Reið út í þetta ruglaða Sýrlandsstríð: Minnast barna sem drukknuðu á flótta

Sigríður Víðis lá „hálf­lasin uppi í rúmi, reið út í heim­inn, reið út í þetta rugl­aða Sýr­lands­stríð,“ þegar hún ákvað að sýna með tákn­rænum hætti allan þann fjölda barna sem hafa lát­ist á síð­ustu mán­uðum. Í dag, þegar fimm ár eru liðin frá því að stríðið hófst, mun UNICEF raða böngsum með­fram Sæbraut­inni í minn­ingu þess­ara barna.

Reið út í þetta ruglaða Sýrlandsstríð: Minnast barna sem drukknuðu á flótta

Um dag­inn kom sjokker­andi töl­fræði inn á borð til mín í vinn­unni: Að með­al­tali hafa tvö börn drukknað á dag í Mið­jarð­ar­haf­inu síðan Evrópa grét yfir mynd­inni af Aylan litla Kurdi. Aylan var 3 ára dreng­ur­inn frá Sýrlandi sem fannst lát­inn á grúfu á tyrk­neskri bað­strönd í haust. Nú höfðu 340 börn farið sömu leið og hann,“ segir Sigríður Víðis Jóns­dóttir, upp­lýs­inga­full­trúi UNICEF sem stendur fyrir tákn­rænum við­burði í dag vegna stríðs­ins í Sýrlandi, í minn­ingu Aylans Kurdi og allra ann­arra barna sem hafa farist á flótt­anum frá Tyrk­landi yfir til Evrópu.

Alyan Kurdi var frá Kobani í Sýrlandi. Hann fannst þann 2. sept­em­ber, þar sem myndin af honum þar sem hann lá á grúfu í rauðum stutt­erma­bol, bláum stutt­buxum og striga­skóm á strönd­inni í Tyrk­landi, líf­laus í flæð­ar­mál­inu, hafði drukknað á flótt­anum yfir hafið, varð tákn­mynd umræð­unnar um flótta­manna­vand­ann.  

Fjöl­skylda Aylan var á flótta frá borg­inni Kobane þar sem ISIS-liðar réðu ríkjum en á leið til grísku eyj­ar­innar Kos hvolfdi bátnum með þeim afleið­ingum að Aylan, bróðir hans Galip Kurdi, fimm ára, og móðir þeirra drukkn­uðu öll.

En hörm­ung­arnar héldu áfram. Síðan í sept­em­ber hafa rúm­lega fjögur hund­ruð börn fylgt Aylan litla Kurdi í vota gröf, að með­al­tali tvö börn á dag sam­kvæmt UNICEF. 

Reið út í heiminn

Sigríður segir að hún hafi verið heima með ungan son sinn las­inn þegar hún áframsendi þessar upp­lýs­ingar á valda fjöl­miðla. „Það var að koma helgi, ein­hver önnur erlend stór­frétt var aðal­málið, ég lagð­ist sjálf í rúmið og ekk­ert birt­ist um drukkn­uðu börnin.

Á mánu­deg­inum lá ég hálf­rugluð af las­leika í rúm­inu, reið út í heim­inn, reið út í þetta rugl­aða Sýr­lands­stríð. Hugsaði sam­an­bitin með mér að mig lang­aði að sýna mynd­rænt hversu mörg börn hafa drukknað þarna í leit að öryggi, bara á sein­ustu vikum og mán­uðum. Sýna hversu ótrú­lega, ótrú­lega mörg þau eru.

 „Fjögur hund­ruð því talan hefur hækkað skugga­lega síðan póst­ur­inn barst um dag­inn.“

Hvernig var best að gera það? Með vett­lingum, fötum, skóm? Með dóti? Nei, auð­vitað með böngsum.

Dásemd­ar­sam­starfs­fólk mitt stakk upp á að við myndum raða böngs­unum upp með­fram strand­lengj­unni við Sæbraut­ina. Þannig myndu þeir horfa út á hafið. 400 stykki. Fjögur hund­ruð því talan hefur hækkað skugga­lega síðan póst­ur­inn barst um dag­inn.

Við ákváðum að gera þetta dag­inn sem fimm ár eru liðin frá því að stríðið í Sýrlandi hófst.“

Það er í dag. 

Börn á flótta
Börn á flótta

#segj­um­STOPP mynd­band 2

„ ...við þurfum bara ein­hvern sem setur sig í okkar spor, sem hjálpar okkur... “ Safa, 12 ára.Börn eru helm­ingur fólks á flótta frá Sýrlandi og þau þurfa okkar hjálp. Þú getur hjálpað með því að senda sms-ið STOPP í 1900 (1.900 kr.). #segj­um­STOPP

Posted by UNICEF á Íslandi on Monday, March 14, 2016

Sjö ára barnahermenn  

Í dag eru fimm ár liðin frá því að stríðið í Sýrlandi hófst, með skelfi­legum afleið­ingum. Í nýrri skýrslu frá UNICEF, Enginn staður fyrir börn, kemur fram að á þeim tíma hafa alls 3,7 millj­ónir barna fæðst í stríðs­á­standi, í Sýrlandi eða á flótta þaðan. Fjöldi flótta­fólks í nágranna­ríkjum Sýrlands hefur tífald­ast frá árinu 2012 og helm­ingur flótta­mann­anna eru börn.

Innviðir lands­ins eru í rúst, meira en 200.000 börn búa á svæðum sem haldið er í her­kví stríð­andi aðila og meira en 8 millj­ónir barna eru í þörf fyrir neyð­ar­að­stoð. Enginn staður er öruggur fyrir börn í Sýrlandi í dag.

„Á meðan átökin halda áfram eru börn látin berj­ast í stríði full­orð­inna, þau þurfa að hætta í skóla, neyð­ast til að vinna og stúlkur eru látnar ganga í hjóna­band á barns­aldri,“ er haft eftir Peter Salama, svæð­is­stjóra UNICEF í Mið-Aust­ur­löndum. 

Í skýrslu UNICEF kemur jafn­framt fram að stríð­andi aðilar sæki í auknum mæli í að gera yngri börn að her­mönnum. Fyrstu ár stríðs­ins voru flestir barna­her­menn drengir á aldr­inum 15 til 17 ára, en á síð­asta ári var hins vegar helm­ingur þeirra barna­her­manna sem UNICEF komst í tæri við undir 15 ára aldri – og þeir yngstu aðeins sjö ára.

Fæddust í stríði
Fæddust í stríði

Bangsar í minningu barnanna  

UNICEF á Íslandi stendur nú fyrir átak­inu #segj­um­STOPP til að minn­ast þess að fimm ár eru liðin frá því að stríðið í Sýrlandi hófst. 

Í dag mun UNICEF á Íslandi síðan standa fyrir þessum tákn­ræna við­burði kl. 16.30. Við­burð­ur­inn fer fram með­fram Sæbraut­inni, þar sem til stendur að raða böngsum með­fram strand­lengj­unni frá Sól­far­inu í átt að Hörpu, einum bangsa fyrir hvert barn sem hefur drukknað frá því að Aylan lést. Fólki er vel­komið að taka þátt en bangsar verða á staðnum.

Í til­kynn­ingu UNICEF segir að það sé óásætt­an­legt að börn drukkni í hrönnum í lekum bátum að leit að öryggi. Það sé rangt að fjöl­skyldur hrek­ist á milli staða án þess að vita hvað bíði að morgni. „Krefja þarf vald­hafa um mark­vissar aðgerðir til að stöðva stríðið, veita þarf börnum og fjöl­skyldum þeirra neyð­ar­hjálp og tryggja þeim alþjóð­lega vernd.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár