Mótmæli: Aukinn vopnaburður lögreglu án umræðu og eftirlits

Boðað hefur verið til mót­mæla fyrir framan hús­næði lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í dag. Engin umræða hefur verið um málið á Alþingi. Lög­gæslu­yf­ir­völd gagn­rýnd fyrir „leyni­makk“ og mis­vísandi svör.

Mótmæli: Aukinn vopnaburður lögreglu án umræðu og eftirlits

Boðað hefur verið til mót­mæla fyrir framan hús­næði lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í klukkan fimm í dag vegna frétta af auknum vopna­burði lög­regl­unnar. Örvar Geir Geirsson, skipu­leggj­andi mót­mæl­anna, segir vopn­væð­ingu lög­reglu ekki í takti við íslenskan raun­veru­leika þar sem glæpa­tíðni hefur bæði lækkað. Þá hafi árásum á lög­reglu­þjóna sömu­leiðis fækkað og því haldi rökin um öryggi lög­reglu­þjóna ekki heldur vatni. „Öll glæpa­töl­fræði segir að hlut­irnir hafa batnað hérna á Íslandi frekar en versnað, þannig þessi ákvörðun er ekki í takt við neina þróun.“   

Rúmlega átta hund­ruð manns skrifað undir áskorun á net­inu til lög­gæslu­yf­ir­valda um að end­ur­skoða ákvörðun sína um að hafa byssur í lög­reglu­bílum en Frétta­blaðið sagði frá því í síð­ustu viku að stefnt væri að því að skamm­byssum yrði komið fyrir í sér­stökum vopna­kassa í lög­reglu­bílum um miðjan des­em­ber. Einnig er skorað á Ólöfu Nordal inn­an­rík­is­ráð­herra að breyta reglu­gerðum varð­andi skot­vopn við lög­gæslu þannig ekki fari á milli mála að lög­reglu sé óheim­ilt að keyra um með slík tól við venju­leg lög­gæslu­störf.  

Til þessa hefur sér­sveitin verið eina lög­reglu­liðið á höf­uð­borg­ar­svæð­inu með vopn á sér og eru sér­sveit­ar­menn sér­þjálfaðir til þess að nota vopn í starfi. Til­gang­ur­inn með breyt­ing­unum er sagður vera að minnka við­bragðs­tíma vopn­aðra lög­reglu­manna, en það getur tekið sér­sveit rík­is­lög­reglu­stjóra nokkurn tíma að mæta á vett­vang. Lög­reglu­þjónar munu ekki koma til með að hafa aðgang að skamm­byss­unum nema þar til bær yfir­maður láti þeim í té aðgangskóða að vopna­kass­anum eftir að hann hefur verið upp­lýstur um mála­vexti. Yfir­maður mun þá meta nauð­syn þess í hverju til­viki fyrir sig.  

Engin umræða á Alþingi

Fjöl­margir hafa furðað sig á því að engin umræða fór fram á Alþingi um málið. Helgi Hrafn Gunn­ars­son, þing­maður Pírata, spurði Ólöfu Nordal 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár