Manndráp á Miklubraut: Oft kvartað vegna ástandsins

Karl­maður á fer­tugs­aldri er grun­aður um að hafa banað öðrum manni á búsetu­kjarna fyrir geð­fatl­aða í gær­kvöld.

Manndráp á Miklubraut: Oft kvartað vegna ástandsins

Karl­maður á fer­tugs­aldri er í haldi lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu grun­aður um að hafa orðið manni að bana í búsetu­kjarna fyrir geð­fatl­aða við Miklu­braut í Reykja­vík í gær­kvöld. Lögreglu barst til­kynn­ing um alvar­lega lík­ams­árás í áður­nefndu húsi kl. 21.55, en þegar hún kom á stað­inn örskömmu síðar fannst karl­maður um sex­tugt sem hafði orðið fyrir lík­ams­árás og var hann úrskurð­aður lát­inn á vett­vangi. Lagt var hald á egg­vopn, sem grunur leikur á að hafi verið notað við verkn­að­inn. Hinn látni bjó í hús­inu og meintur ger­andi sömu­leiðis, en eng­inn annar er grun­aður í mál­inu. Lögð verður fram krafa um gæslu­varð­hald yfir hinum hand­tekna síðar í dag.

Samkvæmt upp­lýs­ingum frá lög­reglu er rann­sókn máls­ins á frum­stigi og ekki hægt að veita frek­ari upp­lýs­ingar að svo stöddu.

Stundin hefur heim­ildir fyrir því að oft hafi verið kvartað vegna ástands­ins á heim­il­inu en nágrannar hafa haft áhyggjur af því að þar hafi verið mikil neysla á fíkni­efnum. „Þetta er slys sem hefði verið hægt að koma í veg fyrir, ef það hefði verið vilji fyrir því,“ segir nágranni í sam­tali við Stundina. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár