Átta kindur drápust í flóði á Vatnsleysu

180 kindum bjargað. Bóndinn segir það létti að ekki fór verr. Nágrannar og björg­un­ar­sveitir til hjálpar.

Átta kindur drápust í flóði á Vatnsleysu
Bóndinn á Vatns­leysu Rúnar Björn Guð­munds­son bóndi hrósar happi yfir því að ekki fór verr. Mynd: Jóna Sigríður Guðmundsdóttir

Mikið vatns­flóð varð á bænum Vatns­leysu í Bisk­ups­tungum í stór­viðr­inu í morgun. Meðal ann­ars flæddi inn í fjár­hús þar sem 8 kindur drukkn­uðu. Rúnar Björn Guð­munds­son bóndi segir að flætt hafi úr hlíð­inni ofan við bæinn þar sem fjár­hús eru í bygg­ingu. Á hálf­tíma varð um met­ers­djúpt vatn í fjár­hús­inu. Með harð­fylgi tókst að bjarga 180 kindum. 

,,Þetta fór miklu betur en á horfð­ist,“ segir Rúnar Björn í sam­tali við Stundina. Hann sagði að auð­vitað væri áfall að missa kind­urnar en góðu tíð­indin væri björg­unin. Björg­un­ar­sveitin og nágrannar komu til hjálpar fólk­inu á Vatns­leysu. Alls unnu 15 manns að björg­un­ar­störfum. Unnu þeir þrek­virki, að sögn heima­manna. 

Miklar skemmdir hafa orðið í ofsa­veðr­inu sem náði hámarki sínu sunn­an­lands og suð­vestan fyrir hádegi. Fok og flóð hafa verið skæð­ust. Meðal ann­ars þurfti að loka Miklu­braut vegna þess að þar voru inn­kaupa­kerrur á ferð og flugi. Þak­plötur fuku af Egils­höll í Graf­ar­vogi. Þak­plötur hafa losnað víðar og tré rifn­uðu upp í rótum. Miklar skemmdir urðu vegna vatns­elgs í Mos­fellsbæ.

 
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Flóð

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár