Morgunblaðið: Mistökin í lekamálinu voru að birta upplýsingarnar ekki opinberlega

Leið­ara­höf­undur Morg­un­blaðs­ins segir Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur ekki hafa verið ger­anda í leka­mál­inu. Leggur leka á per­sónu­upp­lýs­ingum að jöfnu við leka á opin­berum skýrslum.

Morgunblaðið: Mistökin í lekamálinu voru að birta upplýsingarnar ekki opinberlega
Hanna Birna ekki ger­andi Leið­ara­höf­undur Morg­un­blaðs­ins segir Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur, fyrr­ver­andi inn­an­rík­is­ráð­herra, ekki hafa verið ger­anda í leka­mál­inu. Mynd: Geirix

Leka­málið er umfjöll­un­ar­efni leið­ara­höf­undar Morg­un­blaðs­ins í dag í til­efni að kveðju­ræðu Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur á lands­fundi Sjálf­stæð­is­flokks­ins um helg­ina. Telur höf­undur ástæðu­laust að efast um að Hanna Birna geti náð sér á strik aftur enda liggi „hið svo­kall­aða „leka­mál““ nú fyrir og ekk­ert bendi til að Hanna Birna hafi verið ger­andi í því. 

„Það má stór­lega efast um að þessi „leki“ hafi verið alvar­legri en fjöl­margir aðrir lekar úr stjórn­kerf­inu, sem allir fjöl­miðlar kann­ast við. Fjöl­miðlar „nýta“ sér aðeins örlítið brot af slíkum lekum af marg­vís­legum ástæðum. Eitt af því sem þeir leggja örugg­lega mat á, er hvort „lek­inn“ brjóti sið­ferði­leg mörk eða hvort menn séu að reyna að (mis)nota fjöl­mið­il­inn sem í hlut á með óeðli­legum hætti,“ segir meðal ann­ars í Morg­un­blað­inu. 

Rit­stjórar Morg­un­blaðs­ins eru þeir Davíð Oddsson, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins til margra ára, og Haraldur Johann­es­sen sem einnig er fram­kvæmda­stjóri Árvakurs, útgáfu­fé­lags blaðs­ins.

Upplýsingum lekið til að tryggja umfjöllun

Sem kunn­ugt er hófst leka­málið á því að minn­is­blaði með við­kvæmum per­sónu­legum upp­lýs­ingum um hæl­is­leit­endur var lekið til bæði Frétta­blaðs­ins og Morg­un­blaðs­ins. Báðir fjöl­miðlar birtu fréttir upp úr minn­is­blað­inu. Leið­ara­höf­undur Morg­un­blaðs­ins leggur það að jöfnu við 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Lekamálið

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár