Mikil sorg á Suðurnesjum eftir svipleg andlát ungmenna

Íbúar á Suð­ur­nesjum eru í sárum eftir tvö svip­leg dauðs­föll ungs fólks með aðeins nokkra daga milli­bili. Átján ára stúlka lést í bílslysi á leið í skól­ann og ungur maður, sem stefndi á breytt líf og nám, lést úr ofneyslu fíkni­efna.

Mikil sorg ríkir á Suð­ur­nesjum eftir að tvö ung­menni á svæð­inu létu lífið með svip­legum hætti með nokk­urra daga milli­bili.

Ungur maður á þrí­tugs­aldri lést vegna ofneyslu fíkni­efna fyrr í vik­unni. Hann hafði verið á beinu braut­inni í dágóðan tíma og stefndi á nám.

Samkvæmt aðstand­anda sem blaða­maður ræddi við þá er grunur um að mis­notkun á lækna­dópi hafi leitt til dauða hans. Því er þó ekki hægt að slá föstu fyrr en nið­ur­stöður krufn­ingar liggja fyrir.

Lést á leið í skólann

Í gær­morgun lést 18 ára stúlka í umferð­ar­slysi á Grinda­vík­ur­vegi. Hún var á leið í skól­ann þegar hún lenti í árekstri við aðra bif­reið skammt frá afleggjar­anum að Bláa lón­inu. Hún stund­aði nám við Fjöl­brauta­skóla Suð­ur­nesja í Reykja­nesbæ en bjó í Grinda­vík.

„Þetta er svo ósann­gjarnt“

„Nemendur og kenn­arar grétu saman hér í gær. Skólinn brást skjótt við og áfallateymi skól­ans kall­aði til prest sem kom og ræddi við okkur. Það hjálp­aði mörgum. Ég á bara svo erfitt með að trúa þessu. Þetta er svo ósann­gjarnt,“ sagði nem­andi í Fjöl­brauta­skóla Suð­ur­nesja sem Stundin ræddi við í morgun.

Víða hefur verið flaggað í hálfa stöng á Suð­ur­nesjum, bæði í gær og í dag. Tildrög slyss­ins eru til rann­sóknar lög­reglu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár