bjarna er enn á dag­skránni þann 1. maí næst­kom­andi. Honum hefur verið mót­mælt harð­lega á Facebook-síðu beinna aðgerða. Í könnun sem gerð var á vegg síð­unnar kemur fram að 220 telja að mót­mæli sem þessi ættu að vera ólög­leg, 66 sögðu að þau ættu ekki að vera ólög­leg og 22 sagði þau sið­laus en ekki ólög­leg. Þá sagði Helgi Hrafn Gunn­ars­son, þing­maður Pírata, að mót­mælin myndu aðeins „ein­ungis styrkja stöðu vald­hafa, ofan á að vera sið­ferð­is­lega röng“ að mót­mæla við heim­ili Bjarna.

For­svars­menn Beinna aðgerða hafa svarað gagn­rýni á Facebook-síðu sinni með því að birta myndir af börnum í hippa­klæðum og með yfir­lýs­ingu þar sem segir meðal ann­ars: „Hörð við­brögð við eins sak­lausum mót­mæla­at­burði koma okkur veru­lega á óvart. Ekki hefur borið á gagn­rýn­is­röddum gegn mót­mælum við heim­ili for­set­ans við Bessa­staði, og rétt ber að minn­ast á að miðað var við frið­sam­lega grill­veislu­stemn­ingu fyrir utan lóð­ar­mörk frá blá­byrjun.“

Yfir­lýs­ingu Beinna aðgerða hefur verið mis­jafn­lega tekið. Á síðu þeirra seg­ist einn ætla að kjósa Sjálf­stæð­is­flokk­inn vegna hóps­ins. Þá bendir Helga Soffía Ein­ars­dóttir á að munur sé á einka­heim­ilum ráð­herra og for­seta Íslands. „Bessa­staðir er opin­ber bústaður for­seta Íslands og í eigu rík­is­ins á meðan heim­ili ráð­herra eru það ekki og þar liggur mun­ur­inn. Mér finnst þetta alveg afleit umræða, öll börn eiga að njóta frið­helgi sama hverra manna þau eru.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

4
Stjórnmál

Hildur segir til­lögu um bóka­söfn hafa verið óheppi­lega orð­aða

Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri hafnar því að meiri­hlut­inn í Reykja­vík hafi þurft að bakka með áform um hag­ræð­ingu í rekstri Borg­ar­bóka­safns­ins vegna mót­mæla. „Það stendur ekki til að loka bóka­söfnum,“ segir hún. Í til­lög­unni er meðal ann­ars lagt til að skoðað verði hvort hægt sé að fækka rekstr­ar­ein­ingum og sam­eina starf­semi bóka­safna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár