Mistök í launagreiðslum til starfsmanna ríkisins

Um tíu pró­sent rík­is­starfs­manna fengu ekki laun á réttum tíma um mán­að­ar­mótin vegna mis­taka hjá Reikni­stofu bank­anna. Þann 1. apríl var upp­hæðin tekin út af reikn­ingi rík­is­ins en skil­aði sér ekki inn á reikn­inga laun­þega fyrr en nú í morgun.

Mistök í launagreiðslum til starfsmanna ríkisins
Starfs­menn rík­is­ins Tæplega tíu pró­sent starfs­manna rík­is­ins fengu laun greidd of seint. Mynd: Kristinn Magnússon

Mistök voru gerð í launa­greiðslum rík­is­ins þegar fjöldi starfs­manna fékk launin ekki greidd á síð­asta útborg­un­ar­degi þann 1. apríl. Engin til­kynn­ing barst laun­þegum sem biðu í óvissu um helg­ina. Í dag, þann 3. apríl, fengu starfs­menn loks útborgað, tveimur dögum of seint.

Starfs­maður elli­heim­ilis segir í sam­tali við Stundina að sér hafi verið veru­lega mis­boðið. Hann bendir á að það þyki eðli­legt að starfs­maður láti yfir­mann sinn vita ef hann kemur ekki til vinnu og að sama skapi sé eðli­legt að yfir­menn láti laun­þega vita ef mis­tök verða til þess að laun eru greidd of seint.

„Full upp­hæð var tekin út af reikn­ing rík­is­ins á útborg­un­ar­dag“

Stefán Kjærne­sted, vara­fjár­sýslu­stjóri Fjár­sýslu rík­is­ins, svar­aði fyrir málið: „Starfs­menn fengu launa­seðil og full upp­hæð var tekin út af reikn­ing rík­is­ins á útborg­un­ar­dag,“ sagði hann og bætti því við að mis­tök hafi átt sér stað hjá Reikni­stofu bank­anna.

Friðrik …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisfjármál

Mest lesið

Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár